Fréttatíminn - 30.05.2014, Page 32
A ðalskipulag Reykjavíkur var samþykkt í nóvember 2013. Skipulagið setur línurnar fyr-
ir þróun borgarinnar til ársins 2030
sem í megindráttum leggur áherslu
á þéttingu byggðar við sundin auk
áherslu á græn svæði og vistvænan
samgöngumáta. Svæðið í kringum
Hörpu og Reykjavíkurflugvöll eru
þau svæði sem hafa verið hvað mest
í umræðunni eftir að aðalskipulagið
var samþykkt en samkomulag milli
borgar og ríkis gerir nú ráð fyrir að
flugvöllurinn víki ekki fyrr en 2020.
Gildandi aðalskipulag setur fram
meginstefnu um þróun borgarinnar
en sú stefna er svo frekar útfærð í
deiliskipulagi. Í deiliskipulagi eru
settar línur um byggingarmagn lóða,
hæðir húsa, yfirbragð og fleira. Í
gildi eru fjölmargar deiliskipulag-
sáætlanir sem eru eldri en nýsam-
þykkt aðalskipulag og meðal þess
er skipulagið í kringum Hörpu, sem
kallast Austurhöfn, en það var sam-
þykkt árið 2006 að undangenginni
skipulagssamkeppni.
Úrelt deiliskipulag
Sú mynd sem teiknuð hefur verið
upp af svæði Austurhafnar er nokkuð
á skjön við áherslur borgarinnar
í dag og þær hugmyndir sem nýtt
aðalskipulag vill endurspegla. Hægt
er að lesa um það á vef borgarinnar;
„Einkenni Reykjavíkur er lágreist
byggð og þannig verður borgin
áfram í nýju aðalskipulagi Reykjavík-
ur 2010-2030. Hús verða ekki hærri
en fimm hæðir innan gömlu Hring-
brautar í Reykjavík enda mun svæðið
njóta sérstakrar hverfisverndar.
Gamli bærinn verður styrktur og
saga hans og sérkenni efld. Háhýsi
eiga ekki heima í miðborginni.“
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri um-
hverfis-og skipulagssviðs Reykjavík-
urborgar, segir skipulagið vera barn
síns tíma. „Það er mikið byggingar-
magn þarna. Ef við værum að gera
þetta deiliskipulag núna, í samræmi
við nýtt aðalskipulag, þá væri það
eflaust af öðrum toga. Nú er áhersla
á staðaranda og sérkenni Reykjavík-
ur og tengsl við eldri byggð höfð að
leiðarljósi við þéttingu byggðar. En
eldri deiliskipsáætlanir falla ekki úr
gildi þó við setjum nýja stefnu í aðal-
skipulagi.“
Breytingar í takt við nýtt aðal-
skipulag
Deiliskipulagið við Austurhöfn var
endurskoðað fyrr á árinu og er nú á
lokametrum samþykktarferlis. Sam-
hliða var farið í samningaviðræður
við lóðarhafa vegna breytinganna.
„Í kjölfarið hefur byggingarmagnið
minnkað aðeins og byggingar verið
lækkaðar. Byggingarnar eru samt
sem áður ennþá háar. Skipulagsyfir-
völd eru mjög meðvituð um það um
hversu viðkvæmt svæði er um að
ræða. Þær teikningar sem hafa verið
til umfjöllunar í fjölmiðlum eru ekki
samþykkt áform og langur vegur
frá því að þær hafi fengið nægilega
umfjöllun. Við munum auðvitað gera
mikla kröfur um yfirbragð og ásýnd
húsanna sem þarna munu rísa. Í mín-
um huga er um að ræða massastúdí-
ur sem eru í vinnslu,“ segir Ólöf.
Hilmar Þ. Björnsson arkitekt telur
breytingar borgarinnar á gamla deili-
skipulaginu ekki ganga nógu langt.
„Borgin vann af mikilli alúð að
undirbúningi að samkeppninni um
svæðið umhverfis Ingólfstorg sem
lauk árið 2012. Þar var markvisst
unnið að því að halda í staðaranda og
sérkenni miðborgarinnar. Áherslan
þar var í samræmi við skipulag
Kvosarinnar frá árinu 1986 þar sem
hæðir húsa voru stallaðar frá tveimur
upp í sex hæðir. Þess vegna kemur
það mér á óvart að öll sú vinna og
umræða hafi ekki skilað sér í nýju
deiliskipulagi við Austurhöfn. Hlut-
föllin þar eru algjörlega á skjön við
það sem menn höfðu áður sæst á. Við
endurskoðun deiliskipulagsins voru
aðalbreytingarnar þær að gatnamót
Tryggvagötu og Kalkofnsvegar voru
lagfærð og húsin lækkuð aðeins.
Það sem þurfti að gera var að leggja
áherslu á að deiliskipulagið tæki mið
af þeirri stefnu sem tekið hefur verið
mið af í Kvosinni, með styttri hús-
lengdum, stölluðum húsahæðum,
kannski frá þrem upp í sjö og auðvit-
að með fjölbreytilegri húsagerðum,“
segir Hilmar.
