Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 26

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 26
24 SVEITARST JÓRNARMÁL 1960 með umsömdum breytingum (lækk- unum). Að öðru leyti eru breytingarnar í samræmi við það, sem um hafði samizt í Reykjavík. Tryggingastofnunin helur látið fjölrita samningana og sent þá samlögum þeim, sem hlut eiga að máli, ásamt gjaldskrá L. R. frá 1960. Framangreindir samningar gilda báðir írá 1. apríl 1962. Samanburður á verði lyfja. Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefur látið gera skrá um verð ýmissa samsvarandi lyfja í nokkrum lyfjaflokkum. Er skráin fyrst og fremst ætluð læknum til þess að auð- velda þeirn að átta sig á verðlagi hinna ýmsu lyfja. í formála segir m. a.: „Skráin sýnir ljós- lega, að stundum er mjög mikill munur á verðlagi samsvarandi lyfjá, og getur því miklu varðað um lyfjakostnað bæði sjúkl- ings og samlags, að ódýrari lyfin séu skrif- uð, frekar en hin dýrari, þegar ekki eru sérstakar ástæður til liins gagnstæða." Tryggingastofnunin liefur sent læknum og sjúkrasamlögum utan Reykjavíkur skrá þessa. Sjúkratryggingar í Finnlandi. í Finnlandi hefur liingað til ekki verið almenn opinber sjúkratrygging eins og annars staðar á Norðurlöndum. Nú hefur hins vegar nefnd, sem skipuð var af finnsku ríkisstjórninni, skilað áliti, og leggur hún til, að komið verði á opinberri tryggingu. Er gert ráð fyrir, að frumvarp þess efnis verði lagt fram á þingi. Samkv. tillögunum skulu sjúkratryggð- ir allir Jreir, sem búsettir eru í Finnlandi. Gert er ráð fyrir, að tryggingunni verði komið á í Jrremur áföngum á árunum 1964 — 1969. Áætluð útgjöld, þegar lokið verður síðasta áfanga, nema 14,9 milljörðum marka á ári. Af þeirri fjárhæð er hinum tryggðu ætlað að bera 7,9 milljarða, at- vinnurekendum 3,4 milljarða og ríki og sveitarfélögum 1,8 milljarða marka hvor- um. Veikindavottorð. Ekki er fátítt, að óánægjuraddir heyrist vegna læknisvottorða, sem krafizt er af vinnuveitendum og tryggingum í sjúk- dóms- og slysaforföllum starfsfólks, en slíkum vottorðsgjöfum hefur fjölgað mjög eftir að margir hafa öðlazt rétt til launa í 14 daga eða lengur. Virðist óánægju þessarar gæta hjá öllum þeim aðilum, sem hlut eiga að máli, þ. e. læknum, launjreg- um, vinnuveitendum og tryggingaraðilum. Sömu sögu er í þessu efni að segja frá Danmörku. Þar riðu sjúkratryggingarnar á vaðið, svo að nú er að jafnaði ekki kraf- izt læknisvottorðs fyrr en eftir 14 daga veikindi. Á öðrum sviðum gekk hins vegar erfiðlega að koma á hliðstæðum breytingum vegna trúarinnar á læknisvottorðin. Danska læknafélagið hefur nú látið til skarar skríða, hefur látið gera ný eyðublöð fyrir slík vottorð, en bannað notkun ýmissa eldri eyðublaða. Ekki má heldur gefa veikinda- vottorð fyrr en á 4. veikindadegi. Er það von læknafélagsins, að með þessu móti notist bæði opinberir aðilar og vinnuveit- endur meira en áður við drengskaparyfir- lýsingar eða annað eftirlit án Jress að lækn- um sé blandað í málið.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.