Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 17
SVEITARSTJÓRNAUMÁL
£
Komið var til Reykjavíkur kl. íiunlega
2 að nóttu.
Við þingslit hafði verið samþykkt að
fela riturum og fornianni sambandsins og
fundarstjóra að ganga frá gerðabók ui/n
síðasta fund og skýrslu um boðsferðirnar.
r
II. Avörp og ræður.
A. Þingsetning.
Ræða Guðmundar Ásbjörnssonar.
Háttvirta samkoma.
Tildrögin til þessarar samko.mu eru
þau, að eftirlitsmaður sveitarstjórnar-
málefna, hr. Jónas Guðmundsson, fyrrv.
alþm., skrifaði bæjarstjórnum Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar 25. jan. 1943 og
mæltist til þess, að þær veldu sinn mann-
inn hvor til þess að taka sæti í nefnd á-
samt honum, með það fyrir augurn að
koma á sambandi milli sveitarfélaga
landsins til eflingar hagsmunamálum
þeirra og ef verða mætti til þess að auka
skilning á gildi þeirra og þýðingu fyrir
þjóðfélagið.
Urðu bæjarstjórnirnar við þe.ssum til-
.mælum og kusu forseta sina, þá Guðm.
Ásbjörnsson og Björn Jóhannesson, lil
þess að taka sæti í nefndinni.
Nefndin tók svo til starfa í marzmán-
uði 1943 og hefur starfað öðru hverju
siðan með þeim árangri, sem nú liggur
fyrir þessari ráðstefnu.
Allur undirbúningur þessa máls hefur
verið meiri erfiðleikum bundinn vegna
þess, að hér er um nýmæli að ræða hjá
okkur, svo og vegna þess, að styrjöidin
hefur gert mjög erfitt að al'la ýmissa upp-
lýsinga um starfshætti slíkra sambanda
erlendis, sem hefðu mátt verða okkur til
leiðbeininga, þó að um alls ólíka stað-
hætti sé að ræða.
Þó að ég í upphafi gæti þess, hver
I.JÓSM. VIGF. SIGUIIfi.
Giiðmundtir Asbjörnsson, forseli bœjarstjórnar Hcykjauikur, selnr fyrsta þing
Sambands islcnzkra svcilarfclaga 11. júni 19'i5 í ncdrideildarsal Alþingis.