Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 7
Bókmenntakvöld og tónlistarviðburðir eiga mjög vel heima á bókasafninu
eins og þessi mynd sýnir.
Mikilvæg lýðræðinu
Almenningsbókasöfn jafna aðgengi fóiks að menningu, upplýsingum
og þekkingu og fara ekki í manngreiningarálit við miðlun þeirra. Þau
eru griðastaður fólks óháð stétt og stöðu þess í þjóðfélaginu.
„Þriðji staðurinn"
Því meiri sem alþjóðavæðingin verður - þeim mun rótlausari finnst
manninum hann vera. í menningunni finnum við rætur okkar, sögu
og sjálfsmynd.
Sagt er, að við höfum öll þörf fyrir „þriðja staðinn", þ.e. stað sem
ekki er heimili eða vinna/skóli og við þurfum ekki að vera í hlutverki
gestgjafa eða gests. Almenningsbókasöfn eru tilvalin í þetta hlutverk,
og má segja að bókasöfn séu eini gjaldfríi staðurinn sem almenningur
getur sótt í dag þar sem hver og einn kemur á eigin forsendum og að
eigin frumkvæði. Söfnin eru í meira mæli en áður orðin samkomu-
staður borgaranna. Þeir koma ekki eingöngu til að fá lánað safnefni
og njóta menningarviðburða, heldur einnig í leit að samskiptum.
Margir koma daglega og kíkja í blað eða bók yfir kaffibolla og spjalla.
Opna börnum og fullorðnum heim ævintýra
og upplýsinga
Mikilvægt er að kynna börnum og unglingum þá þjónustu sem þau
eiga aðgang að í bókasöfnum landsins. Kennsla í heimildaleit og
upplýsingalæsi, hvort heldur er á bók, blaði eða í gagnagrunni á net-
inu, svo og úrvinnsla heimilda, er undirstaða frekara náms.
• Ekki er síður mikilvægt að opna börnum ævintýraheim bókanna og
yndislestur.
Allir aldurshópar eru velkomnir á bókasafnið.
• Að ná góðum tökum á lestri stuðlar að betri námsárangri og al-
mennri vellíðan.
• Lestur er lífsstíll! Börn samtímans eru framtíðarnotendur bóka-
safna.
Afstaða sveitarstjórnarmanna mikilvæg
Skilningur stjórnenda sveitarfélaga á mikilvægi almenningsbókasafna
og stuðningur við starfsemi þeirra er grundvallaratriði. Sá skilningur
hefur orðið til þess að fjölmörg almenningsbókasöfn landsins hafa
þróast í nútíma menningarmiðstöðvar með fjölbreytta starfsemi og
þjónustu. Og íbúarnir kunna vel að meta það, eins og aðsóknar- og
útlánatölur sýna. Almenningsbókasöfn reynast góður kostur.
SFA - Samstarfsvettvangur forstöðumanna
almenningsbókasafna
Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna voru formlega stofnuð
1999, en samstarf og reglulegir fundir forstöðumanna hafa átt sér
stað allt frá 1984.
Á vor og haustfundum hittast forstöðumenn smárra sem stórra
almenningsbókasafna alls staðar að af landinu. Þessir fundír eru haldn-
ir hér og þar um landið til skiptis.
Þar bera forstöðumenn saman bækur sínar og ræða sameiginleg
praktísk og fagleg mál. Samtökin eru mikilvægur vettvangur sam-
skipta og faglegrar umræðu og sameiginlegur málsvari safnanna út á
við. Forstöðumenn allra almenningsbókasafna eru velkomnir í sam-
tökin.
Fyrirtækjaþjónusta Hertz býður sveitarfélög og ríkisfyrirtæki velkomin.
• Þéttriðið þjónustunet um land allt og mikil þjónustulund
• Einföld bókunarvél fyrir fyrirtæki á www.hertz.is
• Fyrirtækjaþjónustusími 522 44 22 opinn frá 06:00 - 01:30
• Umhverfisvænt fyrirtæki samkvæmt ISO 14001
ÓV/55Ó 5vtz. icjcu^/e. ijc i 05 -fyvStc\ -f/okks Þj6uustc\ !
£ Vildarklúbbur
<umenn - Muniö 500 punktar meö hverri leigu!
7