Morgunblaðið - 02.11.2011, Side 15
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Sá kafli Djúpvegar sem Vegagerðin
nefnir Þröskulda en heimamenn
kalla flestir veginn um Arnkötludal,
hefur verið lokaður hluta úr degi í 19
skipti frá því hann var opnaður opn-
aður haustið 2009, yfirleitt í fremur
stuttan tíma í senn. Svæðisstjóri
Vegagerðarinnar segir að vegurinn
lokist ekki oftar en búast megi við á
þessu svæði. Yfirleitt sé veginum
lokað vegna mikils vinds og lélegs
skyggnis, fremur en að stórir skaflar
banni för.
Bóndi í nágrenninu telur Vega-
gerðina ekki hafa valið nægilega gott
vegstæði og það stuðli að því að veg-
urinn lokist oftar en ella.
Slæmt veður hefur verið á Vest-
fjörðum og á Ströndum undanfarna
daga. Vegurinn um Þröskulda lok-
aðist á mánudag og var enn lokaður í
gær. Raunar var veður svo slæmt að
Vegagerðin reyndi ekki einu sinni að
opna veginn. Steingrímsfjarðarheiði
var einnig lokuð. Um hádegi í gær
mældi veðurstöðin á Þröskuldum
vindstyrk upp á 22 m/s úr norðaustri.
Samkvæmt verklagsreglum Vega-
gerðarinnar á ekki að hefja mokstur
ef vindur er meiri en 15 m/s og hætta
mokstri ef hann fer yfir 18 m/s. Þess-
ar reglur eru til viðmiðunar, bók-
stafnum er ekki stranglega fylgt ef
mat á aðstæðum segir annað.
Slæmt í norðaustanátt
Daníel Jónsson, bóndi á Ingunn-
arstöðum í Geiradal, segir að val á
vegstæði sé gagnrýnivert. Hann
nefnir einkum þá ákvörðun Vega-
gerðarinnar að færa vegstæðið nær
fossinum í Gautsdal en upphaflega
stóð til. Á þessum stað sé töluverð
snjósöfnun, þótt hún valdi reyndar
ekki ófærðinni núna. Þá telur hann
að betur hefði farið á því að hafa veg-
inn fyrir norðan ána í Arnkötludal
enda sé hætt við að mikill snjór safn-
ist á veginn í austanáttum í Hvappi,
sem er hvilft í landslaginu. Ofarlega í
Gautsdal séu aðstæður einnig þann-
ig að skafrenningur komi eftir árfar-
vegi og þegar vegurinn liggi yfir far-
veginn hlaðist snjórinn upp á veginn.
Þetta hefði mátt forðast með því að
leggja veginn á öðrum stað. Daníel
bætir við að innanríkisráðherra vilji
láta leggja fjallveg á sunnanverðum
Vestfjörðum fremur en að fara um
láglendi. „Þar verður bara búinn til
vegur sem verður ófær,“ segir hann.
Virtu ekki skilmála
Karl Kristjánsson, bóndi á Kambi
II í Reykhólasveit, gagnrýndi Vega-
gerðina töluvert vegna vegagerðar-
innar. Hann segir þó að vegstæðið
hafi í sjálfu sér reynst ágætlega.
Gagnrýni hans hafi fyrst og fremst
snúist um að Vegagerðin hafi ekki
farið eftir skilmálum í umhverfis-
mati. Við fossinn í Gautsdal hafi
Vegagerðin fært veginn langt út fyr-
ir þann ramma sem umhverfismatið
leyfði. Ófærðin núna snúist þó ekki
um þessa breytingu á vegstæðinu
heldur sé veðurhæðinni einfaldlega
um að kenna.
Magnús Valur Jóhannsson, svæð-
isstjóri Vegagerðarinnar á Norð-
vestursvæði, segir að alltaf hafi verið
vitað að þarna sé veðravíti, einkum í
norðaustanáttum. Meðan á vega-
gerðinni stóð hafi menn séð betur
hvernig snjór safnaðist að veginum
og hækkað af þeim sökum veginn á
löngum köflum, einkum sunnan við
Þröskulda. Vegstæðið hafi reynst
ágætlega. Aldrei sé hægt að sjá snjó-
söfnun nákvæmlega fyrir, mælingar
standi ekki undir óskeikulum spám.
Hvað tilfærslu vegarins við Gauts-
dal varðar segir Magnús að veg-
hönnun hafi ekki verið lokið þegar
umhverfismatið lá fyrir. Ákveðið
hefði verið að færa veginn til og það
hefði verið litið svo á að Vegagerðin
væri innan leyfilegra marka, þótt
hún hefði farið að mörkum þeirra.
Mikill vindur og lélegt
skyggni lokar Þröskuldum
Bóndi í grenndinni gagnrýnir ákvörðun um vegstæði Verst í norðaustan
Vegurinn um Þröskulda/Arnkötludal
Dagsetning Klst:mín
23. febrúar 2010 01:55
24. febrúar 2010 14:52
25. febrúar 2010 17:26
26. febrúar 2010 03:29
27. febrúar 2010 16:35
28. febrúar 2010 02:21
6. febrúar 2010 11:52
7. apríl 2010 02:25
13. nóvember 2010 05:39
14. nóvember 2010 01:46
18. nóvember 2010 03:21
7. janúar 2011 01:50
8. janúar 2011 01:22
10. janúar 2011 01:27
12. janúar 2011 02:02
11. mars 2011 00:56
16.mars 2011 01:13
31. október 2011 04:06
1. nóvember2011 24:00
Hólmavík
Búðardalur
Grunnkort: LMÍ
Heimild: Vegagerðin
Þorskafjarðar-
heiði
Hvammstangi
Borðeyri
Laxár
dalsh
eiði
Brattabrekka
Þjóðv. 1
Þjóðv. 1
Gautsdalur
Arnkötludalur
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og KIA á Íslandi.
