Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 40

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 40
36 SVEITARST J ÓRNARMÁL samþykkt reikninga sinna, þá fengi sú ráðstöf- un heldur ekki staðizt. I 31. gr. laga nr. 26/1918 um bæjarstjórn er mælt fyrir um reikningagerð kaupstaðarins. Það ákvæði, sem liér skiptir máli, er í 2. máls- gr. 31. gr. laganna. Samkvæmt því úrskurðar bæjarstjóm reikninga bæjarins„og veitir gjalcl- kera kvittun.“ Þó að ekki væri lengra máli mælt um þetta, þá mundi í alla staði þvkja óeðlilegt, að gjaldkeri, sem jafnframt er bæj- arfulltrúi, veitti sjálfum sér kvittun, enda þótt hann gerði það ásamt öðrum bæjarfull- trúum. En þessarar röksemdar þarf ekki við hér svo sjálfsögð, sem hún virðist þó vera, því að 2. málsgr. 31. gr. laganna hefur enn svohljóðandi ákvæði: „Þó má enginn taka þátt í úrskurði, sem snertir þau bæjarstörf, er honum hafa verið sérstaklega á henclur falin.“ Hér er sýnilega átt við það, ef ein- hverjum bæjarfulltrúa hefur verið falið eitt- livert starf í þágu bæjarins. Hann rná ekki taka þátt í úrskurði um framkvæmd sína á því. Bæjarstjórn getur engu um það atriði þokað, enda geta fundarsköpin að sjálfsögðu ekki breytt ákvæðum laganna. Hér er svo farið, að einn bæjarfulltrúanna er jafnframt bæjargjaldkeri. Honum er með gjaldkerastarfinu falið mikilvægt starf í þágu bæjarfélagsins, auk bæjarfulltrúastarfsins. Ilann má því ekki taka þátt í úrskurði, er það starf snertir, eða nánar tiltekið um rækslu sína á því starfi, enda getur engu skipt í því efni, þótt liann hafi fengið annan mann til þess að vinna starfið eða gera reikninga varðandi það fvrir sig. Reikningagerðin og gjaldkerastarfið eru eftir sem áður á ábvrgð gjaldkerans, enda skiptir ekki máli í því efni hver liefur unnið starfið fyrir gjaldkerann. Samkvæmt framansögðu lítur ráðuneytið svo á, að hinn áfrýjaði úrskurður yðar, frá 9. marz 1951, sé andstæður gildandi réttar- reglum um atkvæðisrétt bæjarfulltrúa um mál, sem þá sjálfa varða, enda mun mega telja það grundvallarreglu íslenzks réttar, að enginn megi úrskurða í sjálfs síns sök. Frá þessari reglu virðist því aðeins verða vikið, að nægileg hermild sé til þess hverju sinni. En í máli því, sem hér er um að ræða, brest- ur slíka heimild. (Úrsk. 10. des. 1951.) FRÁ HÆSTARÉTTI. TI . . Arið 1931, mánudaeinn Um breytingu a ° lóðarieigusamningi. júm, var i Hæstaretti kveðinn upp dómur, er heimilaði breytingu á afgjaldi eftir lóð, þótt samningur um lóðarréttindin gerðu ekki ráð fyrir breytingu á afgjaldi. I Iákon Guðmundsson, hæstaréttarritari, greindi frá máli þessu í útvarpinu í þættinum „Frá Hæstarétti“ og fer frásögn hans hér á eftir: Ilofsós á Höfðaströnd hefur um langan aldur verið verzlunarstaður. Um 1860 átti stórkaupmaður, er Thaae hét, verzlunarstöð- ina þar. Hús verzlunarstöðvar þessarar stóðu þá og hafa síðan staðið í landi jarðarinnar Ilof á Höfðaströnd. Fyrir 90 árum eða hinn 30. október 1861 gerði þáverandi eigandi Ilofs Jakob nokkur Holm samning við umboðsmann Thaae um lóðarleigu fyrir verzlunarstöðina. Samkvæmt þessum samningi voru þá í verzlunarstöðinni 1 íbúðarhús og 4 verzlunarhús og veitti leigu- samningurinn eiganda stöðvarinnar lóðar- réttindi fyrir þessi hús og stöðina í lieild, en ekki var flatarmál hinnar leigðu lóðar greint í sanmingnum. Þá var og um það samið að þessum lóðarréttindum skyldu fylgja „til sífeldra nota héðan í frá“ eins og það er orð- að, ókevpis móttekja í landi Hofs, hagabeit fyrir hesta og kýr verzlunarstjóra og fvrir liesta verzlunarfólksins, spilda fyrir matjurta- garð, réttur til netalagna og ádráttur í Hofsá og við ströndina á tilgreindu svæði ásamt

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.