Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 39
SVEITARSTJÓRNARMÁL
85
/ Hellisgerdi i Hafnarfirði i bodi bœjarstjórnar Hafnarfjarðar.
LJÓSM. VIGF. SIGURG.
nema hún skeri upp herör gagnvart hvers
konar siðleysi, sóðaskap og ókurteisi í
ýmsum myndurrt, svo i einkalifi sem al-
mennt. Vér vitum, að oss er svo áhóta-
vant í þessum efnum, að vér þolum eng-
an samanburð við aðrar menningarþjóðir.
Land vort er nú ekki lengur „langt frá
öðrum þjóðum“, eins og skáldið kvað.
Miklu fremur er það nú í þjóðbraut. Og
þér vitið allir, hver munur það var á
þessu fátæka landi að vera í þjóðbraut
eða á afskekktu afdalakoti. Þessi mikli
aðstöðumunur krefst því gerbyltingar á
siðum vorum og háttum bæði hið vtra
og innra.
Hér er ekki staður né stund lil að tí-
unda til hins ýtrasta allt það, er miður
fer og laga þarf. Aðeins fátt eitt skal
nefnt. Þér vitið, góðir fulltrúar, að
skemmtana- og félagslífi voru svo og allri
umgengnismenningu er mjög ábótavant.
Að byggingum, skipulagi og almennum
þrifnaði í hæjunum er það sömuleiðis. Þá
kannast margir við hina skefjalausu
skemmdastarfsemi unglinga og hálffull-
orðinna manna í stórum og smáum hæj-
um og þorpum. Það eilt út af fyrir sig er
sorgíegt tákn þess ástands, sem verður að
hæta með góðu eða illu. I þessu sambandi
má og minna á enn einn svartan hlett, en
það er, hve víða það er, sem salerni vant-
ar enn úti um sveitir landsins. Gagnvart
útlendingum er það ef lil vill eitt ömur-
legasta og átakanlegasta tákn um skort á
þrifnaði og siðmenningu í þeim efnum!
Það örfáa, sem hér hefur verið nefnt,
ætti að nægja til þess að minna þessa
virðulegu samkomu á mörg og nærtæk
verkefni, sem ekki þola neina bið á þess-
ari öld framfara, menningar og menntun-
ar. En þá er að gera sér þess grein í
hreinskilni og fullri alvöru, á hvern liátl