Morgunblaðið - 11.11.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.11.2011, Qupperneq 16
Deilt um sérstaka vaxtaniðurgreiðslu » Greidd er út sérstök vaxta- niðurgreiðsla til heimila á þessu ári og því næsta » Bankar og lífeyrissjóðir eiga að fjármagna 3,5 milljarða af 6 milljarða kostnaði sem hlýst af aðgerðunum á ári, en ekki hef- ur tekist að semja við lífeyris- sjóði » Samtök fjármálafyrirtækja segja ekkert samstarf hafa ver- ið haft við þau um fjármögnun Hörður Ægisson hordur@mbl.is Fjármögnun sérstakrar vaxtaniður- greiðslu til heimila á þessu ári og því næsta, sem var hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna skuldavanda heimilanna og kynntar voru í desem- ber 2010, er enn ólokið. Samkvæmt viljayfirlýsingu rík- isstjórnarinnar og fjármálafyr- irtækja og lífeyrissjóða var ætlunin að leita leiða til að þeir síðarnefndu fjármögnuðu útgjöldin. Á síðari stig- um málsins var tekin sú ákvörðun að heildargreiðslur þessara aðila yrðu 3,5 milljarðar á árinu 2011. Við- skiptabankarnir hafa greitt 2,1 millj- arð króna í formi tímabundins við- bótarskatts, en hins vegar liggur enn ekki fyrir hvernig hlutur lífeyrissjóð- anna, 1,4 milljarðar, verður fjár- magnaður. Forsvarsmenn lífeyr- issjóðanna hafa hafnað öllum hugmyndum stjórnvalda um að hlut- ur þeirra verði fjármagnaður með einhverjum hætti í gegnum skatt- heimtu. Í samtali við Morgunblaðið segir Þórey S. Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyr- issjóða, að það sé rétt að lífeyrissjóð- irnir hafi enn ekki greitt upphæðina, 1,4 milljarða króna, til ríkisins, en upphaflega átti fjármögnunin að liggja fyrir áður en Alþingi kæmi saman 1. september sl. „Það hafa staðið yfir samningaviðræður við fjármálaráðuneytið um hvernig mál- ið yrði leyst. En á þessari stundu hef- ur ekkert samkomulag náðst.“ Að sögn Þóreyjar hafa lífeyrissjóð- irnir helst viljað koma að þessari fjármögnun með því að kaupa eignir af ríkinu. „Hins vegar hefur reynst erfitt að finna einhverjar eignir sem lífeyrissjóðirnir telja ásættanlegt að kaupa. Í fyrstu vildu lífeyrissjóðirnir kaupa hlut í Landsvirkjun en stjórn- völd hafa ekki léð máls á því.“ Hún segir aðrar eignir hafa komið til tals, meðal annars kaup á landareignum ríkisins, en lífeyrissjóðirnir hafi met- ið slík kaup of áhættusöm. „Fjárfest- ingin þarf að standa undir sér ein og óstudd, óháð skattheimtunni.“ Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka fjármálafyr- irtækja, segir í samtali við Morg- unblaðið að gert sé ráð fyrir því að fjármálafyrirtækin greiði sömu upp- hæð - 2,1 milljarð króna - á næsta ári. Hann bendir hins vegar á að ekki sé rétt að tala um „samkomulag“ við fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði í þessum efnum. „Þetta var vilja- yfirlýsing um samstarf um fjár- mögnun. Það hefur ekkert samstarf verið haft við okkur um fjármögnun fyrir árið 2012, ekki frekar en gilti um fjármögnunina á þessu ári.