Fréttatíminn - 30.05.2014, Síða 52
Verðlaunavín Gyllta glasins
52 matur & vín Helgin 30. maí-1. júní 2014
vín vikunnar
Vín úr þurrkuðum þrúgum
Appassimento er nafn á ævafornri ítalskri víngerðaraðferð þar sem þrúgurnar eru þurrkaðar áður en þær eru not-
aðar. Þrúgurnar eru þurrkaðar í um 4 mánuði. Þessar þurrkuðu þrúgur eru svo í fyrstu atrennu notaðar til að
gera Amarone-vín sem fyrir vikið eru mjög þroskuð sýrulítil vín með mikilli fyllingu og háu alkóhólmagni,
oft meira en 15%. Þegar þrúgurnar eru svo pressaðar í annað sinn og blandað í Valpolicella-
vín verður til Ripasso-vín. Ripasso-vínum svipar einmitt til vína
sem nota appassimento í nafni og þú getur gengið að því vísu
að hluti þrúgnanna í appassimento-víninu hafi verið þurrk-
aður. Svoleiðis vín koma ekki endilega bara frá Valpolicella-
svæðinu á Norður-Ítalíu. Þessi tegund vína hefur verið að slá í
gegn hjá frændum okkar í Skandinavíu enda er hægt að gera
verulega góð kaup í þessum vínum, ekki síst í kassavínum.
Þau eru yfirleitt kröftug, alkóhólrík og með töluverða fyllingu og jafnvel rúsínukeim. Vín vik-
unnar er engin undantekning. Þar er ágætis fylling með plómum, smá súkkulaði og rúsínukeim. Þetta er vín
til að drekka með kjöti, kraftmiklu kjöti og villibráð. Það sómir sér líka vel með bragðsterkum harðostum.
Casa Vinironia Appassimento
Edizione Oro
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Ítalía, 2012
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúðunum: kr. 2.498
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Föstudagspizzan
Pizza kjötelskandans
er bökuð úr Kornax brauðhveitinu
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero 1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
D ómnefndina skipuðu 30 þekktir vínsérfræðingar, vínbirgjar, reyndir vín-
áhugamenn innan veitingageir-
ans og kennarar við Hótel og veit-
ingaskóla Íslands. Að sögn Ölbu
E. H. Hough, yfirdómara keppn-
innar og margfalds Íslandsmeist-
ara vínþjóna, tókst mjög vel til í
ár við smökkunina. „Við vorum
virkilega ánægð með hvernig
gekk. Þetta er mest krefjandi
blindsmökkun sem fram fer á Ís-
landi. Smakkið fer alltaf stækk-
andi ár frá ári og við viljum verð-
launa vín á þessu verðbili því þau
fá því miður takmarkaða athygli
neytenda. Langmest er keypt af
vínum undir 2.000 kr. og ef fólk
vill gera vel við sig er farið yfir
3.500 kr. en það vill gleymast að
það eru mörg hágæðavín á þessu
verðbili og bara með því að bæta
við nokkur hundruð krónum geta
Íslendingar breytt því hvernig
þeir njóta matar og víns í fram-
tíðinni.“
Gyllta glasið veitt
í tíunda sinn
Keppnin um Gyllta glasið 2014 var haldin í 10 sinn undir stjórn
Vínþjónasamtaka Íslands í síðustu viku. Í ár, líkt og í fyrra,
kepptu vín í verðflokknum frá 2.490 kr. til 3.500 kr. Víninn-
flytjendur völdu vín til keppninnar og máttu þau koma frá
öllum heiminum. Þátttakan var frábær og alls tóku 113 vín
þátt í keppninni frá 11 innflytjendum.
Hvítvín
Trivento Golden Reseve Chardonnay
Ár: 2013 Verð: 2.999 kr.
Villa Maria Organic Cellar
Sauvignon Blanc
Ár: 2012 Verð: 3.188 kr.
Vicaŕ s Choice Pinot Gris
Ár: 2013 Verð: 2.499 kr.
Tiki Estate Sauvignon Blanc
Ár: 2011 Verð: 2.698 kr.
Tommasi Le Rosse Pinot Grigio
Ár: 2013 Verð: 2.499 kr.
Torres Gran Vina Sol Chardonnay
Verð: 2.549 kr.
Villa Maria Organic Private Bin
Sauvignon Blanc
Ár: 2012 Verð: 2.999 kr.
Pfaffenheim Gewurztraminer
Ár: 2012 Verð: 2.650 kr.
Willm Riesling Reserve
Ár: 2013 Verð: 2.499 kr.
Alphart Neuburger Hausber
Ár: 2013 Verð: 2.599 kr.
Rauðvín
Peter Lehmann Portrait Shiraz
Ár: 2012 Verð: 2.599 kr.
Carmenn Gran Reserva
Cabernet Sauvignon
Ár: 2010 Verð: 2.999 kr.
Windham Bin 555 Shiraz
Ár: 2012 Verð: 2.599 kr.
Rosemount Shiraz
Ár: 2012 Verð: 2.650 kr.
Altano Reserva Quinta do Ataide
Ár: 2009 Verð: 3.496 kr.