Morgunblaðið - 02.11.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011
Sannkallað vetrarveður hefur verið á Ísafirði
síðustu daga. Starfsmenn Ellingsen þar í bæ létu
veðrið ekki á sig fá þegar þeir unnu við víra-
splæsingar niðri við höfn í gær. Kalt var í veðri
og vindur yfir 20 m/sek um tíma. Ekki hefur ver-
ið flogið til Ísafjarðar í nokkra daga vegna veð-
ursins og ekki er útlit fyrir flugveður í dag.
Illfært hefur verið um suma fjallvegi á Vest-
fjörðum síðustu daga. Vegurinn yfir Þröskulda
er t.d. enn lokaður. Góð færð er um Djúp og fara
flutningabílar um Strandir og yfir Holtavörðu-
heiði. egol@mbl.is
Splæsa vír í kuldanum á Ísafirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Flug hefur legið niðri til Ísafjarðar síðustu daga og erfið færð er yfir suma fjallvegi
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Ég lít ekki svo á að þetta hafi nein-
ar stjórnkerfisbreytingar í för með
sér þannig að ég sá ekki ástæðu til
þess að leggjast gegn umsókn þess-
ara aðila,“ segir Katrín Jakobsdótt-
ir, mennta- og menningarmálaráð-
herra, um fjárstyrk úr svonefndum
IPA-styrktarsjóði Evrópusam-
bandsins sem gert er ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fái í
tengslum við umsókn Íslands um
inngöngu í sambandið en starfsemi
miðstöðvarinnar heyrir undir henn-
ar ráðuneyti.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð ályktaði á landsfundi sínum um
helgina að flokkurinn myndi
„tryggja að íslenskt stjórnkerfi
verði ekki aðlagað stjórnkerfi ESB
á meðan á aðildarviðræðum stend-
ur.“ Þegar ályktunin var borin upp
á fundinum til samþykktar eða synj-
unar af Stefáni Pálssyni, sem stýrði
vinnu utanríkismálahóps, gat hann
þess í samræmi við samkomulag í
hópnum, að með orðalagi ályktunar-
innar væri meðal annars átt við við-
töku IPA-styrkja vegna krafna frá
Evrópusambandinu um aðlögun.
Þátttaka í sjóðum ESB
Sótt hefur verið um IPA-styrki
vegna verkefna sem heyra undir tvö
ráðuneyti sem stýrt er af VG. Auk
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins er um að ræða umhverf-
isráðuneytið sem Svandís Svavars-
dóttir fer fyrir, en umræddir styrkir
eru hugsaðir til þess að undirbúa
umsóknarríki fyrir inngöngu í Evr-
ópusambandið.
Einnig er gert ráð fyrir IPA-
styrkjum vegna verkefna á vegum
iðnaðarráðuneytisins og efnahags-
og viðskiptaráðuneytisins sem stýrt
er af Samfylkingunni, meðal annars
til þess að búa Hagstofu Íslands
undir inngöngu í Evrópusambandið
og búa Ísland undir þátttöku í at-
vinnu- og byggðaþróunarsjóði sam-
bandsins. Þá er áðurnefndu verk-
efni sem heyrir undir mennta- og
menningarmálaráðuneytið ætlað að
búa Ísland undir þátttöku í félags-
og vinnumarkaðssjóði Evrópusam-
bandsins. Er samtals gert ráð fyrir
styrkjum frá sambandinu upp á
rúmlega einn milljarð króna fram
til ársins 2015 sem að mestu leyti
fer til verkefna á vegum ráðuneyta
VG.
Enn hefur ekki verið tekið við
neinum IPA-styrkjum, að sögn Öss-
urar Skarphéðinssonar utanríkis-
ráðherra, en þingsályktunartillaga
um ráðstöfun þeirra og eftirlit Evr-
ópusambandsins með henni verður
lögð fram á Alþingi síðar í vetur.
Innganga í ESB undirbúin
IPA-styrkir til verkefna á vegum ráðuneyta hugsaðir til undirbúnings fyrir inn-
göngu í Evrópusambandið Andstaða VG við aðlögun nær til slíkra styrkveitinga
Katrín
Jakobsdóttir
Stefán
Pálsson
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ríkisendurskoðun leggur til í nýrri úttekt, sem hún gerði
að beiðni kirkjuráðs í fyrra, ýmsar breytingar á skipulagi
og starfsemi þjóðkirkjunnar og segir að skortur sé á
heildstæðri stefnu um málefni Biskupsstofu. Skilgreina
þurfi markmið og greina á milli trúarlegra málefna ann-
ars vegar og rekstrar/fjármála hins vegar. Draga þurfi úr
skyldum biskups til að sinna fjármálaumsýslu.