“ Veitir ÍLS samkeppnisforskot Guðjón bendir jafnframt á að það skjóti skökku við að Íbúðalánasjóður, sem er með meira en helmingshlut- deild á íbúðalánamarkaði, hafi verið undanþeginn fjármögnuninni. „Þess í stað var ákveðið að ríkið tæki á sig hlut Íbúðalánasjóðs í gegnum ríkis- sjóð. Það er álitaefni hvort stjórnvöld eru ekki með þessu að veita Íbúða- lánasjóði enn eitt samkeppnis- forskotið,“ segir Guðjón. Að sama skapi segir Guðjón það undarlegt að aðilar sem enn séu starfandi á íbúðalánamarkaði, meðal annars Drómi, og hafi verið aðilar að samkomulaginu og tekið þátt í þeim aðgerðum sem yfirlýsingin byggðist á, komist hjá því að taka þátt í fjár- mögnuninni þar sem fjármálafyrir- tæki í slitameðferð eru undanþegin skattinum. Á þetta hafi Samtök fjár- málafyrirtækja bent í umsögn sinni um frumvarpið. Fjármögnun sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu ólokið Morgunblaðið/Kristinn Aðgerðapakki Erfitt hefur reynst að ná samkomulagi milli stjórnvalda og lífeyrissjóða eftir að viljayfirlýsing um skuldaaðgerðir var undirrituð.  Ekkert sam- komulag náðst milli lífeyrissjóða og stjórnvalda 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011 Stuttar fréttir ... ● Seðlabanki Bretlands tilkynnti í gær eftir tveggja daga fundasetu að stýri- vöxtum yrði haldið óbreyttum í 0,5% en bankinn kom mörkuðum á óvart með því að lækka þá svo mikið niður við síðustu stýrivaxtaákvörðun og hafa stýrivextir í Bretlandi aldrei verið jafn lágir.Sérfræðingar í Bretlandi töldu í gær að ekki væri ekki útilokað að seðla- bankinn neyddist til að dæla meira fé inn á markaðinn til að styðja við efna- hagslífið. Stýrivextir áfram 0,5% ● Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því síð- degis í gær að það hefði fyrir mistök, sent ranga tilkynn- ingu til nokkurra viðskiptavina sinna um að lánshæfis- einkunn franska ríkisins hefði verið lækkuð. S&P segir í yfirlýsingu sinni að einkunn franska ríkisins sé áfram AAA/A-1+ með stöðugum horfum og tilkynningin í gær bendi ekki til þess að verið sé að yfirfara það mat. Segist fyrirtækið vera að rannsaka hvað hafi farið úrskeiðis. S&P sendi rangt mat á Frakklandi frá sér París Eiffelturninn og Concorde. ● Íslandsstofa, í samstarfi við Finnsk- íslenska viðskiptaráðið, heldur kynn- ingarfund um viðskiptaumhverfið í Finnlandi og Eistlandi miðvikudaginn 16. nóvember í Borgartúni 35. Almennar upplýsingar verða veittar um markaðina í Finnlandi og Eistlandi. Jafnframt verður sagt frá helstu við- skiptatækifærum sem í boði eru fyrir ís- lensk fyrirtæki. Meðal annars mun Þór- dís Lóa Þórhallsdóttir, eigandi Pizza Hut í Finnlandi, segja frá reynslu sinni af því að reka fyrirtæki þar í landi. Viðskiptatækifæri í Finnlandi og Eistlandi Nýtt samdrátt- arskeið blasir við í ríkjum Evrópu- sambandsins á næsta ári, sam- kvæmt nýrri spá framkvæmda- stjórnar ESB. Er þetta rakið til gríðarlegra skulda evrópskra ríkja, erfiðrar stöðu banka og minni einkaneyslu. Samkvæmt spánni verður hagvöxtur á evrusvæðinu minni á næsta ári en búist var við en á sama tíma mun skuldastaða evru- ríkjanna versna enn frekar. Dökkt yfir evrusvæði Olli Rehn Sprotaþing Ís- lands, sem rek- ur Seed Forum Iceland, blæs til fjárfestaþings í dag. Slík sprota- þing hafa verið haldin tvisvar á ári allt frá apríl 2005, en mörg af framsæknustu ný- sköpunarfyrirtækjum landsins hafa fundið fjárfesta og aðra samstarfs- aðila á Seed Forum Iceland. Sjö fyrirtæki kynna sig fyrir fjár- festum á þinginu, sem haldið verður í höfuðstöðvum Arion banka, en þar af eru sex íslensk. Á meðal fyr- irtækjanna er leikjafyrirtækið Plain Vanilla sem gaf á dögunum út tölvu- leikinn Moogies fyrir iPad- spjaldtölvur og