Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 42

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1952, Side 42
38 SVEITARST J ÓRNARMÁL Endurskoðun á skatta- og útsvarslögum. Á síðasta Alþingi var samþykkt svo hljóð- andi þingsályktun: „Alþingi ályktar að beina þeirri áskorun til ríkisstjórnarinnar, að hún beiti sér fyrir heild- arendurskoðun laga um skatta og útsvör, sem stefni að því, að lögfest verði heilsteypt kerfi skattamála, sem byggist á eðlilegri og sam- ræmdri tekju- og verkaskiptingu ríkisins ann- ars vegar og bæjar- og sveitarfélaga hins vegar. Sé jafnframt við það miðað að ofþyngja ekki einstaklingum, hjónurn, félögum og atvinnu- rekstri í opinberum gjöldum, try'ggt samræmi og jafnrétti við álagningu gjaldanna, sem var gerð 24. janúar 1911 hafi átt að gilda urn óákveðinn tíma fyrir þáverandi og síðari eig- endur verzluiiarstöðvarinnar. Þar sem réttur jarðeigandans til að segja upp lóðarnotum hafi þannig verið mjög takmarkaður, og nú óviss, þá verði ekki talið, að ákvæði samnings- ins um leigugjaldið hafi átt að binda leigu- sala um ófyrirsjáanlegan tíma. Honum hafi því verið heimilt, með hæfiíegum fvrirvara, að krefjast mats á leigunni. Eftir gildistöku laga nr .75/1917 þeirra, sem ég gat um áðan, geti 2. mgr. 2. gr. þeirra samkvæmt lögjöfn- un átt við um lögskipti kaupfélagsins og eig- anda Hofs. Og þar sem grunnleigan hafi verið ákveðin með löglegu mati, eigi eigaudi Hofs rétt til þess að fá kr. 1786 í ársleigu fyrir lóðarréttindi þau og hluunindi, sem leigu- málinn tekur til, meðan mat þetta sé í gildi. En í nefndu lagaákvæði segir, að krefjast megi á hverjum 10 ára fresti mats á lóðar- leigunni. mundi auðvelda eftirlit með því, að framtöl séu rétt. Lögð skal einnig áherzla á að gera skattalöggjöfina svo einfalda og auðvelda í framkvæmd sém frekast er unnt. Rannsókn og undirbúningi málsins sé liraðað svo, að ríkisstjórnin leggi frv. til laga um málið fyrir næsta reglulegt Alþingi." Svo sem álvktun þessi ber með sér er við það miðað að fram fari heildarendurskoðun í þessum efnum og er vissulega tími til slíks kominn. Verkefni það, sem fyrir liggur er margþætt og mjög umfangsmikið. Virðist tími sá, er rannsóknin og undirbúningurinn eiga að taka, skorinn nokkuð þröngur stakk- ur. Þess má þó geta, að í þessum málum liggja fyrir ýmis gögn og upplýsingar svo sem nefndarálit milliþinganefnda í útsvars- og skattamálum. Það er almenn skoðun og hefur við full rök að styðjast, að skattaálögur séu nú mjög úr hófi; skattakerfið sé allt of margbrotið og skatta- og útsvarsinnheimtan óhagkvæm og dýr. Virðist á þessu sviði vera líkur fyrir því, að unnt sé að gera þetta allt verulega einfald- ara, hagkvæmara og ódýrara. í annan stað er þess að geta, að verka- skipting á milli ríkisins og sveitarfélaganna er í mörgum tilfellum allt annað en eðlileg og því full þörf á, að hún sé einnig tekin til ýtarlegra athugunar í sambandi við endur- skoðun skattamálanna. Með tilliti til þessarar ályktunar skipaði ríkisstjórnin nefnd, er hafa skvldi með hönd- um endurskoðun þá, sem að framan getur, og ganga frá frv. um þessi efni. Nefndin er svo skipuð: Skúli Guðmundsson, alþm., form. Karl Kristjánsson, alþm. Kristinn Gunnarsson, hagfr. Sigurbjörn Þorbjörnsson, skrifst.stj. Tómas Jónsson, borgarritari. Nefndin hefur nú fyrir nokkru hafið störf og vinnur sleitulaust.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.