Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Síða 16

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Síða 16
14 SVEITARST JÓRNARMÁL skattstjóra skýrslu um samanlögð útgjöld sín vegna starfseminnar samkvæmt a- og b-lið hér að framan, innan loka framtals- írests, ella áætlar skattstjóri útgjöldin að fenginni umsögn framtalsnefndar eða hreppsnefndar. Þegar sveitarstjórn hefur akveðið að nota heimild laganna um innheimtu aðstöðu- gjalds, skal hún tilkynna skattstjóra þá ákvörðun sína og láta honum samtímis í té upplýsingar um, hversu hátt gjald þetta skuli vera af hverri tegund atvinnurekstrar sem talin er hér að ofan (sbr. 10. gr. lag- anna). Tilkynning til skattstjóra skal send eigi síðar en 15. febrúar ár hvert. Þegar skattstjóri hefur lokið álagningu aðstöðugjalds, semur hann skrá um að- stöðugjald í hverju sveitarfélagi og sendir hana þegar til sveitarstjórnar, sem inn- heimtir gjöldin. Undanþegnir aðstöðugjaldi eru þeir, sem um ræðir i 29. gr. laganna, svo og skólar, barnaheimili, sjúkrahús, elliheimili, orku- ver til almenningsþarfa, sláturhús, mjólkur- bú og olíufélög, sem greiða landsútsvar. Á árinu 1962 skulu skattanefndir og skattstjórar, þar sem þeir eru, en ekki nið- urjöfnunarnefndir, leggja á aðstöðugjald, og skal gjaldið miðað við útgjöld, efnis- og vörukaup svo og fyrningarafskriftir á ár- inu 1961. Tilkynningu þá um álagningu aðstöðugjalds, sem getur í 13. gr. laganna, skal senda skattanefnd eða skattstjóra eigi síðar en 1. júlí 1962. Gjalddagi aðstöðu- gjalds er í ár 1. september. 3. Landsútsvar. Til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga rennur nú eins og áður i/5 hluti söluskatts, sem innheimtur er til ríkissjóðs samkvæmt laga- ákvæðum þar um, og enníremur hin svo- nefndu landsútsvör. Landsútsvör greiða: a. Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins og Sölunefnd varnarliðseigna. b. Síldarverksmiðjur ríkisins, Áburðar- verksmiðjan, Sementsverksmiðja ríkis- ins, Viðtækjaverzlun ríkisins, Lands- smiðjan og Ríkisprentsmiðjan Guten- berg. c. Olíufélög, sem flytja inn olíu og olíu- vörur og annast sölu þeirra og dreif- ingu innanlands. Ekkert þessara íyrirtækja eða stoínana er því lengur heimilt að skattleggja til sveit- arsjóðs í heimilissveit né þar sem útibú þeirra eru. Landsútsvör greiðast til Jöfnun- arsjóðs, þ. e. lelagsmálaráðuneytið inn- heimtir þau. Landsútsvör skiptast þannig, að 14 hluti útsvars hvers fyrirtækis rennur í sveitarsjóð þar sem tekjur fyrirtækisins eða stofnunar- innar falla til, en 3/ hlutar renna í Jöfn- unarsjóð og er skipt þaðan milli sveitar- félaga á sama hátt og tekjum sjóðsins af söluskatti. Á árinu 1961 nam íramlag úr Jöfnunar- sjóði 400.00 kr. á íbúa og var samtals kr. 69.954.357.00. Nú má gera ráð fyrir hækk- un á þessu framlagi svo það nemur senni- lega nú í ár 90—95 millj. króna. Framlag Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga greiðist þrisvar á ári, 15 maí, 15. október og 15. janúar. Jöfnunarsjóður er í vörzlu fé- lagsmálaráðuneytisins, sem hefur á hendi allt reikningshald hans og annast úthlutun framlaga til sveitarfélaganna. 4. tJtsvör. Auk þeirra tekjustol'na, sem taldir hafa verið hér að framan, koma svo útsvörin.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.