Hagsmunaárekstrar
Hilmar segir hluta vandans við Hörp-
ureitinn vera hægt að rekja til þess
óvenjulega verklags sem eigi sér stað
á lóðunum.
„Kannski er hluta skýringarinnar
að finna í því óvenjulega verklagi
að hönnuðirnir eru beinir hags-
munaaðilar á hluta svæðisins og
eru að hanna hús fyrir sjálfa sig,“
segir Hilmar og vísar þar til T-ark
stofunnar sem hannar lóðina vestan
við Hörpu en á einnig hlut í lóðinni.
Það geti vakið upp spurningar um
samfélagslega ábyrgð og hagsmuna-
árekstra. „Þarna er lóðareigandinn
og hönnuðurinn sami aðilinn og því
vantar hinn hefðbundna millilið,
sem er arkitektinn. Arkitekt starfar
venjulega fyrir lóðareiganda í þágu
samfélagsins. Hans hagsmunir eiga
að snúast um það hvað umhverfið
og samfélagið fái út úr byggingunni.
En þegar arkitekt er orðin lóðareig-
andi þá ráða hagsmunir hans, frekar
Vandræðin við Austurhöfn
Gamla deiliskipulagið við Austurhöfn er á skjön við breyttar áherslur borgarinnar í dag og þær hug-
myndir sem nýtt aðalskipulag vill endurspegla. Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis-og skipulags-
sviðs Reykjavíkurborgar, segir deiliskipulagið vera barn síns tíma en erfitt sé að fella gömul
deiliskipulög úr gildi. Hilmar Þ. Birgisson arkitekt segir hluta vandans mega rekja til óvenjulegs
verklags á lóðunum en hönnuðir bygginganna eru í sumum tilfellum einnig eigendur lóðanna.
en samfélagsins, ferðinni. Því fleiri
íbúðir og því auðveldari bygging því
hagkvæmara fyrir lóðareiganda. Sem
arkitekt á maður í endalausum sam-
tölum við húsbyggjanda um hluti sem
kosta peninga, hér er það samtal ekki
til staðar.“
Erlendis tíðkast í mun meira mæli en
hérlendis að deiliskipulagsáætlanir og
nýjar byggingar í miðbæ fari í gegnum
hönnunarsamkeppnir, sem eru hugs-
aðar sem tæki til að auka gæði hins
manngerða umhverfis. Þá gildir einu
hvort um er að ræða lóð í eigu borgar
eða í einkaeign. Nú hafa allar lóðir á
svæði Austurhafnarinnar verið seldar,
utan einnar, en Harpa er eina húsið
á svæðinu sem hefur farið í gegnum
hönnunarsamkeppni. Nú er það alfarið
í höndum eigenda að setja fram tillögur,
sem þó þurfa alltaf að vera samþykktar
af borginni.
Hönnunarsamkeppnir
Ólöf segir borgina leggja áherslu á það
að halda hönnunarsamkeppnir bæði um
skipulag og nýbyggingar og að stefnan
sé að gera meira af því. Metnaður
þeirra sem vilja byggja í Reykjavík þurfi
að vera af þeim toga að hvert nýtt hús
endurspegli hið besta úr byggingarlist
samtímans um leið og nærumhverfinu
sé sýnd virðing. Nýlega var samþykkt
í umhverfis-og skipulagsráði að stofna
faghóp með Arkitektafélagi Íslands og
landslagsarkitektum sem mun hér eftir
gefa umsögn um allar byggingar á lykil-
svæðum í borginni. „Það er ekki síst
gert til þess að borgin hafi góð verkfæri
til að tryggja gæði þess nýja sem á að
byggja. Persónulega finnst mér að allar
byggingar á lykilsvæðum í Reykjavík
þyrftu að fara í gegnum hönnunar-
samkeppni, eins og til dæmis er gert í
Finnlandi. Við hvetjum til slíkra vinnu-
bragða í gæðastefnu um hið mann-
gerða umhverfi sem er hluti af aðal-
skipulaginu en skortir kannski áhöldin
til að krefjast þess að farin sé sú leið af
lóðarhöfum.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri
umhverfis-og skipulagssviðs
Reykjavíkurborgar.
Hilmar Þ. Birgisson arkitekt
segir óvenjulegt verklag eiga
sér stað á lóðunum við Austur-
höfn sem vekji upp spurningar
um samfélagslega ábyrgð og
hagsmunaárekstra.
„Þær teikningar sem hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum eru ekki samþykkt áform og langur vegur frá því að þær hafi fengið nægilega umfjöllun. Við munum auðvitað gera mikla kröfur um yfirbragð og ásýnd
húsanna sem þarna munu rísa. Í mínum huga er um að ræða massastúdíur sem eru í vinnslu,“ segir Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis-og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
32 fréttaskýring Helgin 30. maí-1. júní 2014