Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 32

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Síða 32
78 SVEITARSTJÓHNARMÁL þegna, t. d. hvort gjaldið á að vera hlut- fallslegt miðað við gjaldstofninn eða stig- hækkandi pg þá hversu mikið. 1 bæjarfé- lögunum er aftur á móti erfiðara að gera sér grein fyrir hag hvers gjaldþegns og því erfiðara sem bæirnir verða stærri. Verður þá meir og meir að byggja á framtölunum lil tekju- og eignarskatts og þeim upplýsingum, sem skattayf- irvöldin geta aflað sér í sambandi við þau. í framkvæmdinni er það þá líka orð- ið þannig, að í bæjunum er beinagrindin í útsvörunum tekju- og eignarskattur, alls staðar stighækkandi, eftir því sem ég bezt veit. Nú leggur ríkið einnig árlega á tekju- og eignarskatt, sömuleiðis stighækkandi. Þó að nú i litsvörunum séu tekin ýmis til- lit, sem ekki eru tekin i tekjuskatti, og á sumuni hlutum teknanna tekið lausar og öðrum fastar af niðurjöfnunarnefndum en af skattanefndum eða skattstjórum, er það þó ljóst, að í höfuðatriðum er hér tvímennt á sama skattstofninum. Og ekki nóg með það. Bæirnir hafa, eins og eðli- legt er, orðið að notji útsvörin sem hinn hreyfanlega tekjustofn sinn. En þó að þetta væri vitað, hefur ríkið einmitt einn- ig framar öllu öðru notað tekju- og eign- arskattinn sem hinn hreyfanlega tekju- stofn sinn. Þannig kom það til, að á kreppuárunum fyrir stríðið voru ríki og bæjarfélög í stöðugu kapphlaupi um þennan tekjustofn, með vixlhækkunum á skatt- og útsvarsstigunum. Þó að við nú hér, þar sem uiri er að ræða þessi mál frá sjónarmiði tekjuöflunar bæjarfélaganna, sleppum því, að það er allsendis óviðun- andi frá sjónarmiði skattborgaranna, að tveir aðilar geti þannig hvor í sínu lagi ákveðið skattstiga svo háa sem þeim hent- ar, þá snertir hitt mjög fjárhag bæjarfé- laganna, að skattstofninn verður með þessu móti ótryggur. Eins og það er barnalærdómur í stærð- fræðinni, að 2-f-2==4, eins er hitt barna- lærdómur í skattamálum, að 2 + 2 þurfa alls ekki að vera 4. 2 -þ 2 geta kannske verið = 3, og það getur skeð, þegar til lengdar lætur, að það verði minna en 2. Þetta stafar ekki aðeins af því, að hneigð- in til beinna skattsvika vex eftir því, sein skattstigarnir verða hærri. Hitt verkar kannske allt eins sterkt, að mjög háir skattstigar skrúfa tekjuhæðina sjálfkrafa niður. Einstaklingur, sem hefur háar tekjur fvrir, leggur ekki á sig aukið erfiði fyrir það eitt að fá í hendur einhverja upphæð til að bera á milli ríkis- og bæj- arsjóðs. Fyrirtæki leggja ekki i nýjar framkvæmdir, sem aukin áhætta fylgir, ef ágóðavonin er gerð hverfandi lítil með of háum sköttum. Sömuleiðis hafa fyrir- tækin vaxandi hneigð lil þess að láta „fara i kostnað“, t. d. láta fara fram við- gerðir, sem ekki borga sig þjóðhagslega, en borga sig fyrir fyrirtækið sökum skatt- sparnaðarins, sem af því hlýzt. Eða þá að fyrirtækin taka á sig aukin útgjöld, sem koma einhverjum þeim í hag, sem lægri eru í tekjum, en þau vilja hlynna að. Þannig skefst toppurinn ofan af tekjun- um. Auk þess verða skattyfirvöldin linari í framkvæmd, jiegar skattarnir verða ó- hóflega háir. Það hefur alltaf reynzt örð- ugt að framkvæma lög, sem brjóta í bága við almenna réttarmeðvitund. Það var líka ljóst á kreppuárunum fyr- ir stríðið, að jiessi skattstofn var að bila. Háar tekjur sáust vart lengur. Ein af af- leiðingum þess var það, að nokkur of- vöxtur hljóp víða í hin svonefndu veltu- útsvör. Úr því að þau berast hér í tal, mætti e. t. v. spyrja: er velta fyrirtækis yfirleitt réttmætur skattstofn? Ef svo væri, að tekjuframtal hvers fyr- irtækis gæfi fyllilega rétta mynd af af- konni þess, væri það trauðlega verjandi að leggja á veltuútsvör almennt. Niður- jöfnunarnefndunum færi J)á nokkuð líkt og manninum, sem seldi hverja einingu af vöru sinni með tapi, en hagnaðist samt í heild með þessari röksemd: „det er Mængden, som gör det“. Annað mál er það, þó að gott og farsælt fyrirtæki, sem máske eitt og eitt ár reyndist hafa tilíölu- lega litlar eða engar tekjur, væri samt sem áður það árið látið bera sæmilegt út-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.