Brennidepill - 01.03.1998, Blaðsíða 17

Brennidepill - 01.03.1998, Blaðsíða 17
(fjölda starfandi nefnda á vegum viðkom- andi sveitarfélags) má sjá hlut hvers sveit- arfélagshóps fyrir sig.5 Líkt og sést á töflu 1 eru konur enn 32% bæjarstjórnarfulltrúa. Tímamótakosningarnar 1982, þar sem kon- um fjölgaði um 10% í bæjarstjórnum, voru því upphafið að jákvæðri þróun sem stóð hins vegar stutt yfir. Kosningaárið 1986 fjölgaði konum í bæjarstjómum verulega. Líkt og meðal kaupstaða hefur hlutur kvenna í hreppsnefndum kauptúna staðið í stað. Þetta hlutfall hefur staðið óbreytt í 24% milli kosninganna 1990 og 1994. Konum hefur hins vegar fjölgað lítillega í hrepps- nefndum minni hreppa milli kosninganna, voru 17% hreppsnefndarfulltrúa 1990 en eru nú rúmlega 21%. Fjölgun kvenna í sveitar- stjómum landsins í 25% má því að öllu leyti rekja til breytinga á kynjasamsetningu í hreppsnefndum minni hreppa. Sveitarstjómir þar sem engin kona sit- ur hafa í skilningi fræðikonunnar Drude Dahlerup verið kallaðar „Svartir blettir". Slíkum „blettum“ hefur fækkað með árun- um og eru nú rúmlega 19% allra sveitar- stjórna með enga konu í stjórn í stað 28% eftir 1990. Hins vegar eru tveir kaupstaðir án konu í bæjarstjóm í stað eins áður.6 Því má rekja fækkun á sveitarstjórnum án kvenna til breyttrar kynjasamsetningar sveitarstjóma (hreppsnefnda) meðal kaup- túna og minni hreppa. í þremur bæjum mynda konur hins vegar meirihluta í bæj- arstjóm en ná þó hvergi 60% hlut.7 í 27 bæj- um fara karlar þó yfir það hlutfall og í 7 af þessum bæjum nær hlutur þeirra að vera yfir 80% af fulltrúum í bæjarstjórninni. Þegar á heildina er litið er sveitarfélögum því áfram stýrt af körlum. Framboðshlutfall kvenna og kosning Samræmi á milli hlutfalls kvenna af fram- bjóðendum í bæjum og kjörnum bæjar- stjórnarfulltrúum hefur aukist líkt og sjá má á töflu 2. í því samhengi skiptir máli að í kosningunum 1994 voru færri konur í framboði en í kosningunum 1990. Eftir 1990 voru konur um tíu prósent fleiri sem frambjóðendur en sem kjörnir fulltrúar. í samræmi við þetta hafa karlar í báðum kosningum náð hlutfallslega betri kosn- ingu en frambjóðendahlutfall þeirra gefur til kynna. Þessi mismunur á hlutfalli fram- bjóðenda og kjörinna fulltrúa eftir því hvors kyns þeir eru dregur því upp mynd af því hvemig kynin raðast á framboðslistana. Af niðurstöðum tveggja síðustu sveitar- stjórnarkosninga má einnig sjá að þó kon- Tafla 2. Frambjóðendur, fulltrúar og varafulltrúar í hlutbundnum sveitarstjórnarkosningum 1990 og 1994 1990 Frambjóöendur 31 kaupstaöar Konur: 842 (41,2%) Karlar: 1201 (58,8%) 1994 Frambjóöendur 33 kaupstaöa konur: 785 (38,3%) Karlar: 1262 (61,7%) Fulltrúar 31 kaupstaöar Konur: 81 (31,5%) Karlar: 176 (68,5%) Fulltrúar 33 kaupstaöa Konur: 89(31,9%) Karlar: 190 (68,0%)

x

Brennidepill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brennidepill
https://timarit.is/publication/1061

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.