Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Side 24
Grímsnes- og
Grcafningshreppur
Nátturfegurð er viða mikil í Grímsnes- og Grafningshreppi. Mikil orlofshúsabyggð er i sveitarfélaginu og fer
hún nú vaxandi á ný, þótt bakslag hafi komið i vöxtinn i kreppunni. Mynd. Magnús Hlynur
Linda og Ragna eru staðgenglar skólastjóra í
hvorri deild fyrir sig. ( dag eru 38 börn í
grunnskólanum og 18 í leikskóla."
Reynslan lofar góðu
Að sögn Gunnars hentar þetta skipulag þeim
vel þótt hann hafi heyrt efasemdir um að
hægt sé að nota það í fjölmennum byggðum
á höfuðborgarsvæðinu. „Við gerðum þessa
breytingu um síðustu áramót og sú reynsla
sem fengin er lofar mjög góðu. Þetta hefur
gefist vel. Eldri börnin í skólanum hugsa vel
um leikskólakrakkana og ég held það geti
verið mjög þroskandi fyrir bæði yngri og eldri
börnin að starfa svona saman."
Hann segir að einnig hafi verið tekin upp
sú nýbreytni að bjóða eldri borgurum að
borða með krökkunum og starfsfólki sveitar-
félagsins I mötuneytinu og það hafi mælst
vel fyrir. „Ég held það sé alveg nauðsynlegt
að tengja kynslóðirnar meira saman. Ýmsar
þjóðfélagsbreytingar hafa gert það að verk-
um að kynslóðabilið hefur breikkað og sam-
félagið þarf að opna leiðir til að tengja þetta
saman á ný. Þetta er tiltölulega auðvelt í
dreifbýlinu. Hér eru þó ekki íbúðir fyrir eldri
borgara. Þeir búa á bæjunum í sveitinni en
finnst tilbreyting í því að koma, hittast og
borða með krökkunum í hádeginu."
Umsóknir um frístundahúsa-
lóðir teknar að berast
Gunnar kom inn á atvinnumálin í upphafi
spjallsins og sagði frá verktaka sem biði eftir
þíðri jörð. Hann segir að atvinnumálin fyrir
utan hefðbundinn landbúnað og þjónustu-
störf hafa gengið nokkuð í bylgjum. „Hér var
mjög mikil um að vera um tíma á meðan frí-
stundabyggðabyltingin reið yfir. Menn fjár-
festu í vélum og tækjum til jarðvegs- og
byggingastarfsemi. Svo kom hrunið og þessi
starfsemi dróst mjög fljótt saman. Hún nánast
hætti en flestir þraukuðu þrátt fyrir það. Þeir
gátu lifað í einhvern tima á eigin fé enda ekki
auðvelt að losa sig við vélar og tæki á sam-
dráttartimum. En það verður ekki endalaust
og þegar ég var að fara yfir fundagerðir
bygginganefndar um daginn sá ég að um-
sóknir voru farna að berast um sumar- og
frístundahúsalóðir."
Gunnar segir þessar umsóknir þó með
öðrum hætti en var fyrir hrunið. „Fyrir hrun
festu verktakar kaup á lóðum til þess að
byggja sumarhús og selja síðan á frjálsum
markaði. Nú sjást slíkar umsóknir ekki, heldur
eru þetta einstaklingar og fjölskyldur sem eru
að leita að lóðum undir eitt hús. Dæmi eru
um frá árunum 2004 og 2005 að bygg-
ingaaðilar hafi fest kaup á allt að 20 lóðum,
byggt á þeim og selt síðan fullfrágengin hús
með lóðum og öðru líku eins og þegar um
íbúðabyggingar í þéttbýli er að ræða. Kaup-
endur gátu bara keypt og skrúfað svo frá
vatninu inn á heita pottinn. Allt var tilbúið,
jafnvel búið að planta trjám í garðinn. Hvort
þessi tími kemur aftur er ekki gott að segja til
um en ég held að þetta verði með rólegra
móti og meira um að hver byggi fyrir sig. En
við horfum bara með bjartsýni fram á við. Við
komumst í gegnum þetta og trúum að at-
vinnulífinu vaxi fiskur um hrygg é ný."
Um 10% íbúanna teljast
fatlaðir
Málefni fatlaðra eru komin til sveitarfélag-
anna og gert ráð fyrir að öldrunarmálin færist
þangað á næsta ári. Þjónustusvæði fatlaðra á
Suðurlandi stendur saman af öllum sveitar-
félögum í landshlutanum nema sveitarfélag-
inu Hornafirði og Vestmanneyjabæ. Sá
grunnur sem lögum samkvæmt er byggt á er
að lámarksíbúafjöldi innan hvers þjónustu-
svæðis séu átta þúsund íbúar. „Á þeim
grundvelli virkjuðum við ákveðið samstarf
innan SASS sem við byggjum á í dag. Ákveðið
framkvæmdaráð fer síðan með málaflokkinn
i umboði sveitarfélaganna."
Gunnar segir að Grímsnes- og Grafnings-
hreppur búi við eina sérstöðu að þessu leyti
og þar á hann við Sólheima. Hann segir að
fram til ársins 1996 hafi íbúar Sólheima átt
lögheimili á sínum fyrri heimilum en þá hafi
lögheimilum vistfólks verið breytt og flutt að
Sólheimum. „Þetta þýðir að um 10% (búa
sveitarfélagsins teljast til þess þjóðfélagshóps
sem er skilgreindur sem fatlaðir einstaklingar
en meðaltalið yfir landið er að um 1 % íbúa
24