Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sjómannasamband Íslands hefur
fengið umboð frá flestum félögum
sjómanna á landinu til að óska eftir
viðræðum við Landssamband smá-
bátaeigenda um kjarasamning fyrir
sjómenn á bátum undir 15 brúttó-
tonnum að stærð. Slíkur heildar-
kjarasamningur var gerður í árslok
2007, en felldur bæði í félögum sjó-
manna og smábátaeigenda í byrjun
árs 2008. Þrætueplið á milli SSÍ og
LS hefur fyrst og fremst tengst
tryggingamálum og slysabótum fyrir
sjómenn.
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Framsýnar, stéttarfélags í Þingeyj-
arsýslu, leggur áherslu á að sem allra
fyrst verði gengið frá samningum við
smábátasjómenn, sem ekki hafa haft
heildstæðan samning. Framsýn er
langt komin með gerð kjarasamnings
við Klett, félag smábátaeigenda á
Norðausturlandi. Unnið hefur verið
að þessum grunnsamningi fyrir sjó-
menn á bátum undir 15 brúttótonn-
um síðasta hálft ár og eru flestir
þættir nýs samnings frágengnir.
Tryggingafélögin svara
Tryggingamálin fengu þann far-
veg að Klettur óskaði eftir hugmynd-
um um tryggingapakka fyrir smá-
bátasjómenn frá
tryggingafélögunum. Krafa Fram-
sýnar í þeim samskiptum var að
tryggingaverndin yrði aukin frá því
sem nú er. Svör hafa nú borist frá
tryggingafélögunum og í dag verður
ákveðið hvort Klettur og Framsýn
halda áfram viðræðum eða hvort
málinu verður haldið áfram á vegum
Sjómannasambands Íslands og
Landssambands smábátaeigenda.
„Það er hagur okkar allra að gerð-
ur verði heildstæður samningur við
smábátasjómenn alls staðar á land-
inu og væntanlega verða okkar
samningsdrög höfð til hliðsjónar,“
segir Aðalsteinn Baldursson.
Ólík slysahætta
Aðalsteinn segir að tryggingamál-
in séu mjög mikilvæg, en hins vegar
hafi hann skilning á þeim sjónarmið-
um Landssambands smábátasjóm-
anna að slysahætta sé gjörólík eftir
því hvort um er að ræða smábát und-
ir 15 tonnum eða frystitogara og
uppsjávarskip.
„Þessar útgerðir og sjó-
mennskan er gjörólík og því
ekki óeðlilegt að trygginga-
gjaldið sé lægra á minni
bátunum,“ segir Aðal-
steinn.
Samninga sem allra fyrst
Sjómannasambandið fær umboð til viðræðna við Landssamband smábátaeigenda Hagur okkar
allra að gerður verði heildstæður samningur við smábátasjómenn, segir formaður Framsýnar
Morgunblaðið/Hafþór
Vetur Landað úr Háey á Húsavík, en þaðan er öflug útgerð smábáta. Unnið er að gerð samninga fyrir sjómennina.
Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur Framsýnar, segist hafa fengið
margar kvartanir undanfarna
mánuði vegna mikils álags um
borð í minni bátunum víða um
land.
„Ég hef fengið ljót bréf víða
að frá foreldrum og öðrum að-
standendum sjómanna á smá-
bátum út af réttindaleysi þeirra.
Þessir smábátar eru margir
hverjir að fiska gríðarlega með
aðeins 3-4 í áhöfn og að baki því
er mikil vinna. Það er margt sem
bendir til að lög hafi verið brotin
á þessum sjómönnum og ég
bendi á að þrjú alvarleg sjóslys
hafa orðið á bátum á okkar
félagssvæði síð-
ustu misseri.
Sem betur fer
hefur ekki orð-
ið mannskaði
í þessum
slysum,“ segir
Aðalsteinn.
Ljót bréf
aðstandenda
MIKIÐ ÁLAG UM BORÐ
Aðalsteinn Árni
Baldursson
BAKSVIÐ
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ríkið mun hefja innheimtu 10,5%
fjársýsluskatts af bönkum, lífeyris-
sjóðum og vátryggingafélögum frá
og með næstu áramótum, verði lög-
fest frumvarp sem fjármálaráðherra
lagði fram á Alþingi í gær um skatt-
inn.
Þessi nýja skattlagning hefur ver-
ið mjög umdeild allt frá því hug-
myndir um hana voru fyrst kynntar
þegar fjármálaráðherra lagði fram
fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Nú
er búið að útfæra hvernig álagningu
skattsins verður háttað.
Skatttekjur ríkisins áætlaðar
4,7 til 5,1 milljarður á ári
Samkvæmt frumvarpinu verður
skatturinn innheimtur í staðgreiðslu
um hver mánaðamót.
Ef miðað er við núverandi starfs-
mannafjölda og launaþróun hjá þeim
aðilum sem mynda stofn til útreikn-
ings fjársýsluskattsins er áætlað að
heildarskattstofninn gæti verið á
bilinu 45–49 milljarðar kr. að því er
fram kemur í greinargerð frum-
varpsins. Skatttekjur ríkisins af fjár-
sýsluskattinum eru því áætlaðar um
4,7–5,1 milljarður kr. á ári miðað við
10,5% skatthlutfall.
Lagður á launagreiðslur
Skatturinn verður lagður á heild-
arlaunagreiðslur fjármálafyrir-
tækja, alla þá sem stunda vátrygg-
ingastarfsemi og svo á lífeyrissjóði
landsins. Þannig verður m.a. auk
bankanna, verðbréfafyrirtækjum og
verðbréfamiðlurum og rekstrar-
félögum verðbréfasjóða gert að
greiða skattinn.
