Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Side 26

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Side 26
Skólamál Nærsamfélagið í skólastarfi „Tækifæri nærsamfélagsins komu mjög tii umræðu á skólaþinginu," segir Baldur Páls- son, fræðslufulltrúi á Seltjarnarnesi, í samtali við Sveitarstjórnarmál en á skólaþingi sem haldið var þar á liðnum vetri komu fram hugleiðingar og hugmyndir um hvernig nýta megi nærsamfélagið á Nesinu betur við nám og einnig í daglegu l(fi fólks. „Við erum með mjög auðuga náttúru sem á að nýtast vel til kennslu í náttúrufræðum og ég get séð fyrir mér viðburði á borð við að fara með krakkana í heimsókn til Hitaveit- unnar og sýna þeim á vettvangi hvernig hún vinnur í stað þess að þau lesi nokkrar blaðsíð- ur í bók um efnið og annað mætti telja. Þetta byggist á að læra í nærumhverfinu og færa svo þekkinguna yfir í annað eða stærra sam- hengi." Baldur segir fjölmörg skemmtileg við- fangsefni framundan og þessa dagana sé unnið að því að endurmóta skólastefnu bæjarfélagsins. „Þetta verkefni okkar er af- rakstur skólaþingsins sem haldið var f mars og er ætlunin að senda þeim sem tóku þátt í því drög að endurmótaðri skólastefnu innan tíðar. Þátttakan var góð og fólkið sem mætti var mjög virkt í umræðum, sem sýnir vel áhuga bæjarbúa á skólamálunum." Baldur segir íbúana vel meðvitaða um að vera Seltirningar og ríkt sé í bæjarhefðinni að vinna saman. „Þetta á vel við um uppeldis- og skólamálin þar sem öflugt samstarf er á milli þeirra aðila sem koma að því. Skólarnir, (þróttafélagið Grótta og félagsmiðstöðin Sel- ið eiga í nánu samstarfi um uppeldismálin og þetta samstarf hefur vakið athygli langt út fyrir bæjarmörkin. Ég met það af þeim fyrir- spurnum sem við hjá Seltjarnarnesbæ höfum fengið um þessi mál." Samfella í starfsdegi Eitt af því sem áhersla hefur verið lögð á er að ná samfellu í starfsdegi nemenda. Baldur segir að liður í því sé að nemendur geti farið úr einstökum kennslustundum í grunnskól- anum til þess að sækja kennslu í tónlistar- skólanum, þannig að tónlistarnámið komi ekki allt aftan við grunnskólastarfið á daginn. Einnig sé mikið lagt upp úr nánu samstarfi þeirra sem koma að skóladegi barna og ung- menna, íþróttaiðkun og tómstundaiðju. „Ég held að þetta þétti fjölskyldurnar og það sparar líka mikinn tíma í ferðir og skutl sem margir þekkja úr daglegu lífi." Að vinna heima í héraði Baldur stundaði kennaranám í Noregi og starfaði þar við kennslu um tíma að námi loknu. Hann segir margt líkt með skólamálum Norðmanna og íslendinga enda hafi þeir síðarnefndu sótt ýmislegt i þeim efnum til frænda sinna á hinum Norðurlöndunum. „Þegar ég var þar við nám og störf voru Norðmenn mjög uppteknir af þeirri kennslu- fræði sem nú er verið að innleiða á Sel- tjarnarnesi. Þá voru þeir að hrinda þeim hug- myndum í framkvæmd sem nú eru að rata inn í skólastefnuna hér hjá okkur og víðar hér á landi." Að sögn Baldurs leggja Norðmenn líka mikið upp úr því að vinna hlutina „heima í héraði" eins og þeir kalla það í stað þess að sækja allt til Óslóar eða stóru bæjanna á Vesturströndinni. „Vissulega njóta minni byggðarlög jafnan nálægðar við þau stærri og ég væri ósanngjarn ef ég héldi öðru fram en að við á Seltjarnarnesi nytum nábýlis- ins við Reykjavík. En við höfum líka margt í göngufæri hér innanbæjar." Áhugi og metnaður Baldur var ekki ókunnugur Seltjarnarnesi þegar hann kom þangað til starfa sem fræðslustjóri á liðnu ári. Hann tók við skólastjórn í Valhúsaskóla árið 2007. „Fljót- lega eftir að ég kom þangað fann ég hversu mikill áhugi er fyrir starfi skólanna og metn- aður gagnvart því. Einnig hefur verið hugsað mjög vel um faglega þáttinn og í starfi mínu í dag nýt ég góðs af því að hafa unnið hér áður. Ég þekki starfsfólkið og einnig þarfir skólanna mun betur en annars væri." Baldur segir að skólastarf í landinu gangi f gegnum erfiða tíma en þrátt fyrir það sé ekki slegið af metnaði í skólastarfi á Seltjarnar- nesi. Hann segir vel hafa tekist til um marga hluti og nefnir sem dæmi sameiningu leik- skólanna á Seltjarnarnesi á síðasta ári og seg- ir þá reynslu sem fengin er af sameiningunni Baldur Pálsson á skrifstofu sinni hjá Seltjarnarneskaupstað. Mynd: Nesfréttir. mjög góða. „Það er og verður alltaf erfið- leikum háð að sameina skóla. Fólk veit hvað það hefur, en gerir sér ekki eins vel grein fyrir því hvað það fær. Þess vegna er mikils um vert að vanda vel til undirbúnings og allra verka. Sameiningar eru eitt af því sem verður að kynna vel fyrir foreldrum og þeim sem njóta skólaþjónustunnar og skýra út að hverju verið sé að vinna." Erfitt að lesa í íbúaþróunina Baldur segir engar fleiri breytingar á skóla- kerfinu á Seltjarnarnesi í farvatninu, en erfitt sé þó að lesa í íbúaþróunina fram í tímann. „Það er ekki auðvelt að sjá fyrir hver hún verður og því þarf að meta stöðuna eftir því hver hún er hverju sinni." Hann starfaði í Kópavogi um 11 ára skeið og fylgdist með þróuninni þar. „Ég sá þann kúf sem myndaðist í nýju skólunum þar sem hverfin voru að rísa og barnafólk flutti inn. Svo hjaðnaði þessu kúfur jafnan þegar börnin eltust og fóru yfir á framhaldsskólastigið. Sel- tjarnarnes er nánast fullbyggt og ef þessi þróun í aldurssamsetningu íbúa heldur áfram til lengri tíma, má gera ráð fyrir því að önnur af tveimur starfsstöðvum skólans rúmi alla nemendur. Ég held hins vegar að þessi þróun snúist við áður en að því kemur og að börn- um fjölgi hér þegar fer að glaðna til í efna- hagslífinu og fólk að skipta um húsnæði á nýjan leik." 26

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.