Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Síða 12

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Síða 12
Ferðaþjónusta Á Drangsnesi við utanverðan Steingrímsfjörð hefur byggst upp öflug ferðaþjónusta þótt staðurinn verði seint talinn i alfaraleið. Mynd Halldór Arinbjarnarson. undir kostnaði sem af því hlýst, t.d. vegna nauðsynlegrar uppbyggingar og viðhalds á ferðamannastöðum. Fyrirkomulagið dregur dám af kerfum þar sem mikill fjöldi fólks þarf að nota almannaþjónustu á sem einfaldast- an og skilvirkastan máta, t.d. í almennings- samgöngum eða þar sem borgir bjóða að- gang að mörgum söfnum út á einn passa. Með því að beita þessari aðferð hér mætti komast framhjá margvlslegum kostnaði sem myndi fylgja beinni innheimtu I gjaldhliði á ferðamannastöðum hér. Þessi meginhugmynd hefur ýmsa kosti, sem raktir eru í skýrslu Alta: • Gjaldtakan hefur ekki bein áhrif á verðlagningu ferðaþjónustuaðila sem algengt er að bundin sé í samningum og verðskrám 1-2 ár fram I tímann. • Auðvelt er að haga verðlagningu í sam- ræmi við fjárþörf. • Gjaldtakan beinist að þeim sem nýta fjölsótta ferðamannastaði. Á hinn bóginn er I mörg horn að líta varð- andi útfærsluna: • Ferðafólk kemur til landsins með ólíkum hætti. • Ferðamannastaðir eru ólíkir, t.d. hvað varðar staðhætti og eignarhald. • Tryggja þarf að innheimta og eftirlit sé skilvirkt. • Heppilegt er að samræmi sé milli staða, t.d. óháð eignarhaldi. • Skýr skil séu milli gjalds fyrir aðgang og gjalds sem tekið er fyrir veitta þjónustu. Að auki þarf að tryggja traustan laga- grunn og skipuleggja vel framkvæmdina. Ekki er vitað til þess að erlendis sé að finna beina samsvörun við þetta fyrirkomulag á aðgangi að náttúrusvæðum sem unnt er að styðjast við, aðra en almennar. Líklega myndi það telj- ast brot á meginreglum EES-samningsins ef öðrum ríkisborgurum innan EES-svæðisins væri veittur aðgangur að náttúrusvæðum á öðrum kjörum en heimamenn fá. Að mörgu að hyggja Hér hafa verið nefnd nokkur þau atriði sem horfa þarf til við útfærslu á náttúrupassanum en ýmis fleiri atriði mætti nefna sem hafa þarf I huga við útfærslu á þeirri leið sem verður farin. Má þar t.d. nefna: • Hvaða svæði munu heyra undir náttúru- passann? • Með hvaða hætti gagnast náttúru- passinn þeim svæðum sem taka þátt? • Hvernig verður hagnaði skipt á milli staða/svæða? • Hvernig er hægt að nýta náttúru- passann til uppbyggingar nýrra svæða? Ekki síst er síðan grundvallaratriði að sú leið sem verður farin tryggi með einum eða öðrum hætti aðkomu sveitarfélaga. Ljóst er að þau eru lykilaðili í farsælli framkvæmd málsins og kemur þar bæði til að þau fara með skipulagsvaldið um allt land og standa auk þess nærri þeim stöðum eða svæðum sem um ræðir að ógleymdum þeim fjölmörgu hagsmunaaðilum í héraði sem farsæl upp- bygging ferðamannastaða snertir. Niðurstaða í árslok Hér hefur aðeins verið tæpt á nokkrum þeirra atriða sem hafa þarf ( huga við útfærslu á náttúrupassanum, eins og þau eru rakin í skýrslu Alta fyrir Ferðamálastofu. Sem fyrr segir er gert er ráð fyrir að vinnu við útfærslu Ijúki (lok árs og að frumvarp verði lagt fram á Alþingi í byrjun árs 2014. Er ekki að efa að margir blða spenntir eftir niðurstöðunni ( þessu mikla hagsmunamáli greinarinnar og raunar þjóðarinnar allrar. Fríður, ró og náttúrufegurð. Myndir er tekin við Drangsnes. Mynd Halldór Arínbjarnarson. 12

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.