Brennidepill - 01.03.1998, Blaðsíða 24
Umhverfisstefna
Olís ætti ekki að koma
neinum á - líÉ^óvart!
Allt bensín sem Olís
og ÓB-ódýrt bensín
selja inniheldur hreinsi-
efni sem leiða til hreinni
útblásturs og minni
eldsneytiseyðsli
Frá 1992 hefur Olís fært Landgræðslusjóði liðlega
50.000.000 kr. til styrktar landgræðslu
á íslandi.
A undanförnum árum hefur
Olíuverzlun íslands hf. unnið skipulega
að umhverfis- og uppgræðslumálum, enda er það
stefna fyrirtækisins að standa vörð um náttúru íslands.
Baráttan hefur ekki eingöngu falist í styrkjum til hinna ýmsu
málefna á sviði náttúruverndar heldur einnig í daglegri starfsemi
og þjónustu fyrirtækisins. Frá 1994 hefur Olís t.d. eingöngu boðið
bensín með HreintSystem3 íblöndunarefnum sem leiðir til hreinni
útblásturs og minni eldsneytisnotkunar farartækja.
í byrjun þessa árs tók Olís enn eitt frumkvæðið á sviði umhverfismála
með sölu á dísilolíu með fjórum sinnum minna brennisteinsmagni en þekkst
hefur áður hér á landi. Það skilar sér ekki aðeins í betri bruna og umhirðu
bílvélarinnar heldur dregur stórlega úr útblæstri óæskilegra efna eins
og kolvetnis og koltvísýrings. í dag er Olís eina olíufélagið hérlendis sem
selur bæði umhverfisvænni dísilolíu og hreinsiefnabætt bensín á
öllum sínum þjónustustöðvum. Á undanförnum árum hefur Olís byggt
upp nýjar þjónustustöðvar sem eru hannaðar með umhverfisstaðla
nýrrar aldar í huga. Má þar nefna umbúðalausa sölu á rúðuvökva,
frostlegi og smurolíu. Olís stefnir að því að endurvinna eða
endurnýta allt að 95% alls sorps sem fellur til við starfsemi
fyrirtækisins. Olís leggur einnig kapp á góðan aðbúnað og
og umhverfi starfsmanna sem tryggir öryggi, heilbrigði og vellíðan
þeirra. Olís hefur nýlega gefið út umhverfisstefnu
fyrirtækisins og liggur hún frammi
á þjónustustöðvum Olís.
Með umhverfisstefnu sinni
vill Olís stuðla að því að
hver kynslóð skili landinu
og auðlindum þess í betra
horfi til þeirrar næstu.
Nýjar þjónustustöðvar
Olís eru útbúnar til umbúðalausrar
sölu á rúðuvökva, frostlegi og smurolíu.
Stefna Olís
í umhverfismálum
liggur frammi
á næstu þjónustustöð
Olís.
Minna brennisteinsmagn
í dísiloliunni hjá Olís og ÓB dregur
úr útblæstri óæskilegra efna.
olís
léttir þér
lífíi