Dæmi um kjarabíla
Tegund Gerð Árgerð Mán. Tilboðsverð Afborgun
pr. mánuð*
Toyota Yaris 05/08 60 1.390.000 20.290 kr.
Mitsubishi L200 10/06 60 2.190.000 31.890 kr.
Subaru Legacy 12/05 48 1.690.000 29.890 kr.
Toyota Corolla 05/05 36 990.000 22.390 kr.
Nissan X-Trail 07/08 72 2.990.000 37.490 kr.
Kia cee’d 01/11 84 3.490.000 38.890 kr.
Toyota Yaris 11/03 36 850.000 19.290 kr.
*Afborgun miðast við 30% útborgun og óverðtryggðan bílasamning á 8,95%
föstum vöxtum fyrstu 36 mánuðina. Nánari upplýsingar á www.landsbankinn.is.
KJARADAGAR
Notaðir bílar á góðu verði.
Sérstök kjör á völdum bílum og frábærir lánamöguleikar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-0
8
6
5Kia cee’d 2008
Verð 1.790.000 kr.
Útborgun 537.000 kr.
25.990 kr.
m.v. 60 mán.
6 ára ábyrgð eftir frá framleiðanda
Dæmi um frábær kaup
Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveit-
arstjóri Strandabyggðar, vill að
Vegagerðin setji upp skilti við
Bröttubrekku þannig að ferða-
menn sjái hvort vegurinn um Arn-
kötludal sé lokaður eða opinn.
„Það skiptir máli að það séu upp-
lýsingaskilti fyrr þegar fólk kemur
að sunnan, þannig að það geti val-
ið að fara um Holtavörðuheiði og
Strandir.“ Einnig þurfi að koma
fram þegar ekið er að norðan hvort
vegurinn um Strandir sé opinn.
Þörf sé á meiri upplýsingum, ekki
síst fyrir erlenda ferðamenn.
Magnús Valur Jóhannsson,
svæðisstjóri hjá Vegagerðinni,
segir að í sjálfu sér komi til greina
að setja skilti einnig við Bröttu-
brekku. „En þetta eru svo af-
skaplega fá tilfelli og fólk er líka
farið að fylgjast betur með færð,
bæði í gegnum símanúmerið 1777
og á vefnum líka,“ segir hann.
Sjái upplýsingar í tæka tíð
GETA VALIÐ UM AÐRAR LEIÐIR TIL OG FRÁ HÓLMAVÍK
Áfangi Kristján L. Möller, þáv.
samgönguráðherra, afhjúpar
minnisvarða um að hægt sé að
aka á bundnu slitlagi milli Reykja-
víkur og Ísafjarðar.
Markaðshlutdeild
íslensks æðardúns
er um 80-90% á
heimsmarkaði æð-
ardúns og var út-
flutningsverðmæt-
ið um 400 milljónir
króna í fyrra. Guð-
björg Helga Jó-
hannesdóttir, at-
vinnu- og hlunn-
indaráðgjafi
Bændasamtaka Íslands, segir að í
dúninum felist auk þess mikil tæki-
færi í ferðaþjónustu innanlands.
Guðbjörg fjallar um íslenskan æð-
ardún og verðmæti hans á fræðslu-
kvöldi Íslenska vitafélagsins í Sjó-
minjasafninu Víkinni, Grandagarði, í
kvöld. Hún segir að unnið sé að því að
styrkja fullframleiðslu dúnvara á Ís-
landi. Æðardúnninn hafi lengi verið
„ósýnilegur“ hérlendis og því þurfi að
breyta. Fyrir nokkrum áratugum
hafi nánast öll nýfædd börn fengið
æðardúnsæng í sængurgjöf og
ástæða sé til að endurvekja þann
góða sið í ríkum mæli.
Um 400 æðarbændur
Um 400 æðarbændur eru við
strandlengju landsins. Árlega eru
seld um þrjú tonn að meðaltali af
hreinsuðum dúni og sjá um 10 manns
um hreinsunina. Guðbjörg Helga
segir að dúnsængur séu fyrirferð-
armestar en auk þess sé ýmis fatn-
aður framleiddur úr dúni eins og til
dæmis treflar, hnéhlífar og fleira.
Framleiðsla á þessum vörum fari
vaxandi innanlands og tækifærin séu
mörg.
Íslenska vitafélagið er félag um ís-
lenska strandmenningu. Guðbjörg
segir að búið sé að taka hlunn-
indasýninguna á Reykhólum í gegn
og æðarsetur hafi verið opnað í
Stykkishólmi. Margt annað merki-
legt sé í gangi og hafa beri í huga að
æðarrækt sé vistvæn atvinnugrein.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
hefst kl. 20 í kvöld. steinthor@mbl.is
Mörg
tækifæri í
æðardúni
Útflutningur fyrir
um 400 milljónir á ári
Guðbjörg Helga
Jóhannesdóttir