Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 4

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 4
2 SVEITARST J ÓKNARMÁL borgarstjóri. Bauð hann fundarmenn vel- komna til starfa í húsakynnum höfuðborg- arinnar og ræddi nokkur framfaramál sveitarfélaganna í landinu. Taldi borgar- stjóri, að æskilegt væri að endurskoða starfa- skiptingu milli ríkis og sveitarfélaga í land- inu með það fyrir augum að taka upp ein- faldari og hentugri stjórnarhætti. KJÖR FUNDARRITARA OG NEFNDA. Samkvæmt tillögum formanns var séra Sigurður S. Haukdal kjörinn fundarritari, og honum til aðstoðar var Unnar Stefáns- son fulltrúi sambandsins. Formaður lagði til, að kjörnar yrðu 5 fastar nefndir og var sú skipan samþykkt. Nefndir urðu þannig skipaðar: Allsherjarnefnd: Björn Finnbogason, Magn- ús Ástmarsson, Hermann Þórarinsson. Fjárhagsnefnd: Hermann Eyjólfsson, Auð- ur Auðuns, Hálfdán Sveinsson, Einar Hall- dórsson, Snæbjörn Thoroddsen. Almannavarnanefnd: Tómas Jónsson, Birg- ir Finnsson, Sigurður S. Haukdal, Björn Dúason, Karl Kristjánsson. Lánsstofnunar- og fjáröflunarnefnd: Jónas Guðmundsson, Guðmundur Vigfússon, Sig- urður Ó. Ólafsson, Þórður Halldórsson, Guðmundur Guðlaugsson. Tímarits- og útgáfunefnd: Stefán Gunn- laugsson, Guðlaugur Gíslason, Jón Jónsson, Stefán Jónsson. 20 NÝ SVEITARFÉLÖG GENGU í SAMBANDIÐ. Formaður sambandsins flutti skýrslu um störf sambandsstjórnar frá seinasta fulltrúa- ráðsfundi og er hún birt á öðrum stað í Jressu blaði. Eftirtalin sveitarfélög — alls tuttugu — höfðu gengið í sambandið á árinu: Eyrar- sveit í Snæfellsnessýslu, Staðarsveit í Snæ- fellsnessýslu, Suðurfjarðahreppur í V- Barðastrandarsýslu, Laxárdalshreppur í Dalasýslu, Reyðarfjarðarhreppur í S-Múla- sýslu, Þorkelshólshreppur í V-Húnavatns- sýslu, Skógarstrandarhreppur í Snæfellsnes- sýslu, Sveinsstaðahreppur í A-Húnavatns- sýslu, Fljótsdalshreppur í N-Múlasýslu, Hvítársíðuhreppur í Mýrasýslu, Skaga- hreppur í A-Húnavatnssýslu, Helgafellssveit í Snæfellsnessýslu, Svalbarðsstrandarhrepp- ur í S-Þingeyjarsýslu, Hlíðarhreppur í N- Múlasýslu, Múlahreppur í A-Barðastrand- arsýslu, Innri-Akraneshreppur í Borgar- fjarðarsýslu, Bæjarhreppur í Strandasýslu, Holtshreppur í Skagafjarðarsýslu, Hróars- tunguhreppur í N-Múlasýslu og Hrófbergs- hreppur í Strandasýslu. DAGSKRÁRMÁL. Reikningar sambandsins. Formaður lagði fram endurskoðaða reikninga sambandsins fyrir árið 1961 og var Jreim vísað til fjár- hagsnefndar. Fjárhagsáætlun sambandsins. Formaður lagði fram fjárhagsáætlun sambandsins fyr- ir árið 1962 og var henni vísað til fjárhags- nefndar. Tímaritið Sveitarstjórnarmál. Formaður taldi æskilegt að stækka tímaritið og gera það fjölbreyttara að efni. Málinu vísað til tímarits- og útgáfunefndar. Frumvarp til laga um almannavarnir. Sam- kvæmt ósk heilbrigðis- og félagsmálanefnda Alþingis lagði stjórnin fram á fundinum frumvarp til laga um almannavarnir. Var Jrví vísað til almannavarnanefndar. Sveitarfélagabanki. Formaður reifaði til- lögu, sem stjórnin flytur um Sveitarfélaga-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.