Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 257. tölublað 99. árgangur
ELDGOS, FLUGUR,
NÁTTÚRUGRIPA-
SAFN OG HÁVAMÁL
LEIKA OG
SYNGJA LÉTTIR
Í LUND
GOTT AÐ HRÆÐA
BÖRN Í GÓÐU
HÓFI HEIMA
ÞRJÁR STJÖRNUR GRM 32 ÆVINTÝRI OG DRAMATÍK 10NÝJAR BARNABÆKUR 33
Reuters
Selja? Verðbréfasali í London fylgist í of-
væni með þróun á mörkuðum í gær.
Mikil lækkun varð á mörkuðum í
Evrópu í gær vegna ákvörðunar
Georgs Papandreous, forsætisráð-
herra Grikklands, um þjóðar-
atkvæði vegna skilyrða evruríkj-
anna fyrir efnahagsaðstoð.
Verðfall varð líka talsvert í New
York, Dow Jones féll um tæp 2,5%
og Nasdaq tæp 2,9%. Lækkunin
gekk um hríð til baka þegar fréttist
að Papandreou hefði líklega ekki
þingmeirihluta fyrir ákvörðuninni.
Robert Peston, fréttaskýrandi
BBC, sagði þjóðaratkvæðið valda
ringulreið en varla færu menn að
andmæla sjálfu lýðræðinu í Grikk-
landi. „Hvernig í ósköpunum ætti
efnahagsleg viðreisn að geta fylgt í
kjölfar þessara aðhaldsaðgerða án
þess að gríska þjóðin hefði sam-
þykkt þær?“ spurði Peston. »16-17
Verðfall vegna fyrir-
hugaðs þjóðarat-
kvæðis í Grikklandi
Margvíslegur vandi
» Hluta þeirra barna sem fá
meðferð á Stuðlum hefur verið
vísað úr grunnskóla vegna
neyslu.
» Mörg þeirra eru með vægar
þroskaraskanir og hafa ekki
fengið aðstoð við hæfi í grunn-
skólum.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Sólveig Ásgrímsdóttir, forstöðumað-
ur Stuðla, segir að tilhneigingar til að
skaða sjálfan sig gæti í æ ríkari mæli
meðal þeirra unglinga sem þangað
koma til meðferðar. „Sum skaða sig
vísvitandi með neyslu,“ segir Sólveig
og segir ástæðuna meðal annars vera
vanlíðan, sem geti brotist út í skeyt-
ingarleysi um eigið líf og heilsu. „Það
er erfitt að vinna með fólk sem býr
yfir virðingarleysi gagnvart sjálfu
sér og öllu öðru,“ segir Sólveig. Hún
segist hafa á tilfinningunni að þeim
sem líði illa líði verr nú en áður.
Þeir sem starfa að meðferðar-
úrræðum fyrir börn og unglinga
segja að allflestir unglingar séu vel
meðvitaðir um skaðsemi fíkniefna,
en kjósi engu að síður að neyta
þeirra. Þetta segir Brynhildur Jens-
dóttir, ráðgjafi í Foreldrahúsi, sem
rekið er af samtökunum Vímulaus
æska. Hún talar um „Generation
ME“ eða „Ég-kynslóðina“ í þessu
samhengi.
Ástandið sem skapaðist á Stuðlum
síðustu helgi, þegar unglingar ógn-
uðu starfsmönnum og reyndu síðan
að flýja, er ekkert einsdæmi að sögn
starfsfólks. Slíkt gerist þó ekki oft.
Þeir hafa þó fengið mjög alvarlegar
hótanir, sem hafa jafnvel beinst að
fjölskyldum þeirra, og segja það
verra en að lenda í átökum. Sólveig
segir að þegar slíkt komi upp sé mik-
ilvægt að veita stuðning og fyrir-
byggja að það endurtaki sig.
