Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Síða 21
„ Á haustin, veturna og vorin geta veður verið válynd á heiðinni
og því eru það einkabílar, rútur og flutningabílar sem eru í
vandræðum. Jarðgöng myndu breyta öllu hér.“
Seyðisfjörður er vaxandi ferðamannabær. Hér slaka ferðamenn á i vorblíðu þótt enn megi sjá snjó I fjöllum.
flugvöllinn á Egilsstöðum. Við sækjum einnig
mikið alls konar þjónustu í Egilsstaði og jafn-
vel I dagvöruverslanir."
Arnbjörg nefnir ennfremur að Austfirð-
ingar séu duglegir að sækja í handverksversl-
anir, menningarviðburði og veitingahús á
Seyðisfjörð. „Þá er ótalið að skemmtiferða-
skip koma í auknum mæli til Seyðisfjarðar og
farþegaferjan Norræna siglir vikulega allt árið
til Færeyja og Danmerkur og tugir þúsunda
farþega eiga því leið yfir Fjarðarheiði, auk
þess sem fragtflutningar með skipinu eru
töluverðir. Á haustin, veturna og vorin geta
veður verið válynd á heiðinni og því eru það
einkabílar, rútur og flutningabílar sem eru í
vandræðum. Jarðgöng myndu breyta öllu
hér," segir hún.
Gömlu húsin verðmæt
„Yfirbragð bæjarins er mjög menningartengt
og framlag sveitarfélagsins til menningar-
mála á hvern íbúa er með því langmesta sem
þekkist. Við eigum einnig mikinn menningar-
arf hér ( gömlu húsunum og víða mjög heil-
legar götumyndir. Við getum sagt að Seyð-
firðingar geymi þennan menningararf fyrir
þjóðina, en framlög til að varðveita hann
hafa hvergi verið næg miðað við menning-
arverðmætin sem í honum felast."
Arnbjörg segir Seyðfirðinga reyna að nýta
þessi hús sem best. „Sýsluskrifstofurnar eru í
Stefánsbúð sem var verslun Stefáns Th. byggt
1907. Seyðisfjarðarskóli er að hluta til rekinn
í gamla skólahúsinu frá 1906 og Tónlist-
arskólinn er í gömlu og fallegu húsi, Steinholti
sem byggt var 1907. Skaftfell, líka frá 1907,
hýsir miðstöð myndlistar á Austurlandi. Þá
gaf Póst- og símamálastofnun Seyðisfjarð-
arkaupstað Gömlu símstöðina, sem er eitt
af Wathneshúsunum frá 1894 til safnastarfs,
en þar eru bæjarskrifstofurnar einnig til
húsa."
Fyrsti menningarsamningurinn
á Austurlandi
Arnbjörg minnir á að fyrsti menningarsamn-
ingurinn á milli rikis og sveitarfélaga hafi
verið gerður á Austurlandi. „Hann var undir-
ritaður árið 2001 og síðan hefur verið mark-
viss uppbygging á sviði menningar og lista.
Menningarráð Austurlands og menningar-
fulltrúinn ekki síst, hafa unnið af mikilli fag-
mennsku eins og nýleg úttekt Capacent
sýnir."
GoIf er vaxandi almenningsíþrótt hér á landi og golfvöllur er nauðsyn i hverjum ferðamannabæ.
21