Morgunblaðið - 02.11.2011, Síða 28
AF HETJUM
Örn Þórisson
orn@mbl.is
Á ferðalagi mínu umBandaríkin nýlega heim-sótti ég vinafólk í Norður-
Karólínu. Einn morguninn að lokn-
um kaffisopa og ristuðu brauði
banka nágrannar uppá og vilja
endilega bjóða okkur í heimsókn,
sýna húsið sitt og spjalla á þennan
einstaka jákvæða ameríska hátt
sem Íslendingum er framandi. Eft-
ir að hafa dáðst að garðyrkju
hjónanna, húsinu og húsbúnaði,
liggur leiðin uppá háaloftið, en þar
hefur húsbóndinn Milo Paces,
kennari á eftirlaunum frá New
York, hreiðrað um sig með minn-
ingum um uppruna sinn, unglings-
árin og starfsferilinn. Fljótt vekja
mesta athygli mína Tarzan-bækur
Edgar Rice Burroughs, Star Trek
blöð, Sígildar sögur og bækur um
Doc Savage.
Fyrir mér er Doc Savage einaf hetjum unglingsáranna og
hef ég lengi reynt að safna út-
gáfum af ævintýrum hans. Fyrir
ókunnuga þá er rétt að upplýsa að
Doc Savage er ein af fyrstu ofur-
hetjum dægurbókmenntanna.
Lester Dent skrifaði sögurnar
undir dulnefninu Kenneth Robe-
son, um það bil 180 sögur í allt,
sem gefnar voru út af Street &
Smith í tímaritsformi á árunum
1933 til 1949. Sögurnar segja frá
ævintýrum Doc Savage og félaga
Bronsmaðurinn Doc Savage
hans sem allir eru búnir ein-
hverjum sérkennum og hæfileikum
sem nýtast í baráttu þeirra við
glæpalýð. Doc sjálfum er lýst sem
trölli að burðum með óvenjulega
útgeislun og litarhaft, sagður vera
bronslitaður (heltanaður?). Doc er
uppfinningamaður, skurðlæknir,
vísindamaður, jafnvígur á öll vopn
og fimur í bardaga. Óvinir Docs
voru gerspilltir glæpamenn, skil-
getin afkvæmi styrjaldar í Evrópu
og kalda stríðsins, með gereyðingu
heimsins á dagskrá. Eitt það
óvenjulegasta við sögurnar er að
Doc drap aldrei skúrkana, heldur
tók þá úr umferð, sendi þá í dul-
arfulla endurhæfingu og jafnvel
skurðaðgerð þar sem andfélagsleg
hegðun var fjarlægð. Doc Savage
er ofurhetja án ofurkrafta, af-
kvæmi Sherlock Holmes og greini-
legur forfaðir ofurhetjanna, Su-
perman, Batman og Fantastic
Four.
Milo Paces og ég deilum
áhuga á gömlum vísindaskáldskap
og ofurhetjum. Lengra nær þó
ekki skyldleikinn. Milo er sonur
flóttamanns frá yfirtöku komm-
únista á Tékklandi. Flúði hann til
New York með foreldrum og fjöl-
skyldu skömmu eftir seinni heims-
styrjöld með tvær hendur tómar.
Faðir hans framleiddi vinsæla lí-
kjöra í heimalandinu, en flúði til
Ameríku í leit að nýju lífi eftir að
kommúnistar gerðu verksmiðju
hans upptæka. Það er engin lygi
að ameríska hugmyndin um frelsi
og tækifæri handa öllum rættist
hjá fjölskyldu Milo, sem er stoltur
af tékkneskum uppruna sínum en
eftir allt saman hreykinn af því að
vera Bandaríkjamaður. Á sinn hátt
hefur Milo líkt og Doc Savage
sigrast á ófrelsisöflum.
Á háaloftinu hjá Milo kennirýmissa grasa, m.a. eru þar
frumútgáfur af Sígildum sögum og
fjöldi af Doc Savage-bókum, harð-
spjalda- og kiljuútgáfur. Þar er
líka Star Trek-jólaskrautið sem ár-
lega fer á sérstakt jólatré, við hlið-
ina á öllu hefðbundnara tré. Milo
kemur auga á áhuga minn á þess-
um bókmenntum og skyndilega
segir hann, mig langar að gefa þér
Doc Savage-bækurnar. Ekki nokk-
ur séns að mótmæla góðum hug.