MKrakkarnir á Stuðlum »6
Skaða sig vísvitandi
Sum af börnunum á Stuðlum hafa verið utan grunnskóla í langan tíma Þeim
fjölgar sem skaða sig sjálf Starfsfólk Stuðla hefur fengið alvarlegar hótanir
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Gistiheimili Gistihús Keflavíkur
rekur stórt gistiheimili á Ásbrú.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framboð gistirýmis á Suðurnesjum
hefur aukist umtalsvert og er meg-
inhluti aukningarinnar í húsnæði á
Ásbrú, gamla varnarsvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. Hóteleigendur í
Keflavík eru ósáttir og gagnrýna
opinber fyrirtæki og fyrirtæki í eigu
banka fyrir að leigja húsnæði út til
þessara nota gegn lágri leigu. Sam-
keppnisskilyrðin séu ójöfn.
„Við erum búin að leggja aleigu
okkar í þetta og maðurinn minn er
búinn að vinna baki brotnu við upp-
bygginguna í mörg ár. Svo var allt í
einu, nánast í skjóli nætur, búið að
opna gistiheimili í húsnæði sem her-
inn skildi eftir, í beinni samkeppni
við okkur,“ segir Bryndís Þorsteins-
dóttir, einn af eigendum Hótels Keil-
is sem opnaði hótel í Keflavík fyrir
fjórum árum. Hún vísar til gisti-
heimilis sem var opnað í húsnæði
Háskólavalla árið 2009.
Háskólavellir eru í eigu banka,
fasteignafélags og þrotabúa fjár-
málafyrirtækja og hafa keypt fjölda
eigna á varnarsvæðinu.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á
Hótel Keflavík, fagnar uppbyggingu
á svæðinu en segir samkeppni þurfa
að vera á réttum grundvelli. „Við
þurfum að leggja í mikinn kostnað
við uppbyggingu okkar aðstöðu og
að viðhalda henni. Þessir aðilar
þurfa ekki að leggja krónu í slíkt.
Þeir eru með veltutengda leigu. Geta
lokað í viku ef lítið er að gera og
fengið viðbótarhúsnæði ef mikið er
að gera. Það getur enginn keppt við
slíkt,“ segir Steinþór.
Segja samkeppnina vera ójafna
Hóteleigendur í Keflavík gagnrýna opinber fyrirtæki og fyrirtæki í eigu banka
MÓsátt við samkeppni »14
Liðsmenn Garðyrkjustöðvar Sigrúnar á Flúðum,
Íris Georgsdóttir, Þröstur Jónsson og Sigrún
Pálsdóttir, taka upp hvítkál í gær. „Við tókum
upp þrjú tonn í dag, þetta er afbrigði sem við
prófuðum fyrst í fyrra, 120 daga kál,“ segir
Þröstur. „Venjulegt geymslukál er 100 daga að
spretta en við tökum þetta upp seinna á haustin,
það vex hægar og geymist betur. Þetta tókst
þokkalega í fyrra en nú erum við svolítið sein.“
Seinsprottið hvítkál tekið upp 1. nóvember
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Að mati Lands-
samtaka lífeyr-
issjóða mun
10,5% fjársýslu-
skattur íþyngja
sjóðunum um-
talsvert og leiða
til þess að lífeyr-
isréttindi skerð-
ast um 1% á tíu
ára tímabili. Frumvarpi fjár-
málaráðherra um lögleiðingu
skattsins var dreift á Alþingi í gær.
Hann á að leggjast á heildarlauna-
greiðslur fjármálafyrirtækja,
Íbúðalánasjóðs, vátrygging-
arfélaga og lífeyrissjóða. »12
1% skerðing lífeyr-
isréttinda á 10 árum
Á opnum fundi um samkeppn-
isáhrif eignarhalds banka á fyr-
irtækjum í gær sagði Baldur
Björnsson, framkvæmdastjóri
Múrbúðarinnar, að Icelandair
hefði hvorki leitað eftir til-
boðum frá Múrbúðinni né Byko í
tengslum við miklar breytingar
á hóteli sínu á Akureyri í vor.
Allt efni var keypt í Húsasmiðj-
unni, sem er í eigu Framtaks-
sjóðsins, en sjóðurinn á 30%
hlut í Icelandair. »16
Leitaði ekki
tilboða
GAGNRÝNIR ICELANDAIR