Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 8

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 8
Ferðaþjónusta Hvernig fjármögnum við upp- byggingu ferðamannastaða? Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri skrifar. Umræður um fjármögnun á uppbyggingu og viðhaldi ferðamannastaða eru ekki nýjar af nálinni og hafa raunar staðið yfir áratugum saman. Ýmislegt hefur áunnist í uppbyggingu eins og framkvæmdir víða um land bera vott um. Lengstum hefur þó það orð legið á að þörfin fyrir fram- kvæmdir væri mun meiri en það fjár- magn sem verið hefur til skiptanna og umræðan líklega aldrei verið jafn þung og í ár, samfara mikilli fjölgun erlendra ferðamanna. Ýmsir aðilar hafa í gegnum árin komið að uppbyggingu og viðhaldi ferðamannastaða. Á vettvangi ríkisins má nefna Umhverfis- stofnun, með framkvæmdir ( þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum, Vegagerðina með án- ingastaði víða um land, Landgræðsiuna, Skógrækt ríkisins auk fleiri aðila. Ferðamála- stofa hefur úthlutað styrkjum vegna úrbóta á ferðamannastöðum árlega frá árinu 1995. Á þessum tíma hefur Ferðamálastofa varið yfir 1 milljarði króna að núvirði til fjölbreyttra framkvæmda á um 300 stöðum á landinu, hin síðari ár eingöngu í formi styrkja en áður kom stofnunin sjálf að sumum stærri fram- kvæmdum. Aukin áhersla hefur á síðustu árum verið lögð á skipulag og hönnun ferða- mannastaða, öryggismál og aðgengi fyrir alla. Síðast en ekki síst hafa sveitarfélög víða komið myndarlega að málum, bæði ein sér og í samstarfi við ríkisvaldið og einkaaðila. Gistináttaskattur Árið 2009 skipaði fjármálaráðherra nefnd um umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu. Gjöldin Náttúra Islands er ægifagur, um það þarf ekki að deila. Þessi mynd er tekin við Geysi i Haukadal. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson/Ferðamálastofa. Ólöf Ýrr Atladóttir. skyldu renna til „uppþyggingar þjóðgarða og annarra fjölsóttra og friðlýstra áfangastaða ferðamanna og til eflingar ferðaþjónustu". Nefndin fjallaði um fjórar gjaldtökuleiðir: • Gistináttagjald. • Farþegagjald (brottfarar- eða komugjald). • Aðgangsgjald að völdum stöðum og aðgangspassa. • Umhverfisgjald sem hluta af tryggingar- gjaldi. [ áliti sínu mælti nefndin með gistinátta- gjaldi eða blandaðri leið gistináttagjalds og farþegagjalds. Á árinu 2011 voru sett lög um gistinátta- skatt. Markmið þeirra var að afla tekna til að 8

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.