„Come on, you take it!“ segir Milo.
Nánar tiltekið þáði ég, svolítið
lúpulegur, 70 af fyrstu Doc Sa-
vage-bókunum í kiljuútgáfu Ban-
tam frá 1964 til 1979, sem frægar
eru fyrir forsíður sínar. Það eru
e.t.v. ekki mikil peningaverðmæti í
kiljunum. Lausleg skoðun á Ebay
sýnir að hver bók selst á nokkra
dollara, en gjöfin lýsir engu að síð-
ur örlæti mannsins. Eftir að hafa
þakkað góða gjöf og fallist í faðma
á háaloftinu, kveð ég Milo. Nú svíf
ég í heimi Doc Savage og félaga,
berst við ófrelsisöfl og varmenni,
heima í stofunni.
» Fyrir mér er DocSavage ein af hetjum
unglingsáranna og hef
ég lengi reynt að safna
útgáfum af ævintýrum
hans.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011
Rás 2 verður með beina útsendingu
frá útgáfutónleikum Coldplay í Köln
í Þýskalandi á morgun. Útsendingin
er í samstarfi við WDR í þýskalandi
og EBU. Coldplay mun spila í u.þ.b.
75 mínútur og á efnisskránni eru lög
af nýju plötunni, Mylo Xyloto, í
bland við eldri slagara. Eftir þessa
tónleika leggst sveitin svo í yfir-
gripsmikið tónleikaferðalag um ver-
öld víða. Nefnd plata er fimmta plata
sveitarinnar og kom hún út fyrir
stuttu. Hún var m.a. unnin með Bri-
an Eno og er konseptplata sem tek-
ur á lífi ungmenna í grámóskulegu
stórborgarlífi. Tvö lög hafa nú komið
út á smáskífum, „Every Teardrop Is
a Waterfall“ og „Paradise“.
Vinsæl Coldplay er ein allra vinsælasta hljómsveit heims í dag.
Coldplay í beinni á Rás 2
Bókaheimur Tónlist.is var opnaður í gær. Tónlist.is, í
samvinnu við útgáfufyrirtækið Skynjun, opnar þar með
sérstakan bókaheim þar sem hægt verður að sækja nýj-
ar vinsælar hljóðbækur. Vefurinn er opnaður með einni
stærstu útgáfu ársins, Einvíginu eftir Arnald Indriða-
son, og kemur hljóðbókin út sama dag og innbundna út-
gáfan. Til að byrja með verða nálægt 100 titlar í boði en
úrvalið mun aukast jafnt og þétt. Kappkostað verður að
gefa út hljóðbækur samhliða prentuðum bókum. Meðal
titla sem verða í boði eru Einvígið eftir Arnald Indriða-
son í lestri Ingvars E. Sigurðssonar, Brakið eftir Yrsu Sigurðardóttur í
lestri Elvu Óskar Ólafsdóttur, Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í lestri
Hönnu Maríu Karlsdóttur og trúir þú á töfra eftir Vigdísi Grímsdóttur í
lestri Unnar Aspar Stefánsdóttur.
Straumhvörf í aðgengi
hljóðbóka á Íslandi
KORTIÐ GILDIR TIL
31.01.2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Hafðu samband í síma 569 1122 hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
FRÁBÆRT TILBOÐ Á HREKKJUSVÍNIN.
SÝNING SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
Almennt miðaverð: 3.990 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 2.490 kr.
ATH! Takmarkaðar sýningar í boði. Einungis hægt að kaupa á www.midi.is
Hvernig nota ég afsláttinn? Farðu inn á midi.is, veldu þér miða til kaups og í auða reitinn í
skrefi #3 sláðu þá inn eftirfarandi: „HREKKJUSVIN“. Smelltu á „Senda“ og þá sérðu að
afslátturinn kemur inn um leið. ATH: Staðfestið EKKI greiðslu fyrr en afsláttur er virkur.
MOGGAKLÚBBSTILBOÐ
Sýningar í boði
kl. 20:00 á eftir-
töldum dögum:
28. október
5. nóvember
og 6. nóvember
kl. 16:00