Þá verður Íbúðalánasjóður líka
skattskyldur samkvæmt lögum en
Byggðastofnun verður hins vegar
undanþegin skattlagningunni. Er
ástæðan sögð sú að endurskoðun
stendur yfir á starfsemi lánahluta
Byggðastofnunar.
Skatturinn leggst á allar tegundir
launa, skattskyldar launagreiðslur
og þóknanir, s.s. biðlaun, nefndar-
laun, stjórnarlaun, orlofsfé, ökutækj-
astyrki og dagpeninga, gjafir og
risnufé sem teljast kaupuppbót, eft-
irgjöf lána, sem talin er koma í stað
launa og á skattskyld hlunnindi s.s.
fæði, fatnað o.s.frv. Einnig verður
skatturinn lagður á mótframlag
launagreiðenda í lífeyrissjóði.
Ýmsar aðrar greiðslur verða hins
vegar undanþegnar skattskyldu s.s.
eftirlaun og lífeyrir og greiðslur til
starfsmanna í fæðingarorlofi að því
leyti sem þær eru ekki umfram
greiðslur sem launagreiðandi fær úr
Fæðingarorlofssjóði.
AGS mælti með FAT-skatti
Í greinargerð frumvarps fjármála-
ráðherra er vitnað til umræðu um
skattlagningu á fjármálafyrirtæki í
Evrópu og á vettvangi OECD. Rann-
sóknir sýni að fjármálafyrirtæki beri
hlutfallslega minni skatta en aðrar
atvinnugreinar og þetta sé í endur-
skoðun eftir fjármálahrunið 2008.
Fyrirmynd skattsins er sótt til Dan-
merkur og var ákveðið að taka upp
svonefndan FAT-skatt (e. Financial
Activities Tax) sem leggst á laun og
hagnað fjármálafyrirtækja með svip-
uðu sniði og innheimtur hefur verið í
Danmörku af fyrirtækjum sem eru
undanþegin virðisaukaskatti. Þá er
vísað til þess í rökstuðningi fyrir
þessari skattheimtu að Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn hafi mælt með að
FAT-skatturinn verði lagður á hagn-
að og laun starfsmanna hér á landi. Í
frumvarpinu hafi hins vegar verið
ákveðið að fara þá leið til einföldunar
að skattleggja einungis heildar-
launagreiðslur.
Fjármálaráðherra hefur haldið því
fram að þessi skattur sé ígildi virð-
isaukaskatts á fjármálaþjónustu.
Fjármálafyrirtæki og vátrygginga-
starfsemi er í dag undanþegin virð-
isaukaskatti nema ef um þjónustu er
að ræða, sem eingöngu er til eigin
nota og er í samkeppni við aðra, sem
ber að greiða virðisaukaskatt.
Í frumvarpinu er lagt til að sam-
hliða upptöku fjársýsluskattsins
verði undanþáguákvæðin felld brott
þannig að nýi skatturinn komi í
reynd í staðinn fyrir virðisaukaskatt-
sundanþágu þessara fyrirtækja.
Fjárlagaskrifstofa fjármálaráðu-
neytisins segir í umsögn sinni að
áætlaðar tekjur af skattinum séu þó-
nokkurri óvissu háðar. Gert sé ráð
fyrir að hann skili 4,5 milljörðum á
næsta ári. Stofnkostnaður vegna
breytinga á tölvukerfum vegna
skattsins og útgjöld við kynningu og
innleiðingu hans geti orðið um 15
milljónir kr.
Fjársýsluskattur af 45-49 milljörðum
Frumvarp lagt fram um 10,5% staðgreiðsluskatt á launagreiðslur banka, tryggingafélaga og lífeyr-
issjóða Íbúðalánasjóði gert að greiða skattinn Byggðastofnun verður undanþegin skattinum
Morgunblaðið/Golli
Skattaákvarðanir Skattlagning fjármálafyrirtækja er hluti tekjuöflunar-
aðgerða sem til stendur að Alþingi afgreiði fyrir jól.
Áformaður fjársýsluskattur hef-
ur fallið í grýttan jarðveg þeirra
sem eiga að standa undir skatt-
greiðslunum. Talsmenn lífeyr-
issjóða halda því fram að rökin
að baki þessum skatti eigi ekki
við um lífeyrissjóði, sem hafi rétt
eins og aðrir fjárfestar fengið
þungan skell í bankahruninu.
Kostnaðarauki lífeyrissjóð-
anna yrði umtalsverður og að
mati Landssamtaka lífeyrissjóða
má ætla að afleiðingar skatt-
lagningarinnar verði 1% skerð-
ing lífeyrisréttinda á tíu ára
tímabili.
Ljóst er að langstærsti hluti
skattteknanna muni koma frá
bönkum og öðrum fjármálafyr-
irtækjum eða um 80% að því er
talið er skv. heimildum blaðsins.
Ekki er lagt mat á þetta í frum-
varpinu en þar kemur fram að í
fyrra störfuðu 7.900 manns í
fjármálaþjónustu, hjá lífeyr-
issjóðum og við vátryggingar.
Voru heildarlaun þeirra að jafn-
aði 530 þúsund kr. á mánuði skv.
Hagstofunni. Í launakönnun
Samtaka starfsmanna fjármála-
fyrirtækja voru heildarlaun
nokkru lægri eða um 473 þúsund
krónur á mánuði.
1% skerðing
á tíu árum
ÁHRIFIN Á RÉTTINDASÖFN-
UN LÍFEYRISSJÓÐANNA