Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 3
SVEIT ARSTJ ÓRN ARMÁL
TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFELAGA
RITSTJORI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: jónas guðmundsson
Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavik.
22. ÁRGANGUR
3. HEFTI
Fulltrúaráðsf undur
Sambands íslenzkra sveitarfélaga 1962.
TAEGLULEGUR fundur fulltrúaráðs sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga fyrir árið
1962 var haldinn í fundarsal borgarstjórn-
arinnar í Reykjavík dagana 6. og 7. apríl
s.l.
Formaður Sambandsins, Jónas Guð-
mundsson, setti fundinn og stjórnaði hon-
um. Gat hann þess í upphafi, að tveir aðal-
fulltrúar hefðu boðað forföll, þeir Jón
Eiríksson oddviti Skeiðahrepps og Ólafur
Guðmundsson sveitarstjóri í Stykkishólmi,
en í stað þeirra væru komnir til fundarins
varamenn, Einar Halldórsson oddviti
Garðahrepps og Snæbjörn J. Thoroddsen
oddviti Rauðasandshrepps. Jóhannes Stef-
ánsson forseti bæjarstjórnar í Neskaupstað
gat ekki sótt fundinn sökum veikinda.
FULLTRÚAR.
Eftirgreindir fulltrúar sátu fundinn:
Stjórn sambandsins: Jónas Guðmundsson,
Tómas Jónsson, Stefán Gunnlaugsson,
Björn Finnbogason og Hermann Eyjólfs-
son.
Frá Sunnlendingafjórðungi: Auður Auð-
uns, Magnús Ástmarsson, Guðmundur Vig-
fússon, Stefán Jónsson, Sigurður S. Hauk-
dal, Hálfdán Sveinsson, Guðlaugur Gísla-
son, Sigurður Óli Ólafsson, Björn Dúason,
Einar Halldórsson.
Frá Vestfirðingafjórðungi: Birgir Finnsson,
Þórður Halldórsson, Snæbjörn J. Thor-
oddsen.
Frá Norðlendingafjórðungi: Guðmundur
Guðlaugsson, Karl Kristjánsson, Hermann
Þórarinsson, Jón Jónsson og auk þess Sig-
urjón Sæmundsson bæjarstjóri á Siglufirði,
fyrsti varamaður fjórðungsins.
Auk framangreindra fulltrúa sátu fund-
inn borgarstjórinn í Reykjavík Geir Hall-
grimsson, skrifstofustjóri borgarstjórans
Páll Líndal og borgarritari Gunnlaugur
Pétursson.
Ávarp borgarstjóra. Er formaður hafði lýst
fundarsókn tók til máls Geir Hallgrímsson