Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Qupperneq 8
6
SVEITARST J ÓRNARMÁL
Skýrsla formanns
á fulltrúaráðsfundi Sambands íslenzkra sveitarfélaga
6. apríl 1962.
T~iRÁ því síðasti fundur í fulltrúaráðinu
var haldinn, dagana 7.—11. febrúar
1961, hafa tuttugu sveitarfélög óskað eftir
aðild að Sambandi íslenzkra sveitarfélaga.
Er það meiri fjölgun en verið hefur áður
á einu ári í síðari tíð. Er þetta að nokkru
leyti árangur af bréfi, sem sent var til odd-
vita þeirra sveitarfélaga, sem ekki voru í
sambandinu, ásamt handbók um starfsemi
sambandsins, sem gefin var i út snemma á
seinasta ári. Stjórn sambandsins hefur sam-
þykkt upptökubeiðni þessara sveitarfélaga,
en landsþing, sem haldið verður á næsta ári,
þarf að staðfesta aðildina.
Sveitarfélögin, sem gerzt hafa aðilar að
sambandinu, eru talin upp í fundargerð
fulltrúaráðsfundarins.
í sambandinu eru nú 13 kaupstaðir og
148 hreppsfélög af 214 á öllu landinu.
Eru þá enn utan samtakanna 66 hreppar
og ber að vinna að því, að Jreir gangi í
sambandið og væri æskilegt, að öll sveit-
arfélög landsins yrðu orðin aðilar að því
fyrir næsta landsþing.
»
Samskipti við erlend sveitar-
félagasambönd.
Samskipti við sveitarstjórnasambönd
annarra ríkja og Alþjóðasamband sveitar-
félaga er vaxandi þáttur í starfi sambands-
ins.
Alþjóðasamband sveitarfélaga (IULA) hélt
jjing sitt í Washington dagana 12.—14. júní
1961. Fyrirhugað var, að formaður sam-
bandsins sækti þingið, en af ]m gat ekki
orðið sökum veikinda.
Sveitarstjórnarþing Evrópu hélt fjórða fund
sinn í Strassborg dagana 21.—24. marz s.l.
Til fundarins fóru af hálfu sambandsins
þeir Stefán Gunnlaugsson bæjarstjóri x
Hafnarfirði, tilnefndur af utanríkisráðu-
neytinu, og Páll Líndal skrifstofustjóri
borgarstjórans í Reykjavík, tilnefndur af
boigarstjórn Reykjavíkur, en foimaður
sambandsins, sem einnig á sæti á þinginu,
gat ekki komið jrví við að sækja fundinn
af sömu ástæðu og fyrr greinir. Sveitar-
stjórnarþingið er nú orðin föst og viður-
kennd stofnun, sem mun halda fundi ann-
að hvert ár framvegis.
Noriæna sveitarstjórnarnámskeiðið árið
1961 var haldið í bænum Tammerfors í
Finnlandi dagana 24. til 30. júlí. Var um
Jretta tilkynnt í Sveitarstjórnarmálum, en
enginn sveitarstjórnarmaður gaf sig fram,
sem hefði áhuga á að fara á námskeiðið.
Landsþing norrænu sveitarfélagasamband-
anna. Árlega berast sambandinu boð um
að senda fulltrúa á jrau, en stjórnin hefur