Sveitarstjórnarmál - 01.07.1964, Blaðsíða 7
r
Þróunarsvæði á Islandi
• •
„Onnur borg
er eina mótvægið, sem getur dugað."
Valdimar Kristinsson
Erindi það, sem Valdimar Kristinsson, viðskipta-
fræðingur fiutti á fundi fulltrúaráðsins 28. febr.
s. 1. „Þróunarsvæði á íslandi" hefur hann einnig
flutt á öðrum mannfundum, og hefur það vakið
verðskuldaða athygli. Það hefur komið á prenti i
Fjármálatíðindum númer 3, 1963. í erindinu er
horft yfir vandamál byggðarlaganna af nýjum sjón-
arhóli, en hér er aðeins rúm til að birta ágrip af
því, og er það unnið á skrifstofu sambandsins.
Miklir fólksflutningar til borganna eru
eitt helzta einkenni þeirrar þjóðfélagsbylt-
ingar, er gengið hefur yfir Vesturlönd sein-
ustu mannsaldra. Iðnþróunin hefur stuðlað
að auknu þéttbýli, og það býður upp á fjöl-
breyttan vinnumarkað í samgöngum og
verzlun. ísland fór lengi vel á mis við þessar
frantfarir, þar sem aðalatvinnuvegurinn,
frumstæður landbúnaður, gaf minna í aðra
hönd hér en í flestum nágrannalöndunum.
Með útgerðinni rofaði til í atvinnumálum,
og byltingin í sjávarútveginum leiddi af sér
myndun þorpa og þéttbýlis við sjávarsíðuna.
Þorpin risu upp við bez.tu fiskimiðin, og
togaraútgerðin, eini stórreksturinn í land-
inu, stuðlaði að uppbyggingu Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar, og þar varð fyrsti vísir að
iðnaði og þjónustustörfum.
Þar sem þéttbýlisstigið á .íslandi er orðið
eins hátt og víðast á Vesturlöndum, en fólks-
flutningarnir úr dreifbýli hafa staðið skem-
ttr yfir, liefur eðlilega orðið skyndilegri
röskun þjóðfélagshátta hér á landi en víðast
annars staðar. Á einum mannsaldri hefur
byggðin þróast úr dreifbýli upp í það, að
helmingur landsmanna býr nú á stað, sem
er að verða stórborg með 100 Jtús. íbúum,
en minna en fimmtungur býr í sveitunt.
Kostir Jjessarar byltingar sýnast vera yfir-
gnæfandi, Jjótt ekki geti hún verið eingöngu
til góðs. Nútíma Jjjóðfélag er ekki hægt að
byggja upp án Jjéttbýlis og borga, enda er
Jrað undirstaða hinna stórbættu lífskjara.
Verkaskipting hefur aukizt stórlega og af-
köstin sömuleiðis í <>llum starfsgreinum,
líka í landbúnaðinum.
Þróunarsvæði.
Til Jiess að byggja upp nútíma Jjjóðfélag
var íslendingum nauðsynlegt að eignast
nokkuð stóra borg, en fámenni Jjjóðarinnar
hefur hingað til ekki leyl’t uppbyggingu
nema einnar borgar. Áhrifin frá henni hafa
orðið til Jress, að á Suðvesturlandi hefur
myndazt eins konar Jjróunarsvæði. Stór
markaður dregur til sín iðnfyrirtæki, orkan
er frá sameiginlegum orkuverum, samgöng-
SVEITARSTJÓRNARMÁL
5