Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 26

Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Sudoku Frumstig 2 8 5 7 3 6 1 5 7 6 6 2 3 9 3 2 8 1 2 3 5 1 8 2 6 9 3 7 6 7 8 4 6 8 9 4 2 5 5 8 9 6 2 6 4 7 3 3 7 4 5 5 1 9 1 8 3 4 1 9 5 3 7 7 2 3 6 6 7 8 3 4 1 5 9 4 8 1 7 6 3 2 5 9 3 2 6 9 8 5 4 7 1 5 7 9 4 2 1 6 8 3 6 9 4 3 7 2 8 1 5 2 5 7 1 9 8 3 6 4 1 3 8 5 4 6 7 9 2 9 4 5 8 3 7 1 2 6 8 6 3 2 1 9 5 4 7 7 1 2 6 5 4 9 3 8 3 4 5 7 9 1 2 6 8 8 6 7 2 3 4 1 5 9 1 9 2 5 8 6 4 7 3 9 5 3 1 6 7 8 2 4 6 8 4 9 2 3 7 1 5 7 2 1 8 4 5 3 9 6 5 7 8 4 1 9 6 3 2 2 3 9 6 7 8 5 4 1 4 1 6 3 5 2 9 8 7 1 3 2 5 4 8 7 9 6 9 8 6 2 3 7 1 5 4 5 7 4 1 6 9 2 8 3 3 1 9 7 8 6 5 4 2 6 2 8 4 5 1 9 3 7 4 5 7 3 9 2 6 1 8 2 9 1 8 7 4 3 6 5 7 4 5 6 1 3 8 2 9 8 6 3 9 2 5 4 7 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 2. nóvember, 306. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh. 15, 12.) Víkverji hefur séð þrjár nýjar, ís-lenskar kvikmyndir á und- anförnum vikum. Hrafnar, sóleyjar og myrra er skemmtileg og fjörug barna- og unglingamynd fyrir alla fjölskylduna. Teiknimyndin um Þór og hetjur Valhallar er einnig hin besta skemmtun. Þar hefur þrotlaus vinna skilað frábæru verki. x x x Myndin Borgríki er af allt öðrumtoga. Þar er ekki átt við Kardimommubæinn. Borgin er subbuleg og ógeðfelld. Lögreglan er máttvana í samskiptum við glæpa- mennina, ef ekki á mála hjá þeim. Enginn er öruggur og ofbeldið alltaf skammt undan. Það er ónotalegt að sitja undir myndinni, en þó er farin sú leið, sem meistara Alfred Hitch- cock þótti alltaf affarasælust, að sýna ekki hrottaskapinn, heldur gefa hann í skyn. Manni er varpað fram af svölum, en hann sést ekki lenda. Rétt áður en höggið fellur er klippt. Ímyndunaraflið er látið um að klára atriðið. Þessi aðferð hefur goldið rækilega fyrir metnað tæknimanna, brellumeistara og tölvusérfræðinga á undanförnum árum. Nú er ekki til það athæfi, sem ekki er hægt að sýna áhorfandanum fyrir tilstilli tækninn- ar og þá er náttúrlega óþarfi að halda aftur af sér. Víkverji veit ekki hvort sú leið sem var farin í Borgríki að sýna ekki versta ofbeldið, heldur gefa það í skyn, var farin vegna tak- markaðra fjárráða eða faglegra sjónarmiða, en fagnar því hver sem ástæðan var. Víkverji er þó ekki viss um að honum hefði þótt óþægilegra að sitja undir myndinni þótt allt hefði verið sýnt. Stundum er nefni- lega minna meira. x x x Víkverja þótti sérlega skemmti-legt að sjá leikaranum Jonat- han Pryce bregða fyrir í Borgríki. Pryce hefur komið víða við, en Vík- verja fannst hann eftirminnilegastur í myndinni Brazil eftir Terry Gilliam þar sem hann leikur skriffinn, sem lendir í miklum hremmingum þegar hann ætlar að leiðrétta stjórnsýslu- glöp í óræðu framtíðarríki. víkver- ji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 viðhaldið, 8 drekkur, 9 vindleysu, 10 tala, 11 bik, 13 nákvæm- legar, 15 afla, 18 kölski, 21 drif, 22 hali, 23 dýrs- ins, 24 kom í ljós. Lóðrétt | 2 maula, 3 þoku, 4 áform, 5 ilmur, 6 sykurlaus, 7 mynni, 12 heydreifar, 14 tunna, 15 vatnsfall, 16 Evr- ópumann, 17 góða eðlið, 18 rifa, 19 sárabindis, 20 nánast. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gáski, 4 sútar, 7 tófan, 8 álfum, 9 afl, 11 aðan, 13 harm, 14 eflir, 15 form, 17 ómur, 20 ask, 22 ræðin, 23 lafði, 24 sinna, 25 remma. Lóðrétt: 1 gutla, 2 sífra, 3 iðna, 4 stál, 5 tyfta, 6 rúmum, 10 fólks, 12 nem, 13 hró, 15 forks, 16 rúðan, 18 máfum, 19 reisa, 20 anga, 21 klór. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Léttar opnanir. N-Allir. Norður ♠D53 ♥Á6 ♦3 ♣K975432 Vestur Austur ♠10987 ♠K62 ♥D10 ♥G9832 ♦1087 ♦ÁG942 ♣G1086 ♣– Suður ♠ÁG4 ♥K754 ♦KD65 ♣ÁD Suður spilar 3-4G. Í úrslitaleik HM varð Justin Lall sagnhafi í fjórum gröndum eftir að hafa gefið makker sínum, Joe Grue, undir fótinn með slemmu. Grue af- þakkaði boðið, enda hafði hann opn- að létt á Precision 2♣ og þótti nóg að gert. Út kom ♠10 og Lall taldi víst að nú hefði slemma farið for- görðum. Þar til hann lagði niður ♣Á og sá helleguna í líflitnum. En því miður – ekki aðeins var vonlaust að vinna slemmu, heldur reyndust 4G tveimur slögum meira en Lall réð við. Bauke Muller spilaði þrjú grönd á hinu borðinu. Þar passaði norður í upphafi og austur opnaði á 1♥. Sú fislétta opnun leiddi Muller á rétta braut. Hann sótti ♦Á, tók laufslag- ina þrjá og sendi austur inn í lokin til að spila frá ♠K. 2. nóvember 1906 Fyrsta kvikmyndahúsið, Reykjavíkur Biograftheater, tók til starfa í Fjalakettinum við Aðalstræti. Meðal annars var sýnd mynd frá móttöku ís- lenskra þingmanna í Fredens- borg sumarið áður og önnur frá jarðarför Kristjáns kon- ungs níunda. Kvikmyndahúsið var síðar nefnt Gamla bíó. Húsið var rifið árið 1985. 2. nóvember 1913 Morgunblaðið kom út í fyrsta sinn. Í ávarpi til lesenda sagði Vilhjálmur Finsen ritstjóri: „Dagblað það sem hér byrjar starf sitt á fyrst og fremst að vera áreiðanlegt, skemmtilegt og lipurt ritað fréttablað.“ Hvert eintak kostaði 3 aura. Í upphafi voru áskrifendurnir 38 en ári síðar á annað þús- und. 2. nóvember 2000 Verslunarmiðstöðin Glerár- torg á Akureyri var opnuð. Þar voru þá tuttugu verslanir af ýmsu tagi í níu þúsund fer- metra húsnæði sem byggt var á hálfu ári. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri, er átta- tíu ára í dag. „Ég er búinn að halda formlega upp á þetta með minni nánustu fjölskyldu sem dvelur að stórum hluta í útlöndum svo það varð að stilla þetta af,“ svarar Ásgeir spurður hvort hann ætli að halda upp á stórafmælið. „Við fórum út og hitt- um þar fjölskyldu okkar sem kom frá sex löndum. Við eigum þrjú börn og sjö barnabörn og búa þau nánast öll erlendis. Svo undarlega vildi til að þegar við vorum búin að ljúka þessu afmælishaldi fór hluti af hópnum til Mósambík. Þannig að við dreifðumst til sjö landa þegar veislunni var lokið.“ Það er ekki hlaupið að því hjá Ásgeiri að halda upp á afmælið sitt á réttum degi þegar fjölskyldan er svona dreifð. „Ég held nú ekki oft upp á afmælið mitt en þegar ég varð sextugur þurfti ég að seinka veislunni um viku því það var ekkert barnanna á landinu á sjálfan af- mælisdaginn. Það tókst samt ekki að ná öllum í afmælið.“ Þrátt fyrir að veisluhöldum sé lokið ætla Ásgeir og kona hans að gera sér dagamun í dag og fara í óvissuferð um Suðurland. „Við erum ekkert sérstakt ferðafólk en okkur finnst afskaplega gott að keyra um í rólegheitum,“ segir Ásgeir. Ásgeir Jóhannesson er 80 ára Óvissuferð um Suðurland Söfnun  Jónas Thor Helgason og systk- inin Jóhann Lárus Lynge og Jóhanna Lilja Helgabörn voru með söfnun í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þau færðu Rauða kross- inum ágóðann, 8.915 krónur, til styrktar börnum í Sómalíu. Flóðogfjara 2. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.50 1,2 11.22 3,4 17.45 1,3 23.55 3,0 9.14 17.10 Ísafjörður 0.46 1,6 6.49 0,7 13.24 1,8 20.05 0,6 9.32 17.02 Siglufjörður 3.22 1,1 9.03 0,5 15.29 1,2 21.55 0,3 9.15 16.44 Djúpivogur 1.41 0,6 8.19 1,9 14.40 0,8 20.27 1,6 8.47 16.36 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Gættu þess að þú standir ekki í vegi fyrir metnaðarfullum tilburðum maka þíns. Þú finnur til vanmáttar, þú skalt samt ekki gefast upp. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það sem er þér eðlislægt, finnst öðrum öfundsverður hæfileiki. Haltu bara þínu striki og komdu öðrum í skilning um hvaða álit þú hefur á málunum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Miklar breytingar hafa átt sér stað hjá þér hvað vinnu varðar. Framtíð þín er bjartari en þú þorðir að vona. Þú færð í hnén er þú sérð vissa persónu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Við notum sjaldnast tækifærið til að tjá okkur við fólk er við hittum á förnum vegi. Hvernig væri að prófa það? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Reyndu að forðast að eyða of miklum peningum. Talaðu hreint út. Þér blöskrar agaleysið í samfélaginu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Af þér er krafist aga og ábyrgðar, auk mikillar vinnusemi. Markmið þitt næstu vik- urnar verður að víkka sjóndeildarhringinn með ráðum og dáð. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er lítil hætta á að þú gerir mistök. Einhver segir þér hvernig í pottinn er búið. Þú ættir að hreyfa þig meira en þú gerir. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er einhver valdabarátta í gangi í kringum þig og þú þarft að hafa gæt- ur á þínum hlut. Maður þarf ekki endilega að samþykkja lífsmáta annarra þó að maður brosi og segi ekki neitt. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert að mála þig út í horn og verður að söðla um. Vertu ekkert að gráta glötuð tækifæri heldur brettu upp ermarnar og eigðu frumkvæðið og þá fylgja hinir á eft- ir. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er eins og allt lífið í kringum þig líði hjá sem kvikmynd. Reyndu að finna þér skemmtilegt áhugamál. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ýmis tækifæri standa þér opin og það er erfitt að velja. Þig langar sumpart að lenda í ævintýrum eða upplifa eitthvað nýtt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Nú er rétti tíminn til þess að bera upp spurningu, sem hefur lengi verið að brjótast um í þér. Ný tekjulind gerir vart við sig. Stjörnuspá Sigurður Ingv- arsson rafverk- taki, Sunnubraut 8 Garði, verður sjötugur 4. nóv- ember næstkom- andi. Af því til- efni ætla hann og fjölskylda hans að bjóða til afmælisfagnaðar í sam- komuhúsinu í Garði á afmælisdag- inn milli kl. 19 og 22. Gjafir eru af- þakkaðar en þeim sem vilja styrkja Félag heyrnarlausra er bent á að söfnunarbauk á staðnum. 70 ára 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f3 O-O 6. Be3 c5 7. Rge2 Da5 8. Rc1 cxd4 9. Rb3 De5 10. Bxd4 Df4 11. g3 Dg5 12. De2 Rc6 13. Be3 Dh5 14. Bg2 Rd7 15. Rd5 e6 16. Rf4 De5 17. Rd3 Df6 18. h4 De7 19. h5 a5 20. hxg6 fxg6 21. a4 d5 22. cxd5 exd5 23. exd5 Rb4 24. Hh4 Rc2+ 25. Dxc2 Dxe3+ 26. De2 Dg5 27. Kf1 Rf6 28. Rbc5 Dxg3 29. Df2 Dd6 30. Hd1 Rg4 31. De2 Dg3 32. Hxg4 Bxg4 33. Re4 Staða kom upp á sterku alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Saratov í Rússlandi. Alexander Morozevich (2737) hafði svart gegn Alexander Moiseenko (2726). 33… Hxf3+! 34. Bxf3 Bh3+ 35. Bg2 Hf8+ 36. Kg1 Bd4+ 37. Kh1 Bxg2+ 38. Dxg2 Dh4+ 39. Dh2 Dxe4+ 40. Dg2 Hf3 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.