Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Blaðsíða 21
SVEITARSTJÓRNARMÁL (>7 I..TÓSM. VIGF. SIGUnG. Jónas Gtiðnumdsson eftirlitsmaðnr sveitarsljórnarmdlefna gefnr skijrslu um tildrög stofnunar samtiandsins. í milli og hvers konar rig. Þetta næst miklu betur, ef sambandið er eitt, en ef þau eru tvö, og sama er um alla fræðslustarfsemi þess, að hiin nýtist mun betur, sé um eitt samband að ræða. 011 þessi atriði samanlögð voru • svo þung á metunum h.já okkur, að við sann- færðumst betur og betur um það, eflir því sem við hugsuðum málið lengur og ræddum það meira, að rétt væri, að eitt samband yrði stofnað fyrir öll sveitarfé- lög landsins. Mér þykir ekki við eiga að víkja hér neitt sem heitir að einstökum greinum eða ákvæðum frumvarpsins. Þó vil ég að- eins segja fáein orð um 11. og 12. grein frumvarpsins, sem ég get búizt við, að einhverjum ágreiningi geti valdið, eins og ævinlega á sér stað, þegar verið er að skipa fulltrúum fyrir ýmsa landshluta. Eins og sést af greininni, er gert ráð fyrir því, að fulltrúaráðið skipi 10 menn úr Sunnlendingafjórðungi, 4 menn úr Vest- firðinga- og aðrir 4 úr Norðlendin^afjórð- ungi og 2 úr Austfirðingafjórðungi. Mörg- um mun nú sjálfsagt þykja hér ójafnt skipt, en til grundvallar þessari skiptingu liggur tvennt, bæði fólksfjöldinn og sveit- arfélagafjöldinn. Reykjavík og Sunnlend- ingafjórðungur með Vestmannaeyjum og Hafnarfirði er svo langtum fólksfleiri en hinir, að hjá því verður engan veginn komizt að taka tillit til þess við val í fulltrúaráðið. Eg er og þeirrar skoðunar, að fulltrúaráðsmönnum, Sem búsettir eru utan Reykjavíkur, verði að greiða bæði ferðakostnað og fæðispeninga, meðan þeir dvelja á fundum fulltrúaráðsins, annars verður fulltrúráðið gagnslaust með öllu, enda tæplega hægt að ætlast til þess, að menn leggi á sig löng ferðalög og dýr og alllanga dvöl fjarri heimahögum sínum án þess að fá kostnaðinn AÚð það greidd- an. Mín trú er það, að þegar fram í sæk- ir, muni það verða fulltrúaráðið, sem að öllum jafnaði kemur fram fyrir sam- bandsins hönd og segir álit sitt á þeim málum, sem sambandinu verður ætlað að fjalla um. Sjálf sambandsþingin, sem háð

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.