Kirkjuráð fer með framkvæmdarvald í málefnum þjóð-
kirkjunnar og fram kemur í yfirlýsingu þess í gær að
ábendingar Ríkisendurskoðunar muni nýtast vel í stefnu-
mótandi vinnu, sumar séu reyndar þegar til umræðu á
vettvangi kirkjunnar.
„Kirkjuþing mun taka ákvarðanir í þessum efnum, það
kemur saman núna í nóvember þannig að tímasetning
skýrslu Ríkisendurskoðunar er mjög góð. Menn fá næg-
an tíma til að kynna sér skýrsluna fyrir þingið,“ segir
Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Kirkjuráðs. „En samþykki það breytingarnar kemur
einnig til kasta Alþingis að breyta lögum um þjóðkirkj-
una.“
Ríkisendurskoðun vill að sóknir verði sameinaðar og
þeim falin umsjá og eignarhald prestsetra, þó ekki prest-
setursjarða. Kirkjuráð er ósammála enda séu bústaðirnir
hluti af kjörum presta og sóknarnefndir hafi ekkert með
þau að gera. Auk þess krefjist slík umsýsla sérfræði-
þekkingar sem byggð hafi verið upp hjá kirkjumálasjóði.
Skortir heildarstefnu um
málefni Biskupsstofu
Morgunblaðið/Frikki
Stefnumótun Á kirkjuþingum eru teknar ákvarðanir
um stefnu íslensku þjóðkirkjunnar.
Ríkisendurskoðun vill að
sóknirnar annist prestsetur
Það skýrist í dag
hvort verkfall
hljóðfæraleikara
Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar
hefst á morgun.
Uppselt er á tón-
leikana á morg-
un. Samninga-
fundur var hjá
ríkissáttasemjara
í gær, en honum
lauk án niðurstöðu. Annar fundur er
boðaður í dag.
Á morgun og föstudag verða
tvennir tónleikar. Á dagskrá eru
Pláneturnar eftir Gustav Holst og
píanókonsert nr. 2 eftir Rakhman-
inoff. Stjórnandi er Rumon Gamba
og einleikari rússneski píanistinn
Denis Matsuev.
Margrét Ragnarsdóttir, markaðs-
og kynningarstjóri, segir að uppselt
sé á fyrri tónleikana. Hún segir að
undirbúningi tónleikanna verði hald-
ið áfram og allir voni að kjaradeilan
leysist áður en verkfallið hefst. Ef
komi til verkfalls verði þeim sem
voru búnir að kaupa miða boðið að
koma á aðra tónleika eða fá þá end-
urgreidda.
Samninganefnd ríkisins telur að
ólöglega hafi verið staðið að verk-
fallsboðun og er búist við að fé-
lagsdómur úrskurði í dag um lög-
mæti verkfallsins. Ef niðurstaðan er
að verkfallið sé löglegt er búist við
að gerð verði lokatilraun til að koma
í veg fyrir verkfall. egol@mbl.is
Kjaradeil-
an er enn
óleyst
Sinfó Verða tón-
leikar á morgun?
Uppselt á tónleika
Sinfóníunnar
Búið er að útskrifa karlmann sem
slasaðist alvarlega í umferðarslysi í
Kópavogi í síðasta mánuði af gjör-
gæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi. Að sögn læknis á Landspít-
alanum var maðurinn útskrifaður
þaðan í fyrradag en honum hafði
verið haldið sofandi á deildinni frá
því slysið varð þann 16. október.
Hann var vakinn um helgina.
Aðdraganda slyssins má rekja til
þess að gámabifreið var beygt í veg
fyrir hjólreiðamann sem lenti á bif-
reiðinni og undir henni við endur-
vinnslustöð Sorpu. Bæði ökumaður
bifreiðar og reiðhjóls voru á leið
vestur Dalveg í Kópavogi.
Kominn af
gjörgæslu
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
KONUKVÖLD
MIÐVIKUDAGINN 2. NÓVEMBER
Frá 18:30-21:00
DAGSKRÁ
Lifandi tónlist
Páll Óskar
Frostrósir
Happdrætti
KYNNINGAR
Karl K. Karlsson
Hafliði súkkulaðimeistari
Búrið
ÓTRÚLEG TILBOÐ
30% af allri JÓLAVÖRU
30% af MARSEILLE sápum
30% af öllum kertum
25% af öllum púðum
30% af öllum mottum