Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Qupperneq 35

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Qupperneq 35
SVEITARSTJÓRNARMÁL 81 við íslendingar höfum áður reynt. Af- leiðing þessa var óhjákvæmilega sú, að útsvarsstigarnir gátu lækkað og nálgazt það að vera verjandi. Ríkið gat og slakað á klónni gagnvart lægri tekjum, þó að það hins vegar hækkaði skattstigann á hærri tekjum. En þetta átli ekki við svo búið að standa. Árið 1942 voru samþykktar breyt- ingar á skattalögunum, þar sem m. a. frá- dráttarhæfni skatta og útsvara frá skatt- skyldum tekjuin var sleppt og auk þess skattstiginn á hærri tekjum, hinn svo- nefndi stríðsgróðaskattur, hækkaður gíf- urlega. Svo mikið var hann hækkaður, að ríkisvaldið sá ástæðu til að gera niður- jöfnunarnefndum óheimilt að leggja tekjuútsvar á þann hluta teknanna, sein umfram er 200 000 kr. Jafnframt náði þessi stríðsgróðaskattur lengra niður en svo, að nokkurri átt næði að tala um stríðsgróða, nefnilega niður í kr. 45 000 skattskyldar tekjur. Stríðsgróðaskattur- inn er auk þess orðinn svo hár á öðru hundrað þúsundinu, að niðurjöfnunar- nefndir hafa víða séð sig til neyddar að hafa útsvörin stiglækkandi, þegar þangað er komið. Nú er það að vísu svo, að bæjar- eða sveitarsjóður á þeim stað, sem stríðs- gróðaskatturinn er á lagður, fær 40% af honum. En þegar tekið er lillit til þess, að niðurjöfnunarnefndirnar hafa jafnan þurft að vera „stóri bróðir" i álagningu á lekjur, verður það þó 1 jóst, að með þessari löggjöf er þrengl að tekjuöflunarmögu- leikum bæjarfélaganna. A það má og benda, að sá bás, sem niðurjöfnunar- nefndum var með þessu markaður árið 1942, hefur síðan þrengzt til muna með lækkandi verðgildi krónunnar. Tvö hundruð þús. kr. eru raunverulega tölu- vert minni upphæð nú en þá. En ríkið hefur ekki látið sér nægja að taka af bæjarfélögunum réttinn til álagn- ingar á hátekjurnar. Nú er ríkið farið að nota miðlungs- og hærri borgaralegar tekjur sem hinn hreyfanlega skattstofn sinn. Svo var það í aðalatriðum með hinn svokallaða verðlækkunarskatl 1943 og viðaukaskattinn í ár. í góðæri því, sem hér hefur ríkt undan- farin ár, hefur þó ástandið verið nokk- urn veginn viðunandi. Þó að þungi beinu skattanna bæði á háum tekjum og lágum hafi verið mikill, og þó að undandráttur undan skatti sé vafalaust orðið almennara fyrirbæri hér en víða annars staðar, væri það máske of djúpt tekið í árinni að segja, að ástandið í þessum efnuni væri öldung- is óverjandi. En sennilega verðum við hráðum að fara að horfast í augu við þá staðreynd, að verðið á helzlu úflutnings- afurðum okkar fari að falla erlendis og að tími veltiáranna sé liðinn. Ef bæjarfé- lögin geta þá ekki dregið verulega úr út- gjöldum sinum, sem varla er við að hú- ast, má gera ráð fyrir mjög auknum út- svarsþunga, ef ekki verða gerðar gagn- ráðstafanir. Það er því vafalaust rétt af bæjarfélögunum að athuga nú þegar, hvaða möguleikar eru fyrir hendi i þess- um efnurn, og að reyna að ná samkomu- lagi við ríkisvaldið um eitthvert fyrir- komulag, sem báðir aðilar mættu við una. Kæmu þá að sjálfsögðu ýmsar leiðir til greina. Eg drap á það hér að framan, að eðlilegast væri, að sveitar- og bæjarfélög sætu ein að fasteignaskattinum. Sömu- leiðis minntist ég á það, að sennilega væru nokkrir ónotaðir möguleikar fólgnir i gangstétta- og holræsagjöldum og hlið- stæðum greiðslum. En vafalaust hrykki þetta þó skammt. Þriðja leiðin er sú, að rikið hliðri til við álagningu tekjuskalts- ins. Sannleikurinn er sá, að það, að út- svarsþunginn t. d. hér í Reykjavík varð ekki alveg óþolandi á kreppuárunum fyr- ir stríðið, kom til af því, að ríkisskattur- inn á félögum var tiltölulega lágur. Þó að skattstiginn væri nokkuð hár, voru skatt- arnir frádráttarhæfir. Auk ]>ess gátu l'é- lögin lagl allar tekjur sínar í varasjóð, og var þá helmingur þeirrar upphæðar und- anþeginn skatti. Þarna myndaðist ríflegt skattlaust bil, sem niðurjöfnunarnefnd- irnar gátu setzt að og urðu að setjast að. Gátu því þessi fyrirtæki borið rifleg úl-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.