Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Síða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Síða 14
10 SVEITARSTJÓRNARMÁL Læknishjálpin er hæsti einstaki útgjalda- liðurinn kr. 7,8 millj. 1950. Greiðslur til lækna hafa þessi ár numið um réttum þriðj- ungi af öllum útgjöldum samlaganna. Eru þó greiðslur fyrir læknishjálp á sjúkrahús- um ekki taldar með í þessum lið, heldur með sjúkrahúskostnaði, og að sjálfsögðu held- ur ekki hin föstu laun héraðslækna, sem ríkissjóður greiðir. S/úkrahúskostnaðurinn er næst hæsti út- gjaldaliðurinn kr. 6,4 millj. 1950, eða 27% af öllum útgjöldum. Þessi liður myndi þó verða allmiklu hærri, ef sjúkrahúsin hér í Reykjavík gætu tekið við öllum sjúklingum, sem þess óska og þarfnast sjúkrahúsvistar, en fjöldi slíkra sjúklinga verður nú að liggja rúmfastur í heimahúsum langtímum saman. Fyrir sjúklinga greiða samlögin um ótak- markaðan tíma á meðan læknar telja þess þörf. Lyf/akostnaðurinn er þriðji hæsti útgjalda- liðurinn, og hefur hann hækkað úr 3,9 millj. króna, eða 24,8%, upp í 6,2 millj., eða 26,2%, á þessum fjórum árum. Lyfjakostn- aðurinn hefur þessi 4 ár numið því nær sömu upphæð og sjúkrahúsvist meðlimanna hefur kostað. Reglum um lyfjagreiðslur samlaganna \'ar breytt á s. 1. ári, 1951, þannig, að allmikið af lyfjum, sem samlögin áður greiddu að V4 hlutum, er nú ekki skylt að greiða nema að hálfu. Þeirrar skoðunar hefur talsvert orðið vart, manna á meðal, að hinar nýju reglur um greiðslu lyfja hafi í för með sér stórfellda skerðingu á hlunnindum þeim, sem samlög- in veita. Er því sérstök ástæða til að benda á, að svo er ekki. Lyfjagreiðslumar voru 1950 ca. 26% af hlunnindum samlagsmanna. Áætlað er að nýju reglurnar lækki útgjöld samlaga fyrir lyf um ca. 30% í mesta lagi frá því, sem verið hefði að reglunum óbreytt- um. Skerðingin á hlunnindum samlags- manna nemur því í hæsta lagi 7—8% og kemur í stað iðgjaldahækkunar, sem ella hefði orðið nauðsynleg. Alls hefur sjúkrahjálp sú, sem samlögin veita meðlimum sínum, kostað 23,7 millj. króna árið 1950 og hækkað um 8 millj. króna á þessum 4 árum. Ríkisframfærslan. Við þessa upphæð er rétt að bæta útgjöldum ríkisframfærslunnar fyrir sjúkrahúss- og hælisvist berklasjúklinga, geðveikra og annarra, sem haldnir eru alvar- legum langvinnum sjúkdómum. Þessi út- gjöld námu kr. 6,5 millj. 1947, 7,2 millj. 1948, 7 millj. 1949 og ca. 8,8 millj. króna 1950. Fyrir fyrstu 5 vikurnar greiða sjúkra- samlögin vegna sjúklinga, sem veikjast og falla undir framangreind lög. Samtals hafa því útgjöld sjúkrasamlaganna og ríkisframfærslunnar vegna sjúkrahjálpar numið 32,5 millj. króna árið 1950. Meðal- vísitala þess árs var 108V3 stig, en síðan hefur vísitalan farið ört hækkandi og útgjöldin aukizt af þeim sökum, auk þess sem ein- stakir útgjaldaliðir hafa hækkað langt um fram vísitölu, t. d. sjúkrahúsvist, ameríkulyf og fleira. III. Hvernig kostnaðurinn af almannatryggingum greiðist. Þegar lögin um almannatryggingar voru sett, var gert ráð fyrir, að kostnaðurinn við tr^'ggingarnar væri borinn af eftirtöldum að- ilum í þeim hlutföllum, sem hér segir: Rikissjóður Vs hluta. Sveitarsjóðir samtals Vé hluta. Hinir ttyggðu ca. Vs hluta. Atvinnurekendur ca. V6 hluta. Og voru ák\ræðin um framlög hins opinbera og iðgjöld hinna try'ggðu og atvinnurekenda við það miðuð. Hlutur ríkissjóðs og sveitarsjóða þ. e. um helmingurinn er fenginn með sköttum og út-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.