Fréttatíminn - 30.05.2014, Page 28
Sergio Ramos, Spáni
Aldur: 28 ára.
Félag: Real Madrid (Spáni)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 51/7
Landsleikir/mörk: 115/9
Spánverjar eiga titil að verja og skiptar skoðanir
eru um hvort þeir séu sigurstranglegir nú. Verði
Sergio Ramos í því formi sem hann var í síðustu vikur
tímabilsins eiga þeir þó góðan séns því auk þess að
fara á kostum í vörninni raðaði hann inn mörkum fyrir
Real Madrid.
Bruno Martins Indi, Hollandi
Aldur: 22 ára.
Félag: Feyenoord (Hollandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 31/2
Landsleikir/mörk: 13/2
Mikið er um unga og efnilega leikmenn í hollenska liðinu að
þessu sinni og þessi ungi piltur verður í öftustu línu. Hann átti
flott tímabil með Feyenoord og þykir óvenju traustur miðað við
ungan aldur. Því er hvíslað að Louis van Gaal taki hann með sér
til Manchester United að móti loknu en fleiri verða sjálfsagt
um hituna.
Giorgio Chiellini, Ítalíu
Aldur: 29 ára.
Félag: Juventus (Ítalíu)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 31/3
Landsleikir/mörk: 67/4
Juventus rúllaði upp ítölsku deildinni og það
var ekki síst traustri vörn að þakka. Harðjaxlinn
Chiellini hefur staðið fyrir sínu og er lykilmaður í
ítalska landsliðinu.
Varnartröllin
á HM
Tvær vikur eru nú í að HM í knattspyrnu hefst í Brasilíu.
Fréttatíminn heldur áfram að hita upp og nú skoðum
við þá tíu varnarmenn sem gætu skarað framúr á
mótinu. Þeir eru hetjurnar sem fá ekki alltaf þá
viðurkenningu sem þeir eiga skilið.
Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty
Pepe, Portúgal
Aldur: 31 árs.
Félag: Real Madrid
(Spáni)
Leikir á þessu
tímabili/mörk: 49/5
Landsleikir/mörk: 57/3
Þessi er svo sannarlega
ekki allra enda beitir
hann öllum brögðum til að
stöðva andstæðinginn. Enginn
þarf þó að efast um að Pepe er
frábær miðvörður og virðist verða betri með
hverju árinu. Frammistaða hans með Real
Madrid í leikjunum við Bayern München
talar sínu máli.
Philipp Lahm, Þýskalandi
Aldur: 30 ára.
Félag: Bayern München
(Þýskalandi)
Leikir á þessu
tímabili/mörk:
50/1
Landsleikir/
mörk: 105/5
Einn af bestu
bakvörðum heims
síðasta áratuginn.
Guardiola breytti
honum reyndar í miðju-
mann í vetur en Lahm verður í réttri stöðu í Brasilíu.
Nú er hann ekki lengur ungur og efnilegur
og í ljós kemur hvort hann og þjálfarinn
Löw eru réttu mennirnir til að fara
með liðið alla leið.
Vincent Kompany,
Belgíu
Aldur: 28 ára.
Félag: Manchester City (Eng-
landi)
Leikir á þessu tímabili/
mörk: 19/3
Landsleikir/mörk:
56/4
Kompany er eld-
klár og ljónharður
og ef hið spenn-
andi lið Belga á
að gera eitthvað í
þessu móti verður
hann að binda vörnina
saman. Það gæti orðið
vandasamt verk enda hafa
allir varnarmennirnir fjórir
(Vertonghen, Vermaelen og
Alderweireld auk hans) verið meira
og minna meiddir eða á bekknum hjá
liðum sínum í vetur.
Diego Godín, Úrúgvæ
Aldur: 28 ára.
Félag: Atletico Madrid (Spáni)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 51/8
Landsleikir/mörk: 76/3
Frammistaða Godíns með Atletico Madrid í vetur hefur tryggt
honum fjölda aðdáenda. Hann er útsjónarsamur varnarmaður
og les leikinn vel en um leið sterkur. Hann er öflugur
skallamaður eins og sannast á mörkum hans með Atletico.
Pablo Zabaleta, Argentínu
Aldur: 29 ára.
Félag: Manchester City (Englandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 44/1
Landsleikir/mörk: 35/0
Átti frábært tímabil á Englandi og var sem fyrr sterkur í
vörninni en ekki síðri þegar hann brunaði eins og eimreið
upp kantinn og tók þátt í sókninni. Zabaleta er hinn fullkomni
bakvörður.
Atsuto Uchida, Japan
Aldur: 26 ára.
Félag: Schalke (Þýskalandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 28/1
Landsleikir/mörk: 67/2
Nettur bakvörður sem vakið hefur athygli
í þýsku deildinni. Hefur verið orðaður við
Arsenal. Gæti verið lykilmaður ef lið Japans
dettur í gang í keppninni.
Thiago Silva, Brasilíu
Aldur: 29 ára.
Félag: Paris Saint-Germain (Frakklandi)
Leikir á þessu tímabili/mörk: 42/3
Landsleikir/mörk: 45/2
Af mörgum álitinn besti varnarmaður heims um
þessar mundir; eldfljótur, sterkur í loftinu, les leik-
inn einstaklega vel og getur byrjað sóknir liðsins.
Hann hefur einfaldlega allt og er holdgervingur
nútíma varnarmannsins.
28 fótbolti Helgin 30. maí-1. júní 2014