Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Page 13

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Page 13
SVEITARSTJÓRNARMÁL 59 liggur fyrir, verði samtökum sveitar- stjórnarmanna gefinn kostur á að at- huga það og segja á þvi álit sitt, áður en það kemur fyrir Alþingi.“ Tillagan var samþykkt með samhljóða atkv. 1(5. Helgi H. Eiríksson hafði framsögu fyrir eftirfarandi nefndaryfirlýsingu og tillögu: „Nefnd sú, sem kosin var í tilefni af þeirri uppástungu Ólafs B. Björnssonar, forseta bæjarstjórnar Akraness, að sér- stakar nefndir yrðu starfandi í hinum ýmsu sveitarfélögum á landinu til að eiga frumkvæði að aukinni alhliða menning- arstarfsemi, hver á sínum stað, lýsir yfir þvi, að hún er hlynnt því, að til öflugrar starfsemi verði stofnað í þessu efni, og leggur því fram eftirfarandi tillögu: Þar sem sambandið hefur í lögum sin- um viðurkennt það nauðsyn og skyldu sína að hafa bætandi áhrif og afskipti af alhliða menningarmálum hinna ýmsu sveitarfélaga, beinir þingið þeim ein- dregnu tihnælum lil stjórnar sambands- ins og fulltrúaráðs, að það athugi, á hvern hátt megi bezt auka og tryggja viðgang slíks starfs á hinum ýmsu stöðum, t. d. með skipun fastra nefnda, eins og fram- sögumaður benti á, og leggi tillögur sín- ar þar um fyrir næsta landsþing." Tillagan var samþ. í einu hljóði. 17. Jónas Guðmundsson lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu: „Stofnþing Sambands islenzkra sveit- arfélaga samþykkir að beina þeirri á- skorun til væntanlegrar sambandsstjórn- ar, að hún alhugi, með hverjum hætti sé tiltækilegast, að komið verði upp í land- inu hæli fyrir vandræðafólk það, sem nú er á vegum sveitarstjórna heima í hrepp- um og kaupstöðum, en hælisvist eða fast athvarf fæst hvergi fyrir eins og sakir standa. Sérstaklega er stjórninni falið að at- huga vel, hvort ekki væri rétt, að sveitar- félögin kæniu sér upp í félagi hæli fyrir þetta fólk, t. d. á þeim grundvelli, að hvert sveitarfélag tryggði sér þar rúm fvrir einn eða fleiri menn og stæði undir stofn- kostnaði hælisins að þeim hluta. Stjórnin skili áliti i málinu á næsta landsþingi." Tillagan var samþykkt með samhljóða atkvæðum. 18. Frú Katrín Pálsdóttir, bæjarfull- trúi í Reykjavík, fékk levfi fundarins til þess að flytja tilmæli frá Mæðrastyrks- nefnd Reykjavíkur um ákvörðun barns- meðlaga. Lagði hún fram þessa tillögu: „Stofnþing Sambands íslenzkra sveit- arfélaga lýsir sig fylgjandi þvi, að meðal- meðlög séu samræmd um land allt og miðað við meðahneðlög í Reykjavik.“ Svo hljóðandi breytingartillaga kom fram frá Helga H. Eiríkssyni: „Stofnþing Sambands íslenzkra sveit- arfélaga felur stjórn sainbandsins og fulltrúaráði að taka til rækilegrar athug- unar, hvort ekki sé rétt, að meðalmeðlög séu samræmd um land allt og miðað við meðalmeðlög í Reykjavík.“ Breytingartillagan var samþykkt. Jónas Guðmundsson lýsti reglum um kosningar í stjórn og fulltrúaráð, er fara skyldu fram á næsta fundi. Fundarstjóri tilkynnti dagskrá næsta fundar. Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. rúml. 12 á hád. ; I ! I ! ; 6. fundur (13. júní). Hófst kl. 1% e. h. Fundarstjóri Björn Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar Hafn- arfjarðar. Lesin fundargerð 5. fundar og samþ. i e. hlj. Gengið til dagskrár: 19. Kosinn formaður sambandsstjórn- ar. Kosningu hlaut Jónas Guðmundsson, eftirlitsm. sveitarstjórnarmálefna, með 37 atkv. Björn Jóhannesson, forseti bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar, hlaut 1 atkv., og fimm seðlar voru auðir. 20. Álit og tillögur fjárhagsnefndar. Björn Birnir og Steinþór Guðmundsson gerðu grein fyrir störfum fjárhagsnefnd-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.