Fréttatíminn - 30.05.2014, Blaðsíða 64
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
Haukur Sigurðsson, einn
skipuleggjenda hátíðar-
innar.
Tvær sýningar með úrvals-
verkum úr safneign Listasafns
Reykjavíkur verða opnaðar
laugardaginn 31. maí klukkan
16 á Kjarvalsstöðum, Reykjavík,
bær, bygging og Hliðstæður.
Á sýningunni Reykjavík, bær,
bygging má sjá hvernig borgin
kom íslenskum listmálurum fyrir
sjónir á hundrað og tveggja ára
tímabili, allt frá 1891 til 1993.
Reykjavík Bókmenntaborg
UNESCO hefur valið Reykjavík-
urljóð eftir 10 skáld frá árunum
1931-2013 til að ljóðskreyta
sýninguna, að því er fram kemur
í tilkynningu. Þetta er fyrsta
samstarfverkefni Listasafns
Reykjavíkur og Reykjavíkur
Bókmenntaborgar UNESCO á
þessu sviði. Á sýningunni eru
málverk eftir helstu frumherja
íslenskrar myndlistar, Þórarin B.
Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jón
Stefánsson, Jóhannes Kjarval,
Kristínu Jónsdóttur og Gunnlaug
Blöndal. Einnig eru á sýningunni
úrvalsverk næstu kynslóðar,
sem komst til þroska á öðrum og
þriðja áratug aldarinnar, þeirra
Snorra Arinbjarnar, Gunnlaugs
Scheving, Nínu Tryggvadóttur og
Louisu Matthíasdóttur. Sýningar-
stjórar eru Hafþór Yngvason og
Aðalsteinn Ingólfsson. - jh
Kjarvalsstaðir tvær sýningar opnaðar á laugardaginn
Úrvalsverk úr safneign Listasafnsins
Nína Tryggvadóttir. Frá höfninni, 1940.
Bíó veisla fyrir unnendur góðra heimildamynda fyrir vestan
Norræn kvikmynda
hátíð á Ísafirði
Kvikmyndahátíð NAFA, eða Norrænu mannfræði-kvikmyndasamtakanna, verður haldin á
Ísafirði 4.-6. júní næstkomandi í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Kvikmyndirnar eru
flestar í heimildamyndastíl og koma frá öllum heimshornum. Þrjátíu erlendir gestir taka þátt
en auk kvikmyndasýninga verður haldin ráðstefna þar sem erlendir og innlendir fyrirlesarar
kynna rannsóknir sínar og hugmyndir.
u ndirbúningurinn hefur gengið mjög vel. Það sem er auðvit-að alltaf erfiðast er að finna
peninga. En við höfum verið heppin með
samstarfsaðila úti og nýtt okkur sam-
bönd frá Noregi, segir Haukur Sigurðs-
son, einn skipuleggjenda hátíðarinnar
en hann var lærði sjónræna mannfræði
í Tromsö í Norður Noregi. „Kvikmynda-
sjóður Norður-Noregs er okkar helsti
styrktaraðili auk JAF (Journal of Ant-
hropological Film) en þau sjá alfarið
um að koma öllum fræðimönnunum
hingað.“
Fjölbreytar kvikmyndir sýndar
Sýndar verða 23 kvikmyndir á hátíð-
inni, stuttar og langar frá öllum heims-
hornum, en þær hafa verið valdar af
sérstakri valnefnd sem fór í gegnum
þær 300 kvikmyndir sem sendar voru
inn af mannfræðingum og kvikmynda-
gerðarmönnum um heim allan. Þær
kvikmyndir sem iðulega eru sýndar á
NAFA-hátíðinni eru oft frábrugðnar
þeim myndum sem fólk á að venjast úr
bíóhúsum landsins. „Þetta eru heim-
ildamyndir en oft í sérstökum stíl, oft
í anda „cinema verité“. Myndirnar eru
vissulega mis-aðgengilegar en flestar
ættu að vekja áhuga allra, alls ekki bara
einhverra spekinga. Myndirnar verða
sýndar stanslaust frá 14 til 23 í Ísafjarð-
arbíói og aðgangur er ókeypis. Kvik-
myndir NAFA-hátíðarinnar eru mjög
fjölbreyttar og koma alls staðar að. Þetta
eru ekki þessar hefðbundnu Hollywood-
myndir en það ætti að opna glugga inn
að fjarlægum menningarheimum sem
eru fólki ókunnugir, og þá vonandi í leið-
inni að eyða fordómum og auka víðsýni,“
segir Haukur.
Það þarf ekki allt að vera í Reykjavík
NAFA-hátíðin er haldin ár hvert víðsveg-
ar um Norðurlöndin en þetta er í annað
sinn sem hún er haldin á Íslandi. „Það
átti að halda hana í Reykjavík núna í ár
en svo vantaði einhvern til að halda utan
um hátíðina og þá var haft samband við
mig. Þessi sjónræna mannfræði klíka er
nú ekkert sérstaklega stór í Evrópu og
þeir sem halda utan um hátíðina kenndu
mér í Noregi. Þegar ég var beðinn um
þetta setti ég bara sem skilyrði að há-
tíðin yrði haldin á Ísafirði, þar sem ég bý
hér. Og það var bara samþykkt,“ segir
Haukur sem er að vonum ánægður með
staðsetninguna. „Þetta er frábært fyrir
okkur hér en líka skemmtilegt fyrir
þá sem koma að utan að fá að upplifa
Vestfirði. Það þarf ekki allt að vera í
Reykjavík.“
Það er mikið um að vera fyrir vestan í
næstu viku því í kjölfar kvikmyndahátíð-
arinnar á Ísafirði verður heimildamyn-
dahátíðin Skjaldborg haldin á Patreks-
firði. „Það er gaman að segja frá því að
flestir gestir NAFA-hátíðarinnar ætla að
lengja ferðina og fjölmenna á Skjald-
borg, enda væri fáránlegt að fara ekki
þegar þú ert á annað borð komin alla
leið hingað.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Kvikmyndahátíð Norrænu mannfræði-kvikmyndasamtakanna verður haldin á Ísafirði dagana 4.-6. júní. Fjölmargir erlendir
gestir sækja hátíðina. Kvikmyndasýningarnar eru opnar öllum og aðgangur er ókeypis.
Þetta eru
heim-
ildamyndir
en oft í sér-
stökum stíl,
oft í anda
„cinema
verité“
64 menning Helgin 30. maí-1. júní 2014
LINGUA
veggklukka
7.950 kr. CONCEAL
ósýnilega hillan
Lítil 2.950 kr.
Stór 3.950 kr.
BOHO
klútahengi
2.950 kr.
CLIPLINE myndarammi
7.950 kr.
BLACK TIE
bindahengi
2.450 kr. HANGIT hengi fyrir
myndir og minnismiða
4.950 kr.
FLIP snagi 5.950 kr.
FEATHERS
veggskraut
2.950 kr.
TEKK COmPANy OG HABITAT
KAUPTúN 3
SímI 564 4400
vEFvERSLUN á www.TEKK.IS
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
Gerum hús að heimili