Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 44

Sveitarstjórnarmál - 01.09.1945, Side 44
90 SVEITARSTJÓRNARMÁL enda væru ömtin skyld. til liess bein- línis að hlaupa undir bagga með sveitarfélögum, sem rötuðu í fjár- hagsvandræði, áður en til kasta rik- isins kæmi.“ Nú er stefnl að þvi að skipa barna- fræðslunni einmitt á þennan veg, með því að stækka skólahverfin. Það gera bættar samgöngur og fleiri heimavistarskólar. Þetta og fleira bendir á, að sú stefna sé rétt, sem fer i þá átt að gera starfssvæðin stærri. En barnafræðslan tel ég, að eigi undir öllum kringumstæðum að heyra undir fylkin. Eftirlit með fjárhagsmálum sveitarfé- Iaga er eitt af þeim atriðum, sein sýnir bezt, hverl stefnir, því að sýslurnar. eru ekki einu sinni ábyrgar fyrir fjárhags- legum skuldbindingum sveitartelaganna. Og þó er það svo í sveitarstjórnarlögun- uin, að hreppar mega ekki takast á hend- um verulegar skuldbindingar nema með samþykki sýslunefndar. Hreppur, sein lendir í fjárþröng, fer ekki á sýsluna, og sýslan gerir engar ráðstafanir, heldur fer hann beint á rikið, — verður tekinn undir eftirlit hjá rikinu, sem verður svo að sjá um hann, og sýslan kemur þar hvergi nærri. Þetta sýnir einna liezt, hvernig sambandið er gersamlega slitið milli sýslu og sveitarfélags. „7. Rafmagnsmál og skipulagning á raforkukerfi eða kerfum innan amts- ins, í samráði við rafmagnseftirlit ríkisins. Er hér eitt allra mesta nauð- synjamál framtíðarinnar og fullkom- in þörf á, að þegar í upphafi sé skipulega og viturlega að þeim mál- urn unnið, enda sýnir reynslan, að flest núverandi þorp og byggðarlög eru of lítil til sjálfstæðrar raforku- framleiðslu. Þessa upptalningu læt ég nægja sem dæmi uin starfssvið amtsþinganna, og er þeim ætlað að leysa þessi mál í heild sinni fyrir hvert amt eða í samráði við næsta eða næstu ömt, ef heppilegra þætti. Eins og allir sjá, er hér um hrein sveitai’- félagamálefni að ræða, enda eiga þau og verða að vera höfuðgrundvöllurinn undir starfsemi amtsþinganna. Hitt vil ég þó einnig nel'na, að fyrir mér vakir og, að þessi skipting landsins i stórar hagsmunahcildir á einnig að geta orðið undirstaða að frekari skipulagn- ingu í þessum landshlutum, og hef ég það þá einkum í húga, að amtsþingin hefðu forgöngu um skipulagningu i at- vinnuháttum innan amtsins. Má þar fyrst nefna nýbýlahverfi, sem nú er mikið rætt um, að koma þurfi á fót, nýjar ver- stöðvar, iðnaðarframkvæmdir við hentug orkuver o. m. f 1., sem nauðsynlegt er, að komið sé upp eftir fvrir fram gerðum áætlunum. Það er og nauðsynlegt, að skapaður sé sterkur „höfuðstaður" í hverju amti, sem sé eins konar miðstöð amtsins í menningarlegu tilliti. Ýmsa staði mætti og gera að framleiðslubæjum í sérstökum greinum, þar sem svo stend- ur á, að einhver ákveðin atvinnugrein yfirgnæfir allt annað, líkt og nú er orðið um Siglufjörð og sildina. A slíkum stöð- um yrði amtsþingið að stuðla að því, að nauðsynleg skilyrði yrðu sköpuð, svo að atvinnureksturinn gæti vaxið þar upp. Það vil ég taka greinilega fram, að ég ætlast ekki til þess, að ömtin færu að ráðast sjálf i neinn slíkan atvinnurekst- ur, heldur ætla ég þeim aðeins að stýra skipulagningunni og hafa nauðsynlega forgöngu um málin.“ Þetta læt ég nægja úr þessari gömlu grein minni. Skoðanir minar hafa lítið brevtzt, miklu frekar styrkzt eftir því, sem ég hugsa þetta mál lengur. Og einmitt þessu síðustu ár hafa sveitarfélögin sjálf og jafnvel Alþingi farið óvitandi inn á þessa hraut. Austfirðingar t. d., sein á margan hátt eru verst settir af öllum landsfjórðungunum, hafa stofnað með sér fjórðungssamband á frjálsum grundvelli, sem tekur til heggja Múlasýslna að Aust- ur-SkaftafelIssýslu og kaupstaðanna Seyðisfjarðar og Norðfjarðar. Til hvers væru Austfirðingar að þessu, ef þeir fyndu ekki, að þeir eru vanmáttugir hver

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.