Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 9
SVEITARST JÓRNARMÁL
7
ekki talið sér fært að taka þeim boðum, á
liðnu ári, aðallega kostnaðar vegna.
Sveitarstjórnarþing á Ítalíu. Öðru hverju
berast sambandinu boð um að eiga fulltrúa
á meiri háttar þingum sveitarfélagasam-
banda annarra Evrópuríkja. A seinasta ári
tók stjórnin slíku boði með því að vara-
formaður sambandsins, Tómas Jónsson
borgarlögmaður í Reykjavík, gat komið
því við að sækja þing sveitarstjórnarsam-
bands Ítalíu, sem haldið var í borginni
Stresa dagana 14.—18. maí.
Tilnefning fulltrúa í nefndir.
Sambandsstjórnin hefur á árinu þurft að
tilnefna fulltrúa af hálfu sambandsins í
nokkrar nefndir, sem starfa innan þeirra
alþjóðasamtaka, sem sambandið er aðili að.
Komið var á fót innan Sveitarstjórnar-
þings Evrópu sérstakri fastanefnd til að
starfa milli þinga. Stjórnin samþykkti að
tilnefna formann sambandsins til að starfa
í þessari nefnd.
Innan sveitarstjórnarþingsins var sett á
laggirnar önnur fastanefnd til að fjalla um
svæðaskipulag í Evrópuríkjunum, en heild-
arskipulagning stórra landsvæða ryður sér
nú rnjög til rúms í þessum ríkjum. Stjórnin
tilnefndi Pál Líndal, skrifstofustjóra
Reykjavíkurborgar, í þessa skipulagsnefnd.
Innan Alþjóðasambands sveitarfélaga
(IULA) liefur verið sett á laggirnar sérstök
Evrópunefnd, sem í eru fulltrúar frá öllum
aðildarríkjum Evrópuráðsins til að þinga
um mál, sem varða málefni Evrópuríkjanna
sérstaklega. Stjórnin tilnefndi Gunnlaug
Pétursson borgarritara sem aðalfulltrúa og
Stefán Gunnlaugsson bæjarstjóra sem vara-
fulltrúa í nefndina, en í sérstaka fram-
kvæmdanefnd Evrópunefndarinnar Gunn-
laug Pétursson borgarritara.
Dagur Evrópu 7. marz.
Sambandinu bárust tilmæli frá Alþjóða-
sambandi sveitarfélaga um að gangast íyrir
sérstökum „degi Evrópu“ hinn 7. marz s.l.,
en þann dag var ætlunin að halda sem „dag
Evrópu" í öllum þeirn ríkjum, sem eru inn-
an Evrópuráðsins. Hafði slíkur dagur verið
haldinn í Hollandi á seinasta ári og var nú
ætlunin að taka hann upp í fyrsta skipti í
öllum ríkjunum. Stjórn sambandsins leitað-
ist við að verða við þessari beiðni og var öll-
um sveitarstjórnum send orðsending, þar
sem gerð var grein fyrir hinu víðtæka starfi
Evrópuráðsins og sveitarstjórnarþingsins og
til þess mælzt, að dagsins yrði að einhverju
minnst í sveitarstjórnum eða í skólum eða
á annan liátt, sem henta þætti. Þessi orð-
sending var send út í samstarfi við upplýs-
ingafulltrúa Evrópuráðsins, sem dreifði
samtímis handbók um starfsemi Evrópu-
ráðsins. Dagsins var getið í dagblöðum
Reykjavíkur og í nokkrum blöðum úti á
landi og hinn 7. marz blakti fáni Evrópu-
ráðsins í fyrsta skipti á húsakynnum borg-
arstjórnarinnar í Reykjavík við Austurvöll.
Um kvöldið flutti formaður sambandsins
stutt erindi í fréttaauka ríkisútvarpsins og
fjallaði það um samstarf Evrópuríkjanna
einkum á sviði sveitarstjórnarmála. Nokkr-
um dögum síðar, liinn 12. marz, flutti Per
Federspiel, forseti ráðgjafarþings Evrópu-
ráðsins stutt ávarp í fréttaauka útvarpsins
og talaði þar um samstarf Evrópuríkjanna.
Fyrirhugað er að halda dag Evrópu eftir-
leiðis fyrsta miðvikudag í marz.
Samstarf við ríkisstjórn
og Alþingi.
Á seinasta fulltrúaráðsfundi voru til um-
ræðu tvö stórmál sveitarfélaganna: Frum-