Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Blaðsíða 10
56
SVEITARSTJÓRNARMÁL
getur átt, þar til þingið setur sér sjálft
fundarsköp.
Nefndir kýs þingið og deildir þess til
athugunar málefnum, sem fyrir liggja,
eftir því sem þurfa þykir.
10. gr. — Allar tillögur eða málefni,
sem fyrir þingið eru lögð, skulu fyrst
borin upp fyrir forsetum sameinaðs
landsþings og deilda þess. Ef málið varð-
ar öll sveitarfélög, skulu þeir ákveða, að
með það verði farið í sameinuðu þingi.
Varði málið hins vegar eingöngu sum
sveitarfélög, vísa forsetar því til meðferð-
ar þeirrar deildar, sem við á. Úrskurði
forseta má skjóta til sameinaðs lands-
þings.
11. gr. — Landsþingið hefur æðsta vald
í málefnum sambandsins.
Landsþingið setur stjórn og fulltrúa-
ráði starfsreglur. Það úrskurðar reikn-
inga sambandsins og tekur yfirleitt allar
ákvarðanir, er varða starfsemi þess og
skipulag. Sveitarstjórnir, sem óska, að
fyrir verði tekin á þinginu ákveðin mál,
skulu senda stjórn sambandsins tilkynn-
ingu um það eigi síðar en 2 vikum fyrir
þing.
b. Fulltrúaráð.
12. gr. — Fulltrúaráð sveitarfélaganna
skal kosið af Iandsþingi. Eiga í því sæti
20 menn úr hópi kjörinna þingmanna,
kosnir eins og hér segir:
Úr Austfirðingafjórðungi .. 2 menn
— Norðlendingafjórðungi . 4 —
— Vestfirðingafjórðungi . . 4 -—
— Sunnlendingafjórðungi . 10 —
Auk þeirra eiga sæti í fulltrúaráði þeir
5 menn, er skipa framkvæmdastjórn, og
er formaður hennar sjálfkjörinn formað-
ur fulltrúaráðsins.
•Við fulltrúakjörið skiptist þingið i
deildir eftir fjórðungum, og kjósa þing-
menn hvers fjórðungs þá tölu fulltrúa-
ráðsmanna, er fjórðungnum ber.
Varamenn skulu kosnir jafnmargir og
á sama hátt. Hlutfallskosningar skulu við-
hafðar við fulltrúaráðskjör, sé þess kraf-
izt af einhverjum fulltrúa fjórðungsins.
13. gr. — Fulltrúaráð skal vera stjórn
sambandsins til aðstoðar milli þinga. Það
heldur fundi, þegar stjórn sambandsins
telur þess þörf, þó eigi sjaldnar en einn
fund árlega. Skulu þar rædd þau mál, er
stjórnin leggur fyrir fulltrúaráð, og á-
lyktanir teknar um þau. Þar skulu og
rædd og ályktanir gerðar um þau mál-
efni, er fulltrúarnir bera fram eða óska
sérstaklega eftir, að fyrir séu tekin.
Stjórn sambandsins ákveður fundar-
slað og fundartima fulltrúaráðs og til-
kynnir meðlimum fulltrúaráðsins það
með hæfilegum fyrirvara.
c. Framkvæmdastjórn.
14. gr. — Framkvæmdastjórn sam-
handsins skipa 5 menn, formaður, vara-
formaður, ritari, féhirðir og aðstoðarfé-
hirðir og jafnmargir varamenn.
Stjórnarmenn skulu búsettir i Reykja-
vík eða svo nálægt Reykjavik, að þeir eigi
hægt með að ná sarnan til fundar með
tveggja sólarhringa fyrirvara.
15. gr. — Formaður skal kjörinn af
landsþingi sameinuðu, og er sá rétt kjör-
inn formaður, er flest fær atkvæði. Hinir
fjóriT stjórnarmenn skulu kosnir þannig,
að tvo kýs þingdeild kaupstaða og kaup-
túna, en aðra tvo kjósa fulltrúar hrepps-
félaganna, hvorir úr sínum hópi. Vara-
menn skal kjósa jafnmarga og á sama
hátt. Hlutfallskosningu skal viðhafa, sé
Jiess krafizt. Stjórnin skiptir sjálf með
sér verkum að öðru leyti.
1(). gr. — Stjórnin — sérstaklega for-
maðurinn — annast dagleg störf í l)águ
sambandsins. Stjórnin heldur fundi, þeg-
ar formanni þykir Jmrfa, þó eigi sjaldnar
en annan hvern mánuð. Hún ræður
starfsfólk í skrifstofu sambandsins, sér
um innheimlu tekna og annast reikn-
ingshald J)ess, svarar fyrirspurnum og
annast bréfaskriftir og kemur fram fyrir
sambandsins hönd, Jiegar með þarf, eftir
því sem við á.
Stjórnin gerir á landsþingi grein fyrir
starfsemi sambandsins milli þinga.