Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 17

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 17
SVEITARST J ÓRNARMÁL 13 Skýrslan sýnir, að iðgjöldin hafa hækkað úr kr. 4.00 á mánuði 1936 upp í kr. 25.00 á mán- uði í júní 1952. Hækkunin nemur því 525%, þ. e. iðgjöldin hafa rúmlega sexfaldast. Dag- gjöld fyrir sjúklinga á Landsspítalanum hafa á sama tíma hækkað úr kr. 6.00 upp í kr. 60.00, eða um 900% ef ekki er tekið tillit til skurðstofugjaldsins, en nokkru minna sé það reiknað með 1936. Hefur því þessi útgjalda- liður samlagsins því nær tífaldast á þessu tímabili. Tímakaup Dagsbrúnarmanna hefur einnig um það bil tífaldast á þessum árurn, þ. e. hækkað úr kr. 1.36 upp í kr. 13.86. Dagkaup- ið þó ekki hækkað hlutfallslega vegna stytt- ingar vinnudagsins. Þegar Sjúkrasamlag Reykjavíkur var stofn- að, 1936, þurfti Dagsbrúnarmaður að vinna tæpa þrjá tíma á mánuði til þess að greiða mánaðariðgjald til sjúkrasamlagsins. Nú þarf hann að vinna tæpa tvo tíma á mánuði fyrir iðgjaldinu. Árið 1936 nægði iðgjald fyrir 1V2 mánuð til þess að greiða dagsvist á Landsspítalanum. Nú þarf til þess iðgjöld fyrir 2V5 úr rnánuði. Cigarettur kosta nú 8—10 krónur hver pakki, þ. e. 40—50 aura hver cigaretta. Ið- gjaldið til S. R. er um 80 aurar á dag, þ. e. andvirði tveggja cigaretta. Sjúkiatiyggingin kostai því hvein meðlim 2 cigarettur á dag í iðgjöldum. 'Fn'ggingagjald fyrir kvæntan mann í Reykjavík til almannattygginganna er nú kr. 577.00 á ári, eða ca. 11 krónur á viku, og tekur sú trygging til konu og bama undir 16 ára aldri. Tímakaupið er nú kr. 13.86. Dagsbrúnannaður þarf því ca. 48 mínútur á viku til þess að vinna fyrir tryggingagjald- inu. Ef hann reykir 4 cigarettur á dag, kostar það a. m. k. kr. 1.60 á dag, eða kr. 11.20 á , viku. Vikuiðgjald til Tryggingastofnunarinn- ar er kr. 11.00. Framlag ríkissjóðs til Tryggingastofnunar- innar og sjúkrasamlaga nam árið 1950 kr. 21.5 millj. eða ca. 8% af rekstrarútgjöldum ríkissjóðs en þau voru það ár, kr. 265 millj. Er það svipað hlutfall og árin 1947—1949, en þó heldur lægra. Sé kostnaði ríkissjóðs vegna ríkisframfærsl- unnar ca. kr. 7.1 millj. bætt við, nemur upp- hæðin kr. 28.6 millj., eða 10.8% af rekstrar- gjöldum ríkisins. Framlög sveitarsjóða á öllu landinu til Tryggingastofnunarinnar og sjúkrasamlaga námu árið 1950 kr. 15 millj. eða ca. 15% af álögum útsvörum það ár, en þau voru kr. 101 millj. Árin 1947—1949 námu þessi útgjöld um 14.5% af útsvörunum. Sé áætluðum útgjöldum sveitarsjóðanna vegna ríkisframfærslu árið 1950, ca. kr. 1.7 millj. bætt við uppliæðina, nemur hún um kr. 16.7 millj., eða ca. 16.5%. Talið er að þjóðartekjurnar 1950 hafi num- ið um 1600 (1593) millj. kr. Framlög og iðgjöld til ahnannatiy'gginga, sjúkrasandaga og ríkisframfærslu námu það ár alls kr. 88.9 millj., þ. e. ca. 5.6% af þjóð- artekjunum. Er það nokkur minni hundraðshluti en ár- in 1947—1949, enda er árið 1950 fyrsta árið, sem halli verður á rekstri trygginganna. Forstjóri Tiy'ggingastofnunar ríkisins er Haraldur Guðmundsson. í tryggingaráði eiga nú sæti: Gunnar Möller form., Brynjólfur Stefánsson, Tlelgi Jónasson, Kjartan Ólafs- son og Brynjólfur Bjarnason.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.