Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Blaðsíða 18
16
SVEITARST JÓRNARMÁL-
Myndin er a£ Sundlaug1 Vesturbæjar í
Reykjavk, sem nú hefur verið tekin í notk-
un. Hún er 12x25 metrar að stærð, en
út frá aðal sundlaug er grunn vaðlaug ætl-
uð börnum og er sá hluti laugarinnar eink-
ar vinsæll nú í sumarhitunum. í húsinu
eru búningsherbergi, gufubaðstofa og hvíld-
arherbergi. Umhverfis laugina eru hellu-
lagðar gangstéttir og grasflöt til sólbaða.
Sundlaugin er öll hin nýtízkulegasta og
mun fullgerð kosta um 9 milljónir króna.
núna við það, að útsvörum ríkisstofn-
ana og olíufélaga er breytt í landsút-
svör, er sett það bráðabirgðaákvæði í
lögin, að á árunum 1963—1965 sé ráð-
herra heimilt að verja fé úr Jöfnunar-
sjóði til þess að bæta sveitarfélögum að
nokkru eða öllu leyti þann halla, sem
þau kunna að bíða vegna ákvæðanna
um landsútsvör, ef hallinn er verulegur
fyrir sveitarfélagið og útsvarsbyrði þess
til muna meiri en almennt gerist.
★
Hér hefur þá verið drepið á helztu atrið-
in í hinum nýju tekjustofnalögum, sérstak-
lega með tilliti til framkvæmda þeirra nú
í ár. Svo sem vænta mátti geta lögin ekki
komið að fullu til framkvæmda fyrr en á
árinu 1963, þar sem undirbúningur allur
tekur nokkurn tíma, enda enginn ávinn-
ingur að því að hraða um of framkvæmd
slíkrar löggjalar sem þessarar, sem svo mjög
snertir hvern gjaldanda til sveitarsjóðs. Við
næstu áramót á að mega vænta þess að
öllum undirbúningsstörfum verði lokið og
lögin komi að fullu til framkvæmda frá og
með upphafi ársins 1963.
J. G.