Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Page 6

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Page 6
 Upplý singamál Cott bókasafn - metnaðarmál allra sveitarfélaga Marta Hildur Richter, ritari samtaka forstööumanna almenningsbókasafna, skrifar. Ikreppunni blómstra almenningsbókasöfnin sem aldrei fyrr. Það hef- ur verið mikið að gera og tölfræðin mælir 20% aukningu í aðsókn á mörgum safnanna og 10-15% aukning varð í útlánum milli áranna 2008 og 2009. ( nýlegri könnun menntamálaráðuneytisins á menningarneyslu íslendinga kemur fram að 82% svarenda hafa lesið bók sér til ánægju á síðustu 12 mánuðum og 64,8% hafa heimsótt bókasafn á sama tíma. Sveitarfélögum ber að standa að þjónustu almenningsbókasafna Það er greinilegt að löggjafinn telur afar mikilvægt að tryggja lands- mönnum jafnt aðgengi að almenningsbókasöfnum landsins með lög- um um almenningsbókasöfn. [ 1. grein laganna nr. 36/1997. segir m.a.: Fimm ára börn hlýða á jólaleikrit i bókasafninu sinu. „Allir landsmenn skulu eiga kost á að njóta þjónustu almenningsbóka- safna. Er öllum sveitarfélögum skylt að standa að slikri þjónustu í sam- ræmi við þessi lög." Treysti sveitarfélög sér ekki til að standa ein að rekstri almennings- bókasafns er þeim heimilt samkvæmt 3. grein laganna: „að sameinast um rekstur". Sveitarfélögum er einnig heimilt með ákveðnum skilyrðum samkvæmt 4. grein laganna: „að sameina almenningsbókasafn og bókasafn grunnskóla". Slíkt er þó almennt ekki talið æskilegt nema í fámennari sveitar- félögum. Menningarmiðstöðvar og samkomustaður íbúanna Lestrarfélögin gömlu, sem flest almenningsbókasöfn í dag byggja á, voru stofnuð af alþýðu fólks sem þyrsti í fróðleik og andlega skemmt- an. Flest voru stofnuð kringum aldamótin 1900 og safnað var fé til að fjármagna bókakaupin. Almenningsbókasöfn nútímans eru rekin af sveitarfélögum og víða eru þau einu menningarstofnanir þeirra. Þau eru að sjálfsögðu mis öflug og markast það oft af stærð sveitarfélaga, en ekki alltaf þó. Bókasöfnin miðla menningu og bjóða að sjálfsögðu upp á fjölbreyttan safnkost og aðgengi að alþjóðlegu efni á netinu. Auk bókmenntatengdra menningarviðburða bjóða almennings- bókasöfn gjarnan upp á myndlistarsýningar og tónlistarflutning. Marta Hildur Richter. GrantThomton 6

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.