Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 3

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 3
SVEITARSTJORNARMAL Tímarit um málefni íslenzkra sveitarfélaga. Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna. Utanáskrift: nSveitarstjórnarmál11, Tjarnargötu 10, Reykjavík. 5. ARGANGUR 1945 3.-4. HEFTI Stofnþing Sambands íslenzkra sveitarfélaga. I. Fundargerðir. 1. fundur. Ár 1945, mánudaginn 11. júní, var stofnþing sambands sveitarfélaga sett í sal neðri deildar Alþingis kl. 215 e. h. Tii stofnþingsins hafði verið boðað af undir- búningsnefnd, sem eftirlitsmaður sveit- arstjórnarmálefna, Jónas Guðmundsson, hafði stofnað til á þann hátt að óska þess, að bæjarstjórnirnar í Reykjavík og Hafn- arfirði legðu sinn inanninn hvor til þess að vinna með sér að þvi að koma á sam- bandi sveitarfélaga landsins. í nefndinni liöfðu starfað, auk Jónasar Guðmunds- sonar, Guðjnundur Ashjörnsson, forseti hæjarstjórnar Reykjavíkur, og Björn Jó- hannesson, forseti bæjarstjórnar Hafnar- l'jarðar. Þingið setti, fyrir hönd undirbúnings- nefndarinnar, Guðmundur Ásbjörnsson, bauð fulltrúa velkomna og lýsti tildrög- um og tilgangi samkomunnar. Undirbúningsnefnd þingsins hafði skip- að eftirtalda menn i kjörbréfanefnd: Björn Jóhannesson, forseta bæjar- stjómar Hafnarfjarðar, Hinrik Jónsson, bæjarstjóra í Vest- mannaeyjUm, og Ólaf B. Björnsson, forseta bæjarstjórn- ar Akraness. Form. kjörbréfanefndarinnar, Björn Jóhannesson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir áliti og tillögum nefndarinn- ar. Þessi sveitarfélög höfðu þegar til- kynnt, að þau mundu gerast þátttakend- ur að stofnun sambandsins: Reykjavik, Hafnarfjörður, Siglufjörður, Vestmannaeyjar, ísafjörður, Ólafsfjörður, Akureyri, Akranes, Neskaupstaður, Borgarneshreppur, Stykkishólmshreppur, Húsavíkurhreppur, Eskifjarðarhreppur, • Eyrarbakkahreppur, Keflavíkurhreppur, Búðahreppur (Fáskrúðsfj.) Hólshreppur (Bolungavik), Sauðárkrókshreppur, Grindavikurhreppur,

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.