Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 5
SVEITARST J ÓRNARMÁL
3
banka íslands. Tillögunni var vísað til
lánsstofnunar- og fjáröflunarnefndar.
Fjárútvegun til varanlegrar gatnagerðar.
Formaður fylgdi málinu úr hlaði. Því var
síðan vísað til lánsstofnunar- og fjáröflun-
arnefndar.
Bókhald sveitarfélaga og endurskoðun sveit-
arsjóðsreikninga. Formaður mælti fyrir til-
lögu, sem stjórn sambandsins flutti um það
efni. Var henni vísað til allsherjarnefndar.
Aukaframlag til Alþjóðasambandsins.
Stjórnin lagði fram tillögu um að veitt
yrði sérstakt framlag til eflingar starfsemi
Alþjóðasambands sveitarfélaga í nýjum
ríkjum Afríku og Asíu.
ÖNNUR MÁL.
Undir þeim dagskrárlið kvaddi enginn
sér hljóðs og var fundi þá frestað til
kl. 13 á laugardag. Kl. 16 þennan dag
var fulltrúum boðið að sjá í Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur kvikmynd um almanna-
varnir og útskýrði borgarlæknir, Jón Sig-
urðsson, myndina.
ÁLYKTANIR FUNDARINS.
I. Frá fjárhagsnefnd. Framsögu hafði Hálf-
dán Sveinsson.
1. Nefndin lagði til, að reikningur sam-
bandsins fyrir árið 1962 yrði samþykktur
og var það gert.
2. Nefndin lagði til, að fjárhagsáætlun
fyrir árið 1962 yrði samþykkt með þeirri
breytingu að greiddur yrði ferðakostnaður
stjórnarmanna og sá liður hækkaður um
kr. 3000,00. Samþykkt.
3. Nefndin lagði fram svofellda tillögu
um sérstakt framlag til Alþjóðasambands-
ins: „Fulltrúaráð Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga samþykkir að heimila stjórn sam-
bandsins að veita sérstakt fjárframlag til
eflingar starfsemi Alþjóðasambands sveitar-
félaga í hinum nýju ríkjum Afríku og
Asíu sem svarar 35% af árgjaldi sambands-
ins til IULA eða um ísl. kr. 2000,00.“ Til-
lagan var samþykkt.
II. Frá tímarits- og útgáfunefnd. Fram-
sögu hafði Guðlaugur Gíslason.
1. Nefndin hefur athugað reikning Sveit-
arstjórnarmála fyrir árið 1961 og leggur til
að hann verði samþykktur.
2. Nefndin leggur til að fjárhagsáætlun
Sveitarstjórnarmála fyrir árið 1962 verði
samþykkt eins og hún liefur verið lögð
fram.
3. Nefndin leggur áherzlu á, að útgáfu
tímaritsins Sveitarstjórnarmál verði haldið
áfram og það aukið að efni til, ef tök eru á.
4. Nefndin ítrekar tillögufráseinastafull-
trúaráðsfundi varðandi útgáfu sérrita um
einstök þýðingarmikil mál sveitarfélaga og
telur brýna þörf á slíkri útgáfustarfsemi
nú með tilliti til margþættra breytinga, sem
orðið hafa á ýmsum lögum, sem varða
sveitarfélögin sérstaklega. Nefndin telur
æskilegt að öll sérrit verði gefin út í sama
formi.
III. Frá allsherjarnefnd. Framsögu liafði
Magnús Ástmarsson.
1. Nefndin hafði enga athugasemd að
gera við skýrslu formanns.
2. Nefndin lagði fram eftirfarandi tillögu
um bókhald og endurskoðun sveitarsjóðs-
reikninga:
„Fundurinn felur stjórn sambandsins að
leita samvinnu við félagsmálaráðuneytið
um hvernig framkvæmd verði ákvæði 48 —
54. gr. sveitarstjórnarlaganna um bókhald
og reikningsskil sveitarfélaga þegar þau
ákvæði koma til framkvæmda.
Ennfremur felur fundurinn stjórn sam-