Fréttatíminn - 30.05.2014, Blaðsíða 48
48 ferðalög Helgin 30. maí-1. júní 2014
Flugvélamatur Flestir þurFa eitthvað í gogginn
VATNSHELDAR TÖSKUR OG SJÓPOKAR
margar gerðir, stærðir og l itir
í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6,
Garðabæ, s ími : 564 5040
Duffle
Big Zip
Rack-Pack
X-tremer
PS 10
Moto dry bag
PD 350
Sölustaðir:
Ellingsen
Útilíf Smáralind og Glæsibæ
PD 350
þ að tekur sjaldnast minna en þrjá tíma að fljúga héðan til útlanda og þeir sem ekki borða í flugstöðinni fyrir brottför þurfa
líklega á einhverri næringu að halda í háloftun-
um. Það getur líka verið skynsamlegt að fá sér í
svanginn um borð því það er ekki alltaf hlaupið að
því að finna matarbita stuttu eftir lendingu.
Flestir kaupa eitthvað
Samkvæmt lesendakönnun Túrista sögðust
aðeins níu prósent svarenda aldrei fá sér vott né
þurrt í flugi. Þúsund svör fengust í könnuninni og
hún því ágætis vísbending um að yfirgnæfandi
meirihluti íslenskra flugfarþega fái sér einhverja
hressingu á leiðinni til og frá landinu. Flestir
sennilega til að seðja sárasta hungrið en senni-
lega er óhætt að fullyrða að margir kaupi sér eitt-
hvað aðeins til að drepa tímann.
Hvað kostar maturinn um borð?
Hinn klassíski flugvélamatur er sjaldséður um borð í vélunum
sem fljúga frá Keflavík. Verðlagning á samlokunum og drykkj-
unum sem nú eru í boði eru hjá flugfélögunum er mjög misjöfn.
Næstum allir rukka aukalega
Sá tími er nærri liðinn að matur-
inn sé innifalinn í miðaverðinu,
alla vega á ódýrasta farrými.
Stundum fá börnin þó ókeypis
barnabox með mat og drykk
og þeir fullorðnu samlokur.
Hjá sumum flugfélögum fylgja
óáfengir drykkir með í kaupunum
á meðan aðrir rukka fyrir allt. Það
á til dæmis við flest lággjaldaflug-
félögin sem hingað fljúga. Fjög-
urra manna fjölskylda borgar því
að lágmarki tæpar fjögur þúsund
krónur fyrir samloku og vatns-
flösku handa hverjum og einum.
Eins og sjá má á listanum hér fyrir
neðan er verðlagning á matseðl-
um flugfélaganna mjög misjöfn.
Verðin voru fundin á heimasíðu
flugfélaganna og stuðst var við
gengi dagsins þegar verð erlendu
flugfélaganna voru umreiknuð í
krónur.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Flugfélag Vatn/gos Kaffi Samloka Bjór
Icelandair Innifalið Innifalið 900 kr. 700 kr.
Wow Air 250 kr. 350 kr. 690 kr. 650 kr.
Airberlin Innifalið Innifalið Innifalið 700 til 800 kr.
Delta Innifalið Innifalið 1015 kr. 677 kr.
Easy Jet 384 kr. 462 kr. 846 kr. 770 kr.
Flybe 264 kr. 472 kr. 755 kr. 755 kr.
FlyNiki Innifalið Innifalið Innifalið 700 til 800 kr.
German Wings 461 kr. 385 kr. 600 kr. 461 kr.
Lufthansa Innifalið Innifalið Innifalið Innifalið
Norwegian 461 kr. 461 kr. 1077 kr. 770 kr.
Primera Air 250 kr. 400 kr. 700 kr. 650 kr.
SAS 461 kr. Innifalið 923 kr. 770 kr.
Transavia 383 kr. 422 kr. 767 kr. 575 kr.
Hjá easyJet borga farþegar fyrir allar veitingar líkt og tíðkast hjá lággjaldaflugfélögunum. Mynd easyJet
Tafla flugvélamatur
þ að þarf ekki að vera mikið mál að halda dýrðarinnar grillveislu. Hjá Kjötkompaníinu er boðið upp á grill-veislu með öllu tilheyrandi og það eina sem gestgjaf-
inn þarf að gera er að tendra upp í grillinu og skella kjötinu
á. Með grillveislupakka Kjötkompanís fylgja tvenns konar
kartöflusalöt, ferskt salat, sósa og hægt er að velja um nokkrar
tegundir af lambakjöti og nautakjöti eða grísahnakka. „Við
græjum matarboðið frá A til Ö og erum með kjötið, sósuna,
meðlætið og jafnvel forréttinn og eftirréttinn líka,“ segir Jón
Örn Stefánsson, matreiðslumaður og eigandi Kjötkompanís.
Hjá Kjötkompaníi er einnig veisluþjónusta og hafa smárétt-
irnir og grillspjótin gjörsamlega slegið í gegn. „Allt kjötið hjá
okkur er í hæsta gæðaflokki. Þegar kemur að nautakjöti, þá á
fólk almennt að spyrja kjötkaupmanninn að því hvað kjötið sé
vel hangið. Svarið sem þú átt að fá að heyra er 24 til 30 dagar,
það getur þú stólað á hjá okkur,“ segir Jón Örn.
Ráðlegt er að panta grillveislu með eins dags fyrirvara, hið
minnsta. Nánari upplýsingar má nálgast á vefnum kjotkomp-
ani.is og á Facebook-síðunni Kjötkompaní. Verslunin er að
Dalshrauni 13, í Hafnarfirði.
Girnileg grillveisla án fyrirhafnar
Allt kjötið hjá Kjötkompaníi er í
hæsta gæðaflokki.
Jón Örn Stefánsson, matreiðslumaður hjá Kjötkompaníinu. „Við græjum matarboðið frá A til Ö og erum með kjötið, sósuna, með-
lætið og jafnvel forréttinn og eftirréttinn líka,“ segir hann.
KYNNING