Sveitarstjórnarmál - 01.07.1964, Blaðsíða 21
Xlm daggjölcl opmfcerra sjúkrakúsa
Á síðastliðnum vetri gaf nýstoínað lands-
samband sjúkrahúsa út gjaldskrá, þar sem
tilteknar voru aukagreiðslur vegna utan-
héraðsmanna.
Tryggingaráð ræddi mál þetta með hlið-
sjón af ákvæðum 3. málsgr. 51. gr. almanna-
tryggingalaga, en þar segir svo um opinber
sjúkrahús: „Ef ekki næst samkomulag við
opinber sjúkrahús um daggjald, ákveður
heilbrigðismálaráðuneytið daggjaldið í einu
lagi fyrir sjúkrahúsvist og þjónustu. Á
sama hátt skal heilbrigðismálaráðuneytið,
ef Tryggingastofnunin óskar þess, ákveða
daggjald, er opinberu sjúkrahúsi sé rétt að
taka af utanhéraðsmönnum, enda þótt ekki
hafi verið leitað samninga um það.“ Sam-
þykkti tryggingaráð að kreíjast þess, að heil-
brigðismálaráðuneytið ákveði daggjald, er
opinberu sjúkrahúsi sé rétt að taka af utan-
héraðsmönnum, og enn íremur beindi það
þeim tilmælum til ráðuneytisins, að það
staðfesti, að daggjald ríkisframfærslunnar
á opinberum sjúkrahúsum sé hið opinbera
daggjald fyrir sjúkrahúsvist og þjónustu
fyrir aðra en utanhéraðsmenn og sé íull
greiðsla til sjúkrahússins.
Hinn 27. maí sl. ritaði dóms- og kirkju-
málaráðuneytið Tryggingastofnuninni svo-
hljóðandi bréf:
„Samkvæmt ósk Tryggingastofnunar rík-
isins i bréfi dags. 27. febrúar s.l. og að fengn-
um tillögum landlæknis, dags. 5. þ. m., tek-
nr ráðuneytið hér með íram, að það stað-
festir hér með, samkvæmt heimild í 3. mgr.
51. gr. laga um almannatryggingar nr. 40,
30. apríl 1963 að daggjald {tað, sem ríkis-
framfærslan greiðir opinberum sjúkrahús-
um sem daggjald fyrir sjúkrahúsvist og
þjónustu íyrir aðra en utanhéraðsmenn, sé
hið opinbera daggjald fyrir aðra en utan-
héraðsmenn fyrir sjúkrahúsvist og þjónustu
og sé það full greiðsla fyrir sjúkrahúsvist-
ina, lyf og þjónustu alla, þar með talin
læknishjálp, og ákveður jafnframt, að hin-
um sömu sjúkrahúsum sé auk þess rétt að
taka af utanhéraðssjúklingum stundunar-
gjald, sem sé 30% al' daggjaldinu og greið-
ist fyrir lyrslu 30 daga sjúkrahússlegunnar.
Sé það einnig full greiðsla bæði fyrir sjúkra-
húsvist, lyf og þjónustu alla, þar með taldar
aðgerðir og önnur læknishjálp.
Fyrir ntanhéraðssjúklinga, sem dvelja á
sérstökum opinberum hjúkrunarspítölum
greiðist engin aukagreiðsla."
í bréfi, dags. 5. júní sl., gerir Trygginga-
stofnunin sjúkrasamlögum grein fyrir máli
þessu og leggur fyrir samlögin að greiða að
fullu sjúkrahúsvist samlagsmanna eítir þess-
um reglum.
Almenn viðbótartrygging fyrir
launþega í Danmörku.
I sambandi við lausn víðtækrar kjaradeilu
vorið 1963 hét danska ríkisstjórnin að beita
sér fyrir lagasetningu um almenna lífeyris-
tryggingu launþega til viðbótar gildandi
almannatryggingum. í marzmánuði síðast-
liðnum samþykkti danska þingið lög um
þetta efni, sem komu til framkvæmda 1.
apríl.
Hin nýju lög taka til allra launþega, að
undanskildum opinberum starfsmönnum,
nemum og lausavinnufólki, og útgjöld við-
bótatryggingarinnar hvíla á vinnuveitend-
um og launþegum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
19