Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Page 12
58
SVEITAHSTJÓRNARMÁL
laganná, og felur J)ingið stjórninni að
koma J)eim tillögum á framfæri, þegar
endurskoðun útsvarslaganna fer fram.“
3. Eftirgreindum tillögum var vísað til
alhugunar fráinkvæmdastjórnar:
a. „Stofnþing Sambands ísl. sveitarfé-
laga telur þess brýna þörf, að bæjar- og
sveitarfélög skapi sér nýja tekjustofna
með víðtækum opinberum rekstri, þar
sem við verður komið, svo sem með
útgerð togara og vélbáta, verksmiðju-
rekstri til hagnýtingar íslenzkra afurða o.
s. frv., eftir því sem bezt hentar á hverj-
um stað.
. Felur þingið stjórn sambandsins og
fulltniaráði að vinna að framgangi ])ess-
ara mála, með þvi m. a. að aðstoða bæj-
ar- og sveitarfélögin með útvegun teikn-
inga, áætlana um stofnkostnað og rekstr-
arkostnað fyrirtækja o. s. frv.“
b. „Stofnþing Sambands ísl. sveitarfé-
laga skorar á fulltniaráð og fram-
kvæmdastjórn að vinna að því við Al-
þingi og ríkisstjórn að ganga ekki endan-
lega frá löggjöf mn framtíðartilhögun
rafmagnsmála landsins, áður en umsagn-
ar og álits þeirra um þau hefur verið leit-
að.“
c. „Stofnþing Sambands ísl. sveitarfé-
laga samþykkir að fela fulltrúaráði sinu
og framkvæmdastjórn að hlutast til um,
að hluti bæjar- og sveitarfélaga af ágóða
Áfengisverzlunar ríkisins verði 20% í
stað 5%, eins og nú er.“
d. Breytingartillögu við þessa tillögu
fulltrúa Vestmannaeyjakaupstaðar frá
Axel V. Tuliniusi, fulltrúa Hólshrepps, og
Valdimar Björnssyni, fulltrúa Keflavík-
urhrepps, svo hljóðandi:
„í stað orðanna: „hluti bæjar- og sveit-
arfélaga af ágóða Áfengisverzlunar rikis-
ins verði 20% í stað 5%, eins og nú er,“
komi: að 20% af heildartekjum ríkisins
af áfengis- og tóbakssölu renni til allra
bæjar- og sveitarsjóða á landinu. Skipt-
ist þessi fjárhæð eftir fólksfjölda í hverju
bæjar- og sveitarfélagi.“
e. f sambandi við 2. lið tillagna allsherj-
arnefndar flutti Óli Hertervig svo hljóð-
andi tillögu, sem samþykkt var að vísa
til fulltrúaráðs og framkvæmdastjórnar
sambandsins:
„Athuga skal sérstaklega, hvort ekki sé
rétt, að niður verði felldur úr útsvarslög-
gjöfinni að mestu eða öllu leyti réttur
sveitarfélaga til þess að krefjast skipting-
ar á útsvörum, en laka i þess stað upp
ný ákvæði um útsvarsskyldu í atvinnu-
sveit, ])ótl eigi sé heimilisfesta þar.“
Allmiklar og fjörugar umræður urðu
um tillögur ])essar, hverja um sig og i
heild, og greindi menn nokkuð á um ýmis
alriði.
Fundarstjóri tilkynnti dagskrá næsta
funda r.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slilið kl. 12 miðnættis.
5. fundur (13. júní).
Hófst kl. 10 árdegis. Fundarstjóri Sig-
urjón Jónsson, oddviti Seltiamárneshr.
Lesnar fundargerðir frá 3. og 4. fundi og
samþykktar athugasemdalaust.
Gengið til dagskrár:
lá. Jónas Guðmundsson, eftirlitsmaður
sveitarstjórnarmálefna, flutti mjög fróð-
legt erindi um endurskoðun sveitar-
stjórnarlaga. Lagði hann að erindislok-
um l'ram svo hljóðandi tillögu:
„Stofnþing Sambands íslenzkra sveitar-
félaga lýsir ánægju sinni yfir því, að haf-
in er endurskoðun sveitarstjórnarlag-
anna, og væntir þess, að því verki verði
lokið sem fyrst.
Stofnþingið lýsir yfir því sem sinni
skoðun, að fyllilega geti komið til álita
að leggja sýslurnar niður sem lið í sveit-
arstjórnarkerfinu, en taka í þeirra stað
upp fjórðunga eða fylki, sem fengju
meira vald i ákveðnum málefnum sveit-
arfélaganna en nú er hjá sýslunefndum
og bæjarstjórnum, og væri fylkjunum
stjórnað af fylkisþingum, sem til væri
kosið af sveitarfélögunum innan fylkis-
ins, og fylkisstjórnum, er þingin veldu.
Stofnþingið væntir þess, að þegar
frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga