Morgunblaðið - 02.11.2011, Síða 27

Morgunblaðið - 02.11.2011, Síða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand FRÚ FJÓLA ER Í SÍMANUM MIKIÐ VAR HÚN SNÖGG ÉG ER ORÐIN EITTHVAÐ SLÆM Í HAND- LEGGNUM GÆTI VERIÐ ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ OLNBOGINN ÞÚ GÆTIR VERIÐ AÐ FÁ TENNISOLNBOGA. KEMUR FYRIR TENNISSPILARA, SPJÓT- KASTARA OG LÍKA ÞVOTTA- KONUR, Í GAMLA DAGA ÉG TEK EKKI Í MÁL AÐ ÉG SÉ AÐ FÁ ÞVOTTA- KONUOLNBOGA!! EKKI FARA NEITT Í KVÖLD, VIÐ ÆTLUM Í HEIMSÓKN TIL MÖMMU Á EFTIR FYRR SKAL ÉG DAUÐUR LIGGJA EN AÐ FARA Í HEIMSÓKN TIL MÖMMU ÞINNAR!! MÁ ÉG ÞÁ ERFA SKJÖLDINN ÞINN OG SVERÐIÐ? ÞAÐ ER MJÖG GAMAN Á ÞESSU MÓTORHJÓLI ÉG HEF SAMT ENNÞÁ ÁHYGGJUR AF ÞÉR KANNSKI MYNDI ÞAÐ RÓA ÞIG EF ÞÚ PRÓFAÐIR AÐ KOMA MEÐ MÉR Á BAK UH... ÉG VEIT EKKI... ÞARF ÉG AÐ FÁ MÉR LEÐURBUXUR? BYRJUM NÚ Á ÞVÍ AÐ PRÓFA HVAÐ ERTU AÐ GERA? SLEPPTU MÉR! EKKI FYRR EN ÞÚ SEGIR MÉR HVAR HANN ER! SVONA SVARAÐU MÉR! EF ÞIG LANGAR AÐ SPJALLA... ...ÞÁ ER ÉG MEIRA EN TILBÚINN TIL AÐ HLUSTA... ...Á ALLAR ÞÍNAR RAUNIR BANDALAGIÐ TILKYNNTI Í DAG AÐ EINHVER SAUÐUR SEM FERÐAÐIST AFTUR Í TÍMANN, TIL 20. ALDARINNAR, HAFI SKILIÐ EFTIR SIG FRUMGERÐ AF STAR TREK FJARSKIPTATÆKI Rollur og beljur og ær og kýr Sigurjón á Lok- inhömrum og Sigríður á Hrafnabjörgum töl- uðu ekki um rollur og beljur. Þau ræddu yf- irleitt um ær og kýr: Ærin bar þremur lömbum. Ærnar stóðu allar í hnapp fyrir inn- an Katrínarhólinn. Ærin var útigengin í Fuglberginu og í tveimur reifum. Gefðu ánni góða tuggu. Kýr- in fór alla leið fram á dal með kálfinn sinn. Ertu búinn að mjólka kýrnar? Þetta er kúgæft hey. Kúnni þótti gott að láta mjólka sig. Farðu nú að sækja kýrnar! Ætli henni Dísu þætti ekki skrýtið ef vísan hennar hljóðaði svo: Dísa heitir draumlynd mær í dalakofa býr. Hún unir sér í sveitinni með sínar rollur og beljur. Þau Sigurjón og Sigríður voru að vísu „ómenntað fólk og það var Dísa í dalakofanum einnig. En þau voru útskrifuð úr háskóla alþýðunnar með hæstu einkunn. Ætli sá skóli sé ekki fremstur allra skóla þegar allt kemur til alls? Hallgrímur Sveinsson. Landlaust verkafólk Innanríkisráðherrann hrósar sér af því að hann sé hættur að senda landlaust verkafólk til Grikk- lands en sendir það eitthvað annað í stað- inn. En er yfirleitt nauðsynlegt að senda það burt? Fólk fær ekki ríkisborgararétt nema það kunni ís- lensku. Þessu ætti að breyta – ýmsir góðir menn tala ekki ís- lensku. Þá eru það skuggalegar fréttir sem fram komu í viðtali við Geir Jón Þórisson að leggja eigi stöðu yfirlögregluþjóns niður. Yfirlögregluþjónar í Reykja- vík hafa löngum borið höfuð og herðar yfir aðra og orðið þjóðsagna- persónur í lifanda lífi. Erlingur Páls- son synti úr Drangey eins og Grettir sterki og sagði við nýliða í lögregl- unni, sem seinna varð sýslumaður, að besti kostur góðs lögreglumanns væri sá að hann kynni að loka aug- unum. Jóhann Már Guðmundsson. Ást er… … að vera í rusli því þú hefur ekki séð hann síðan í gær. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikf. kl. 8.45. postulín kl. 9, vatnsleikfimi kl. 10.50. Útskurður/ postulín/Grandabíó kl. 13. Árskógar 4 | Handav./smíði/útskurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10. Söngstund kl. 11. Tölvunámskeið kl. 13.15. Boðinn | Vatnsleikfimi lokaðir hópar kl. 9.15. Bónusrúta kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist og handavinna allan daginn. Bústaðakirkja | Handavinna, spil og föndur. Auður Ólafsdóttir sjúkraþjálfari kemur í heimsókn. Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, verslunarferð kl. 14.45. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, vefnaður kl. 9. Listamaður mánaðarins. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar kl. 10. Síðdegisdans kl. 14. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbeinandi í handavinnu kl. 9, botsía kl. 9.15/10.30, glerlist kl. 9.15/13, félagsvist kl. 13, við- talstími FEBK kl. 15, bobb kl. 16.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Mynd- list kl. 9, ganga kl. 10. Postulínsmálun og kvennabrids kl. 13. Íslendingasögur Sturlunga kl. 16. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 11, vatns- leikfimi kl. 12.15/14.15, brids og búta- saumur kl. 13, kaffihlaðborð kl. 14. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Gler Mýrarhúsaskóla kl. 9. Leir/ mósaík kl. 9. Botsía kl. 10.45. Kaffispjall í krók kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkju kl. 12. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatns- leikfimi kl. 18.30. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Þorvaldur með harmonikkuna, sungið dansað og léttar leikfimiæfingar kl. 10. Frá hád. er spilsalur opinn. Fræðslu- og kynn- isfundur v/Fagrabergs kl. 15. Fös. 4. nóv. kynnisferð um miðborgina, m.a. Hörpu, skráning á staðnum og s. 575 7720. Grensáskirkja | Samverustund í safn- aðarheimilinu kl. 14. Hraunbær 105 | Handavinna/ tréskurður kl. 9. Hjúkrunarfr. kemur kl. 9, brids kl. 13. Hraunsel | Pútt kl. 10, bókmenntaklúbb- ur 9. nóv. Línudans kl. 11, handavinna og glerbræðsla kl. 13, bingó kl. 13.30, tré- skurður kl. 14, Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/9.30. Vinnustofa kl. 9. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Skartgripakynn- ing kl. 12. Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50, framsagnarhópur Soffíu í Baðstofu/ salnum kl. 10/13, magadans kl. 12 í Listasmiðju. Opnun myndlistarsýningar Kristjönu Þórðardóttur kl. 14 í Salnum. Gáfumannakaffi kl. 15. Fös. 4. nóv. kl. 14 flytur Ljóðahópur Gjábakka í Kópavogi frumort ljóð í Salnum. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar byrj- endur kl. 14.40, framhaldsflokkur kl. 15.30. Pílates kl. 17. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun fimmtudag er pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10. Postulínsmálun/útskurður kl. 13. Neskirkja | Opið hús kl. 15. Tónlist og trú. Haraldur Hreinsson guðfræðingur ræðir um hvernig tónlist auðgar trúar- hugsun. Haraldur hefur lokið meistara- gráðu í guðfræði frá Harvard í Bandaríkj- unum. Kaffiveitingar í upphafi. Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Fé- lagsvist kl. 14. Hjúkrunarfræðingur kl. 10. Vesturgata 7 | Nýtt tölvunámskeið fyrir byrjendur og framhald hefst 18. nóv- ember. Leiðbeinandi María Óskarsdóttir. Upplýsingar og skráning í síma 535- 2740. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband og handavinnustofa kl. 9, morgunstund kl. 10, verslunarferð kl. 12.20, upplestur kl. 12.30, dansað með Vitatorgsbandinu kl. 14. Góðkunningjar Vísnahornsins Pét- ur Stefánsson og Friðrik Stein- grímsson kankast gjarnan á í Vísnahorninu. En þeir hafa aldrei hist, enda býr Friðrik í Mývatns- sveit og Pétur syðra. Um helgina gafst Pétri samt kostur á að hitta Friðrik, en komst ekki vegna vinnu og varð þá að orði: Nú er fátt sem fær mér yljað, fer ég samt að yrkja brag. Friðrik hefði ég feginn viljað fá að hitta nú í dag. Áfram líða ævistundir, allt sem fæðist; lifir, deyr. – Eflaust verða okkar fundir einhvers staðar síðar meir. Þorsteinn Jónsson bóndi á Sval- barða í Miðdölum, móðurafi Péturs, orti eitt sinn á mannamóti: Heilsa skal með hefð og kurt, hér eru nýir sauðir. Gamlir vinir bak og burt bæði lífs og dauðir. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af vinskap og vísum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.