Brennidepill - 01.03.1998, Blaðsíða 3

Brennidepill - 01.03.1998, Blaðsíða 3
EFNISYFIRLIT Reykjavíkurborg: Þjónustufyrirtæki eöa skattaparadís? Viðtöl við leiðtoga beggja borgarstjórnaríylkinga Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Árna Sigfússon 4 Sveitarfélögin eflast við stækkun Hólmfríður Sveinsdóttir - „Eitt mesta vandamál íslenska sveitarstjórnarstigsins er misjafn íbúafjöldi sveitarfélaga og hvað mörg þeirra eru fámenn.“ 8 Sameining sveitarféiaga skiptir máli Hermann Sæmundsson - „Öflugri stjórnsýsla sveitarfélaga er ávísun á meiri skilvirkni og getu við úrlausn verkefna." 10 Reynslusveitarfélög Þórgnýr Dýríjörð - Tilraunir í stjórnsýslu 13 Ráöstefna á Sauðárkróki Ragnar Garðarsson - Sveitarstjórnarmál skoðuð í víðara samhengi 15 „Svörtum blettum" fer fækkandi Linda H. Blöndal - staða kvenna innan sveitarstjórna 16 Konur í sveitarstjórnir - ekki bara réttlætiskrafa Stefanía Traustadóttir - „Jafnréttisráð og seinna Skrifstofa jafnréttismála hafa frá upphafi lagt áherslu á að nauðsynlegt sé að auka völd og áhrif kvenna í stjórnmálum.“ 20 Brennidepiii Tímarit Félags stjómmálafræöinga. 1. árgangur 1998. Utgefandi: Félag stjórnmálafræöinga Ritstjórn: Auöunn Arnórsson, Bryndis Hólm, Magnea Marinósdóttir Auglýsinga- og styrktarlínusöfnun: Magnea Marinósdóttir Abyrgöarmaöur: Ragnar Garðarsson Hönnun/umbrot: Margrét Rósa Siguröardóttir Hönnun forsíðu: Guömundur Oddur Magnússon Forsíöuljósmynd: Golli Teikningar: Kjartan Arnórsson Prentun: Prisma / Prentbær. FRA RITSTJORN STJÓRN Félags stjórnmálafræðinga tók um það ákvörðun sl. haust að koma útgáfumálum sínum í þann farveg að árlega kæmi út eitt hefti af Brennidepli, en þið, lesendur góðir, haldið á fyrsta tölublaðinu. Eins og titillinn gefur til kynna er ætl- unin að þetta tímarit sé vettvangur fyrir faglega umræðu um eitthvert málefni sem er ofarlega á dagskrá í þjóðfélagsumræðunni hverju sinni og er nærtækt viðfangsefni stjórnmálafræðinga. Það lá beint við að helga þetta fyrsta hefti sveitarstjórnar- málum, með tilliti til kosninganna í vor, en annars er hugsunin að baki þessu riti sú að það geti verið vettvangur fyrir hvert það málefni sem félagið telur - með tilliti til aðstæðna hverju sinni - vert að „setja r' BrennidepiT'. Viðfangsefni stjórnmálafræðinga spannar vítt svið og því er af nógu að taka. Ef ekki hefðu verið kosningar t' nánd hefði til dæmis verið hægt að taka fyrir mál eins og Efnahags- og mynt- bandalag Evrópu (sem á að ganga í gildi um næstu áramót) og væntanleg áhrif þess á íslenzkt þjóðfé- lag, eða þá hvemig aðildin að Evrópska efnahags- svæðinu hefur reynzt. Og fjöldamargt fleira mætti tína til. En semsagt, nú voru sveitarstjórnarmálin tekin fyrir. Þar sem tvísýnt er um úrslit í kosning- unum til borgarstjórnar höfuðborgarinnar kusum við að spyrja oddvita beggja lista spjömnum úr um málefnin sem tekizt er á um. Auk viðtalsins við Reykjavíkur-oddvitana eru helztu áherzluatriðin í þessu riti tvö. Hið fyrra er sameining sveitarfélaga og flutningur verkefna til þeirra frá rr'kinu, en hitt er rammaefnið „konur og sveitarstjórnarmál“, þar sem þróun kynjaskiptingar í sveitarstjórnum lands- ins er rakin og krufin til mergjar. Það er von okkar, sem ritstýrðum þessu fyrsta hefti Brennidepils, að innihald þess veki lesendur til umhugsunar og veiti þeim jafnframt gott og upplýsandi yfirlit yfir stöðu mála á þessu sviði, sem varðar okkur öll. Við viljum þakka greinarhöfundum fyrir framlag þeirra, Kjartani Arnórssyni fyrir teikningar, svo og Margréti Rósu Sigurðardóttur fyrir umbrot blaðsins og Guðmundi Oddi Magnússyni fyrir hönnun á for- síðu. Auðunn Amórsson l.tbl. 1998 Brennidepin 3

x

Brennidepill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brennidepill
https://timarit.is/publication/1061

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.