Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.07.1964, Qupperneq 3

Sveitarstjórnarmál - 01.07.1964, Qupperneq 3
SYEITAKSTIÓRNAKMÁL 24. ÁRGANGUR 3. HEFTI TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA ÚTGEFANDI: samband íslenzkra sveitarfélaga ritstjori OG ÁBYRGÐARMAÐUR: jónas guðmundsson Utandskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavik. a Breytingar tek j ustof nalögunum 1964 A seinasta landsþingi Sambands íslenzkra sveitarfélaga voru bornar fram margar til- lögur um breytingar á tekjustofnalögunum frá 1962. Þær voru allar sendar nefnd, sem ráðuneytið lét fjalla um tekjustofna- lögin, og var álit þeirrar neíndar ásamt frumvarpi lagt lyrir Alþingi i aprílmánuði og var það algreitt sem lög 9. maí s.l. Höfuðbreytingarnar, sem nú voru gerðar á tekjustofnalögunum, eru þessar: 1. Reglunum um álagningu útsvaranna er breytt í meginatriðum. í stað afsláttar af útsvari vegna ljölskyldustærðar er nú ákvæði um frádrátt frá tekjum til sam- ræmis við þau ákvæði, sem gilda um tekj uskat tsálagn i ngu. 2. Gjaldþrepum, sem áður voru átta, er fækkað í tvö, svo álagning verður auð- veldari og einfaldari í framkvæmd. 3. Aðstöðugjaldi af fiskiðnaði er breytt úr lj/2% í 1%. og viðmiðun aðstöðugjalds við veltuútsvör á árinu 1961 er numin úr gildi í áföngum á þremur árum, þann- ig að hundraðshluti jress má hækka um þriðjung hvert ár 1964, 1965 og 1966. 4. Ákvæðum 45. gr. laganna um heimild fyrir sveitarstjórnir (framtalsnefndir) til að leggja á útsvör án milligöngu skatt- stjóra, er gerð miklu víðtækari en áður var, jjannig að nú er öllum sveitarstjórn- um að meðtöldum bæjarstjórnum, heim- ilt að framkvæma álagninguna sjálfar. Ekki er ástæða til að fjölyrða um Joessar breytingar. Veigamest er aðsjálfsögðu breyt- ingin á álagningarreglunum, en ekki verður um það sagt, hvort hún er til bóta eða ekki, fyrr en reynsla er jrar um fengin. Með hinni auknu heimild sveitarstjórna til að leggja sjálfar á útsvörin í stað skattstjóra er í verulegu atriði horfið frá Jteirri stefnu, sem mörkuð var 1962. Hér lara á eltir þær greinar tekjustofna- laganna, sem breytt var og eru breytingarn- ar teknar upp í greinarnar, svo Jrær eru nú hér eins og Jrær verða í lögunum, þegar þau verða gefin út í heild aftur, en Jjað ber SVEITARSTJÓRNARMÁL L

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.