iPhone-farsíma. Fjárfesta- þing haldið Sex íslensk fyrirtæki kynna starfsemi sína Stjórn Gufu ehf., rekstraraðila Fontana heilsulindarinnar á Laug- arvatni, hefur óskað eftir því við hluthafa að þeir leggi félaginu til 120 milljónir króna í auknu hlutafé. Þetta kemur fram á forsíðu Sunn- lenska í gær. Anna Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri Fontana, segir í sam- tali við blaðið að með hlutafjár- aukningunni sé verið að bregðast við þeim töfum sem urðu á opnun staðarins í sumar, m.a. vegna þess að verktakinn varð gjaldþrota í miðju verki. Fram kemur að stjórn félagsins hafi ákveðið að nýta hluta heimild- arinnar til hlutafjáraukningar strax, einkum til þess að greiða upp aukinn byggingarkostnað og til þess að fjármagna frágang heilsu- lindarinnar. Hluthafar Fontana eru 27 talsins og hafa stærstu hluthafarnir sam- þykkt aukninguna, en þeir eru Ice- landair Hotels, Íslenska heilsulind- in (móðurfélag Bláa Lónsins) og Bláskógabyggð. Bláskógabyggð hefur samþykkt að auka hlut sinn í félaginu um 4,5 milljónir króna, en Atvinnuþróun- arfélag Suðurlands, sem einnig er hluthafi, ætlar ekki að auka sinn hlut. agnes@mbl.is Auka hlutafé um 120 milljónir Fontana Heilsulindin á Laugarvatni leitar leiða til þess að auka hlutafé sitt um 120 milljónir króna. Stærstu hluthafarnir hafa samþykkt aukninguna. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Skuldatryggingaálagið á franska ríkið hefur aldrei verið hærra en það fór í 204 punkta í gær. Á sama tíma hækkaði ávöxtunarkrafan á frönsk ríkisskuldabréf verulega og er áhættuálagið á þau umfram þýsk ríkisskuldabréf einnig í sögulegum hæðum. Þróunin stýrist af þrálátum orð- rómi um að eitt eða fleiri stóru mats- fyrirtækjanna muni frekar fyrr en síðar lækka lánshæfismat franska ríkisins úr hæsta flokki. Veik staða franska bankakerfisins vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu hefur ýtt undir þennan orðróm en stórtækar stöður franskra banka í ríkisskuldabréfum verst stöddu evruríkjanna kunna á endanum að leiða til þess að stjórnvöld í París þurfi að kosta miklu til endur- fjármögnunar þeirra. Versnandi efnahagshorfur í Frakklandi hafa einnig áhrif á þróun mála. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins spáði í gær að hag- vöxtur yrði minni í Frakklandi á næsta ári en opinberar spár stjórn- valda gera ráð fyrir. Spá fram- kvæmdastjórnarinnar gerir enn- fremur ráð fyrir að hlutfall opinberra skulda franska ríkisins verði komið í 92% af landsfram- leiðslu innan tveggja ára. Þessi þróun á mörkuðum ein- skorðaðist ekki við Frakkland. Vísi- tala fyrir skuldatryggingar ríkja í Evrrópu hækkaði í gær fimmta dag- inn í röð en vísitalan stendur nú í 345 punktum og hefur ekki verið hærri í fimm vikur. Áhættuálagið á ríkisskuldabréf evruríkja á borð við Spán, Aust- urríki og Belgíu hækkaði jafnframt og munurinn á álagi skuldabréfa þessara ríkja miðað við þýsk rík- isskuldabréf hefur aldrei verið meiri. Franska ríkið færist nær skotlínu markaðanna                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +0.-. ++/-,1 2+-22 23-/0/ +4-1/, +20-/5 +-. +02-1 +.4-5. ++,-0+ +0.-5. ++/-54 2+-202 23-11/ +4-104 +20-4. +-.311 +02-51 +.0-/5 2+-12135 ++4-35 +0,-1 ++1-/ 2+-/11 23-.3/ +4-./0 +25-++ +-.300 +0/-10 +.0-0/ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.