Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 40

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 40
86 SVEITARSTJÓRNARMÁL sé skynsamlegast að haga því starfi, sem hcr þarf að vinna. Skal ég þá í örfáum orðum skýra frá hugmynd minni um þetta efni: Eg' gat þess hér áður, að víða væri nokkuð unnið í áttina um þessi efni fyrir lilstilii einstaklinga og félaga. Á því eru ýmsir erfiðleikar, eins og ég gat um, m. a. vegna þess, að slíku starfi er hin mesta nauðsyn og styrkur að fá aðhald og stuðning frá æðri stöðum, þ. e. frá ráða- mönnum ríkis og bæja. Yfirleitt eiga ]>essi mál ekki mikils stuðnings að vænta úr þessari átt, og þá sízt nema á pappírnum eða að nafninu til. Þjóð vorri þarf aðmiða vel áfram í þess- um efnum, ef ekki á að verða af lands og lýða tjón. Hér er það sem oftar, að skiln- ingurinn er upphaf vizkunnar. Það er engu hægt um að þoka, ekkert hægt að laga, nema fólk skilji, að lagfæringar sé þörf. Það er því næsta mikilsvert, að þetta samband viðurkenni jiessa almennu nauðsyn og sluðli að skipulögðu starfi úti um hæi og byggðir landsins. Allar bæjarstjórnir og hreppsnefndir í hinum stærri sjóþorpum þurfa að skilja þetta og viðurkenna með því að hefja skipulags- hundið starf og styðja hvers konar við- leitni til samstarfs, — ekki aðeins að nafninu til eða til að þykjast, lieldur af alvöru og í einlægni. Mér hefur komið til hugar, að i hverju bæjarfélagi og stærri sjóþorpum væri skipuð 5 manna nefnd, sem sérstaklega hefði frumkvæði, hugleiddi, skipulegði og bæri fram ýmsar tillögur fyrir viðkom- andi hrepps- eða bæjarstjórn um þau mál- efni, sem næst liggur að leysa og mestu varða í þessum efnum og heyra hér und- ir. Þrír menn eða konur væru valdir til þessa starfs utan bæjarstjórna, en tveir innan hrepps- eða bæjarstjórna. Form. þessara nefnda hverrar fyrir sig ætti svo hverju sinni að mæta á sambandsfundum íslenzkra sveitarfélaga. Heima fyrir hefði hver nefnd nána samvinnu við alla aðila einstaklinga og félaga, sem vilja hyggja upp og veita viðnám i þessum efnum. Ég mun nú senn láta máli mínu lokið. Að sjálfsögðu mætti margt fleira segja um slíkt stórmál, en ég tel þess ekki þörf á þessu stigi málsins. Læt ég því nægja það, sem þegar hefur verið sagt í sem stytztu máli, til þess að koma því hér á framfæti við það samband, sem hér hyggst að hefja starf. Ég treysli á skilning þess og velvilja, með því að óska ])ess, að fundur- inn kjósi nú þegar 12 manna nefnd i málið til frekari athugunar og afgreiðslu, enda leggi nefndin álit sitt og tillögur fyrir fundinn, áður en honum slítur. Sé 1 maður l'rá hverju þeirra 9 bæjarfélaga í landinu og enn fremur 3 menn frá stærstu kauptúnum landsins. Hér er mikiS og margþætt verk að vinna, verk, sein hefur mikilvæga og markvissa þýðingu fyrir framtíð þjóðar- innar í heild, verksvið, sem slíkt allsherj- arsamband sem þetta getur ekki gengið fram hjá á vorri öld. Jónas Guðmundsson: Endurskoðun sveitarstjórnarlaganna. Góðir fundarmenn. Þetta verða aðeins fáir og lauslegir punklar um endurskoð- un sveitarstjórnarlaganna. En mér þykir rétt að gera þinginu grein fyrir því, að nefnd hefur starfað að þessari endur- skoðun nú um skeið, skipuð af Jóhanni Sæmundssyni, þegar hann var félags- málaráðherra. í henni eiga sæti auk mín þeir Gissur Bergsteinsson hæstaréttar- dómari og Tómas Jónsson borgarritari. Starf okkar gekk fyrst aðallega út á það að afla okkur sem beztra gagna um skip- un þessara mála í öðrum löndum og þá sérstaklega á Norðurlöndum. En af lög- um og reglugerðum einum verður ekki fyllilega séð, hvernig farið er að þvi að stjórna málefnum sveitarfélaga. Þar kem- ur til greina gömul hefð og ýmis fram- kvæmdaratriði, sem of langt yrði að rekja hér. Okkar hlutverk átti að vera: að fella í eina heild bæjarstjórnarlöggjöfina, því að til þessa hefur hver kaupstaður feng-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.