Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 31

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 31
SVF.ITARSTJÓRNARMÁL 77 III. Erindi flutt á stofnþingi Sambands ísl. sveitarfélaga 11.—13. júní 1945. Gunnar Viðar: Tekjuöflun bæjarfélaga. Háttvirta samkoma! Eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna hefur beðið mig um að segja hér nokkur orð um tekjuöflun bæjarfélaga. Ég taldi mér þetta skylt sem formanni niðurjöfn- unarnefndar höfuðstaðarins, og mér er það enda ljúft, því að hyggja mín er sú, að brátt muni koma að þvi, að þau mál muni þarfnast nokkurra úrlausna frá því, sem nú er. Eg mun því með nokkrum orð- um reifa þetta mál hér. Það mun öllum hér kunnugt, að tekju- öflun bæjarfélaganna var fyrir stríð kom- in’ í mesta öngþveiti. Tekjuþörf bæjanna jókst stöðugt, bæði af eigin tilverknaði og að tilhlutun ríkisvaldsins. Hins vegar eru og voru tekjustofnar þeirra fábreyttir og reyndust ekki nægilegir né nógu teygjan- legir fyrir hina vaxandi tekjuþörf. Stjórn- arskrá bæjar- og hreppsfélaga í tekjuöfl- unannálúm, ef svo mætti segja, er falin í 20. gr. laga nr. 12 31. maí 1927, sveitar- stjórnarlögunum. Sú grein hljóðar svo: „Tekjur sveitarsjóðs eru: 1. Útsvör. 2. Afgjald af fasteignum hrepps og upp- rekstrargjald. 3. Á'extir af innstæðufé og leigufé. 4. Hundaskattur. 5. Endurgjald á veittum sveitarstyrk frá þurfalingi sjálfum eða ættingjum hans. (i. Frá öðruin hreppum: a. endurgjald á veiltum þurfa- mannastyrk; b. endurgjald fyrir önnur viðskipli. 7. Óskilafjárverð. 8. Sektir eftir sættum eða dómum. 9. Gjald al' síldarveiði og ufsa með nót. 10. Gjafir eða aðrar óvæntar tekjur. Að vísu er í sveitarstjórnarlögunum hvergi minnzt á bæjarfélög, aðeins hreppsfélög, sem 20. gr. gildir fvrir, og svo sýslusjóði, sem sérreglur eru aftur fyrir. Þó verður að ganga út frá því, að 20. gr. gildi einnig fyrir bæjarfélög, því að hvergi eru annars staðar neinar regl- ur, sem gilda fvrir þau. Að vísu eru sér- lög fyrir hvern kaupstað, en þar er sýni- lega byggt á því, að tekjuöflunaraðferðir bæjanna séu þær sömu og hreppanna. Auk þess eru til lög nr. 69 1937, sem breytt er með lögum nr. 46 1938 og lög- um nr. 30 1939, sem bera tililinn: um tekjur bæjar- og sveitarfélaga og eftirlit með fjárstjórn bæjar- og sveitarstjórna.1) Að því er tekjuöflun snertir fjalla þau þó eingöngu um fasteignagjaldið. I. Langsamlega stærsti tekjustofn bæj- anna er útsvörin, sein jal'na ber niður „eftir efnum og ástæðum“. Við skuluin líta á þann skattstofn ofurlítið nánar. Að jafna beri niður eftir efnum og ástæðum, merkir vafalaust það, að jafna eigi niður eftir gjaldgelu manna, sem þá auðvitað ekki fer eftir því, hvað hver er með i vas- anum á augnablikinu, heldur eftir mögu- leikanum til þess að láta al' mörkum í bráð og lengd. Vafalaust er möguleikinn til þess að framkvæma þess háttar niður- jöfnun beztur í smáum hreppsfélögum, þar sem hver þekkir annars hagi, lniskap- arhætti, heimilisþyngsli og annað, sem máli skiplir um gjaldgetuna. Þ. e. a. s., þar getur inaður gerl sér nokkuð glögga grein fyrir gjaldstofninum, ]). e. ástæð- um þeirra, sem bera eiga gjaldið. Hitt getur menn aftur greint á um, hvern mun eigi að gera á gjaldi hinna einstöku gjald- 1) Nú lög uin fastt‘ignaskatt til bœjar- ou hreppsfélaga og Jöfnunarsjóð sveitartelaga.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.